Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 16

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 16
158 NÝJAR KVÖLDVÖKUR »Láttu mig samt vita, þegar þú kemur til borgarinnar, Símon — og líklega verður þess nú ekki langt að bíða — þú getur komið til mín í hús mitt við Southampton Square. Eg gizka á að lafði minni muni líka þykja gaman að sjá þig«. Eg þakk- aði honum fyrir vinsemd hans, en andlit mitt var stöðugt þungbúið. Mér fanst eg geta ráðið af orðum hans, að hann áliti að eitthvað óhreint lægi á bak við þann heiður, sem mér hafði hlotnast. »Eg veit ekki hvað eg á að gera við þetta!« hrópaði eg. Hann leit við með annan fótinn á vagnskörinni og horfði alvarlega á mig. »Áttu engan að í Lun- dúnum annan en mig — engan vin, Sí- mon?« Augnaráð hans var svo rannsak- andi, að eg fann hversu eg roðnaði. Eg reyndi þó að ná valdi yfir mér eins vel og eg gat og svaraði: »Vin, sem gæti gert mig að liðsforingja í lífverði kon- ungs, lávarður minn?« eg hló við háðs- lega. Lávarðurinn ypti öxlum og stökk upp í vagninn. Eg lokaði dyrunum á eftir honum, en glugginn var opinn og eg stóð og beið eftir svari hans. Hann laut áfram og kallaði til þjónsins: »Af stað, af stað!« »Hvað haldið þér annars, lávarður minn?« hrópaði eg. Hann brosti við og þagði. Vagninn byrjaði að hreyfast. Eg varð að ganga með, til þess að geta hald- ið mér við gluggann — bráðlega varð eg að hlaupa. — »Lávarður minn«, hrópaði eg — »hvernig ætti hún að geta. . ?« Lá- varðurinn tók upp tóbaksdósirnar sínar og opnaði þær. »Nei, eg get ekki sagt hvernig«, sagði hann með hægð og tók í nefið. »Lávarður minn«, hrópaði eg aft- ur og hljóp nú eins og fætur toguðu — »vitið þér hver Cydaria er?« Lávarðurinn horfði gaumgæfilega á mig, þar sem eg nljóp lafmóður. Bráðlega hlaut eg að gef- ast upp og dragast aftur úr, því hestarn- ir voru fjörugir. Það var eins og hann hefði beðið eftir því augnabliki, áður en hann svaraði, því þá veifaði hann hend- inni út um gluggann og kallaði: »Það veit öll Lundúnaborg!« Þar skildi með okkur. Hann lokaði glugganum og eg s+óð eftir másandi og blásandi á vegin- um. Eg var bæði hissa og sáróánægður, því hann hafði ekkert sagt mér af öllu því, s.-m mig langaði til að vita, og það, sem hann hafði sagt, var nóg til þess að æsa forvitni mína og gera hana óbærilega. — Og ef það væri nú satt, að þessi leyndar- dómsfulla kvenvera, sem öll Lundúna- borg þekti, hefði munað eftir Símoni Dal! Blóð sjötugs öldungs hefði getað hitnað við slíka hugsun — og tuttugu og tveggja ára unglingur hlaut að verða hálfgalinn í henni. — Þó undarlegt sé, þá fanst prestinum ekkert ólíklegt, að það væri einmitt Cy- daria, sem eg ætti upphefð mína að þakka, og- honum féll sú hugsun auðsjá- anlega miklu betur í geð, en að það blátt áfram hefði verið lávarðurinn. Þetta var á einhvern hátt leyndardómsfyllra og átti betur við spádóminn. Við ræddum þetta og komum með ýmsar getgátur, og okkur kom saman um, að hún hlyti að vera af afar háum stigum, úr þv; að hún gat ráðið, hverjir yrðu liðsforingjar í lífverði ’sjálfs konungsins. En hann gaf ótvírætt i skyn, að þetta væri aðeins fyrsta sporið á frægðarbraut minni, en bráðlega mundi allur spádómur Betty gömlu rætast. Þannig leið kveldið fyrir okkur og óróleiki minn hvarf. Eg var nú ákafur eftir að komast af stað sem allra fyrst. Mér fanst nú að hin miklu örlög stæðu fyrir dyrum og biðu mín, en mest af öllu langaði mig til að vita, hver hún væri, sem við höfðum nefnt Cydariu, konan, sem öll Lundúnaborg þekti. En alt í einu varð presturinn angur- vær; skilnaðarstundin nálgaðist, og eg stóð á fætur til að kveðja. »Símon«, mælti

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.