Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 41

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 41
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 183 um hálf- eða alrugluðum einfeídningi, sem flæktist þar daglega um götur, að þegar hann mætti Frans, fór hann úr kápunni og breiddi hana á götuna og bað svo Frans að ganga yfir kápuna. Senni- lega hefir það verið sami maður, sem gekk um götur bæjarins og hrópaði alt- af: »Pax et bonum« (friður og hagsæld). Eftir að Frans snerist til trúar, þagnaði þessi hrópanda rödd, sem helgisögur síð- ari tíma gerðu að nokkurskonar fyrir- rennara hins mikla dýrlings. II. Öllum þeim, sem skrifað hafa sögu Frans, bæði samtímamönnum hans og öðrum, ber saman um, að á æskuárunum hafi hann verið alvörulítill og yfirleitt borið flest einkenni gáskafullra ung- nienna. Gera sumir allmikið úr æskubrek- um hans. En þó verður það ljóst, ef saga hans er lesin ofan í kjölinn, að undir yf- irborði ærslanna og æskubrekanna, leyn- ist viðkvæm og jafnvel óvenjulega hugs- andi sál, eftir aldrinum. Það verður á inörgu ljóst, að hann hefir ungur hugs- að meira um trúarefni, en sagt er að ung- mennum þeirra tíma hafi þá verið tamt. Mun þar hafa gætt áhrifa móðurinnar. Þá er og sýnilegt, að eigingirni öll og sér- gæska hefir engin tök haft á honum. Hann vill græða fé, lifa vel í klæðnaði, mat og drykk og tekur þátt í allskonar gleðskap. En honum er aldrei nóg að ujóta lífsins einn; hann safnar um sig fjölda vina, og hann lætur aldrei bjarg- ui’vana fátækling bónleiðan frá sér fara. Hann var fullur af þrá og þorsta eftir gæðum lífsins, og eins og flestum fór honum svo, að leita fyrst svölunar í þeim nautnalindum sem næstar voru hendinni, þeim sem hann gat fengið aðgang að með fé sínu, æsku og glæsimensku. En brátt kom þar, að honum varð þar ekki full- nægt. Tæplega tvítugur að aldri, lagðist, Frans hættulega veikur. Lá hann lengi, margar vikur, milli heims og helju, en að lokum sigraði æskan og lífsþrekið, með hjálp góðrar hjúkrunar móður hans, sem ekki veik frá sjúkrabeðnum dag eða nótt. Veikindi þessi urðu upphafið að um- skiftunum í lífi hans. Samtímamaður hans og vinur, Tómas munkur frá Celanó lýsir því, að þegar Frans fór að batha, hafi sótt á hann þunglyndi. Lífið bi’osti, alt í kringum hann var sól og sumar. Náttúran var í sparifötunum og alt lék í iðandi fjöri og lífi. Hvert sem litið var. var eins og sumarið og sólin, náttúran dauð og lifandi andaði frá sér freistandi angan. Frans var að batna. Máttlítill og mag- ur staulaðist hann eins og örvasa gamal- menni út að glugganum í herbergi sínu. En það sem hann sá, fylti hann aðeins biturleika og ömurlegum hugsunum, Hon- um fanst æskan liðin hjá. Honum fanst að alt sem hann áður gladdist við og þráði, alt sem hann hélt að hann ætti og yrði ekki frá honum tekið og hafði gefið lífi hans gildi, vera hégóminn einn. Aft- ur og aftur komu fram í huga hans orð- in, sem prestarnir hrópuðu frá altarinu á Pálmasunnudag, þegar þeir stráðu ösk- unni yfir höfuð safnaðarins: »Mundu það, maður, að þú ert duft og aska«. Duft og aska, eyðing og dauði, hismi og hégómi — alt er hégómi. Hann var kominn að hinum logandi þyrnirunni. Innan skamms átti hann að heyra rödd Drottins, sem kallaði hann að fullu. Ennþá var hann að vísu ekki kom- inn lengra en að sjá gildisleysi þess, sem hann áður hafði tignað. Hann var að brenna skip sín, en var ekki sti’ax farinn að byggja ný. (Framh.).

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.