Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 37
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
179
Friðrik J. Rafnar.
Saga
hins heilaga Frans frá Assisi.
(Sniðin eftir bók Jóhannesar Jörgensens o. fl. ritum).
I.
Á Mið-ítalíu norðanverðri, nálægt
hálfri dagleið frá borginni Perugia
stendur þorpið Assisi. Er umhverfið
hrjóstrugt, enda stendur þorpið við rætur
fjallsins Monte Subasio, sem er gróður-
snautt og nakið. íbúarnir eru um 5 þús-
undir og lifir fjöldi þeirra aðeins á því,
að sýna ferðamönnum, sem þangað koma,
gamla sögustaði og rústir fornra bygg-
inga.
Assisi er ein af elstu borgunum í f-
talíu. Gríski spekingurinn og landfræð-
ingurinn Kládius Ptolomaios, sem lifði á
2. öld fyrir Krists-burð, getur um hana í
landafræði sinni, og þar fæddist latneska
skáldið Sextus Propertius árið 46 f. Kr.
Krístna trú boðaði þar fyrstur einn af
lærisveinum Péturs postula, hinn heiiagi
Crispolitus. Var hann líflátinn sem písl-
arvottur fyrir trú sína á dögum Domi-
tianusar, sem var keisari í Róm frá 81—
96 e. Kr. En hinn heilagi Rúfinus varð
hinn eiginlegi postuli Assisiborgar.
Starfaði hann þar lengi og var að lokum
deyddur píslarvættisdauða árið 288. Um
uiiðja 12. öld var honum, .sem dýrlingi
borgarinnar, reist kirkja sem stendur
enn, kirkja hins heilaga Rúfinusar. Má
þar enn í dag sjá skírnarfont þann, sem
hinn heilagi Frans var skírður úr þann
26. sept. 1182. Er skírnarfontur þessi,
eins og skiljanlegt er, einn af helgustu
dómum kirkjunnar og þorpsbúa
Skömmu fyrir 1150 fluttist ungur mað-
ui- frá borginni Lucca til Assisi,, Bernar-
done að nafni. Gekk hann þar venjulega
síðar undir viðurnefninu »Stórí Bern-
harð«. Hann var af þektri og gamalli
kaupmanna og vefaraætt, og hélt nú á-
fram atvinnu forfeðra sinna í Assisi.
Sonur hans Pietro di Bernardone ólst þar
upp hjá honum og gerðist ungur sam-
starfsmaður og fjelagi föður síns. Á
verslunarferð til Frakklands kynntist
hann ungri stúlku af góðum ættum. Feldu
þau hugi saman og fluttist hún með hon-
um til Assisi, sem kona hans! Var þá
Stóri-Bernharð látinn, og Pietro orðinn
einkaeigandi blómlegrar verslunar og
klæðasmiðju. Voru þau hjón vinsæl mjög,
vel fjáð og hjálpsöm við þurfandi fólk. og
fátæklinga. Sérstaklega var kona Pietro,
madonna Pika, orðlögð fyrir guðrækni og
kristilegt hugarfar og breytni.
í septembermánuði 1182 fæddist þeim
sonur.
Segja gamlar sagnir svo frá, að fæð-
ingin hafi gengið mjög illa. Barnsmóðir-
in hafi verið búin að liggja lengi og þjást,
en ekki getað fætt. Þá hafi borið þar að
fátækan pílagrím, barði hann að dyrum,
og lét þann sem opnaði skila inn, að fæð-
ingin mundi ekki ganga, fyr en sængur-
konan væri flutt úr hinu skrautlega
svefnherbergi sínu út í gripahús, og lögð
þar á hey í einhverjum básnum. Var
þetta gert, og segir sagan að ekki hafi
sængurkonan fyr verið komin út, heldur
en drengurinn fæddist. Varð þá fyrsta
hvílurúm barnsins — eins og frelsarans
23*