Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 20
162 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hamingjusami, sem nú er í vinfengi við mistress Nelly?« spurði hann brosandi. »Einhver sveitalubbi — mér er sagt að hann heiti Dal«, svaraði jarlinn. Eg fann að hjartað barðist ákaft í brjósti mér. En eg er samt viss um að eg leit öldungis rólegur út, þegar eg beygði mig yfir borðið á móti jarlinum og mælti: »Yður hefir verið skýrt rangt frá, lávarður minn, eg hefi gildar ástæður til að segja það«. »Ástæður yðar geta verið svo góð- ar sem verkast vill«, svaraði jarlinn og hvesti á mik augun, »en þær eru nú samt sem áður gripnar úr lausu lofti«. »Eg hefi sjálfur nýlega verið skipaður liðs- foringi í lífverði konungs — og nafn mitt er — Dal!« sagði eg og rétti úr mér. Eg fann að Darrell lagði hendina á handlegg minn. — »Svo — svo þér eruð sá ham- ingjusamk, mælti Carford háðslega. — »Eg óska yður til hamingju með...« »Nei, nei, ekki meira, Carford!« greip mr. Jermyn fram í. »Með hana Ijósu yðar!« sagði Carford. »Yður hefir verið skýrt rangt frá, lávarður minn«, endurtók eg af mikilli reiði, þrátt fyrir að eg var gagntekinn af hræðslu: Eg vissi meira en vel, við hverja var átt, þegar talað var um »Nelly«.* »Við Guð, sir, eg veit, hvað eg er að fara með!« svaraði hann. »Við Guð, lávarður minn«, hrópaði eg, þó eg væri nú reyndar ekki vanur að sverja við Guðs nafn — »þér vitið það ekki!« Reiðin hafði gert okkur báða nokkuð háværa, og allir við borðið sneru sér að okkur til að hlusta á deilu okkar. — Car- ford varð sótrauður af reiði við að eg beinlínis sagði hann ljúga, og til blygð- unar og undrunar fyrir sjálfan mig, fann eg á mér, að reiði mín var sprottin af því, að mig var farið að gruna, að hann * Nelly er stytting af Eleanor — sú sem sagan fjallar um, er hin fræga leikkona Nelly Gwyn. (1650—1687). Þýö. hefði eigi farið með lýgi. En mér var ó- mögulegt að fá af mér að láta undan, svo eg hélt áfram: »Eg skora á yður lávarð- ur minn, að þér kannist við fljótfærni yðar og takið orð yðar aftur!« Hann fór að hlægja. »Ef eg, eins og þér, gæti feng- ið af mér, að taka við upphefð úr slíkum höndum án þess að blygðast mín fyrir það, mundi eg heldur ekki skammast mín fyrir að kannast við það, mælti hann. Eg stóð upp og hneigði mig alvarlega fyrir honum; allir sem inni voru vissu, hvað eg átti við, en hann vildi auðsjáan- lega sýna mér megnustu fyrirlitningu, því hann lét sem hann sæi ekki hreyfingu mína, en sat kyr og glotti fyrirlitlega. »Það virðist vera erfitt fyrir yður að skilja meiningu mina, lávarður minn«, sagði eg. »Þetta ætti þá að koma yður í skilning um hana!« Eg greip handþurk- una, sem lá á borðinu fyrir framan mig og kastaði henni léttilega í andlit hans. Hann spratt þá skjótt á fætur og sama gerðu allir aðrir við borðið. Darrell greip mig um handlegginn og hélt mér föstum. Jermyn var við hliðina á Carford. Eg vissi naumast hvað gerðist, svo æstur var eg út af þessari óvæntu deilu — og enn- þá meira af grun þeim, er orð Carfords höfðu vakið hjá mér. — Litlu seinna sá eg að Jermyn kom í áttina til okkar. Darrell slepti mér þá, gekk á móti hon- um, og þeir töluðust nokkur orð við hljóð- lega. Carford lávarður var seztur niður aftur, en eg beið standandi eftir úrslit- unum og studdi mig við bakið á stólnum. Darrell kom skjótlega aftur til mín og hvíslaði: »Það er bezt fyrir yður að fara heim. Eg skal undirbúa það, sem með þarf. Þér verðið að mæta í fyrramálið«. Eg laut höfði til samþykkis. Nú hafði eg fullkomlega náð valdi yfir sjálfum mér aftur, þakkaði mr. Jermyn fyrir góð- gerðirnar, og kvaddi hann alúðlega,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.