Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 29

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 29
 NÝJAR KVÖLDVÖKUR 171 limi frá sameiginlegri hættu. Hverju vilj- ið þið svara?« Hróp og ólæti urðu er hann hætti ræð- unni og annar maður fjekk orðið. Meðan hann talaði ljet múgurinn greinilegar og greinilegar álit sitt í ljósi. Hver setning er hann sagði jók á reiðina það fór meira að segja að koma hreifing á þá sem næst- ir voru fangelsinu; vantaði nú eigi ann- að en ákveðinn foringja. Blake hafði verið kosinn til að halda þriðju ræðuna en á meðan hann var að brjóta sjer braut gegnum þyrpinguna hljóp annar maður upp á fótstallinn. Það var Bernie Dreux, en gerólíkur þeim, sem hinir forviða vinir hans þóttust áður hafa þekt. Hann var fölur og skalf, en augun gneistuðu af þeim eldi, sem fjekk áheyrendur hans til að þegja. Við hina stóru líkneskju virtist hann enn pervisalegri en ella, en yfir honum var þó einhver virðingarblær sem hafði áhrif. Andartak stóð hann þegjandi og horfði á mannsöfnuðinn og hóf svo máls. Rödd hans var skýr — náði til þeirra sem ystir stóðu — og hafði áhrif eins og olía á eld. Blóð forfeðra hans var loks vakið til lífs í honum, gamli Dreux hershöfð- ingi, maðurinn úr eldi og járni, talaði nú gegnum munn sonar síns. »Borgarar New Orleans« hrópaði hann, »jeg er hvorki að seilast eftir heiðri eða æru, jeg er ekki nefndarmaður, en al- mennur borgari. Látið mig því tala fyrir yðar hönd, látið mig birta svar yðar. 50 heiðarlegustu samborgurum voium var falið að draga morðingja Donellys fyrir lög og dóm. Þeir báðu okkur að bíða °g treysta lögunum. Við biðum og lögin sviku. Nú kemur nefndin aftur til okkar °g viðurkennir, að hún geti ek ert gert. Hún leggur málið í hendur okkav og bið- ur um úrskurð. Látið mig lýsa því yfir, að rjettlætið verður að sigra! Dan Donel- l.Vs verður að hefna í dag!« Hrópin, sem gollið höfðu við eftir fyrri ræðurnar, voru sem ekkert móti þeim látum er nú hófust. Þegar hávaðinn þagnaði að nýju hjelt hann áfram: »Nú er tími framkvæmdanna kominn, en ekki annað. Nefnd vor spyr hvort 'við sjeum reiðubúnir til þess að fullnægja rjettlætinu og taka alt á samvisku vor.a og jeg svara: Já! Blackmar á að vera foringinn og hr. Hade, sá er næstur tai- aði, aðstoðarforingi. Vopnist herrar mín- ir og Guð miskunni sálum hinna ellefu morðingja«. Hann stökk niður og múgurinn lagði af stað eins og her í sókn. Við hvert götu- horn óx fjöldinn; hundruð manna, sem ekki hafði dreymt um þátttöku, voru rifn- ir með og gengu æpandi til fangelsisins. Aðeins hinir vopnuðu menn gengu hljóðir og alvarlegir í miðri fólksþrönginni. XXV. KAFLI. Tími hefndarínnar. Á veggsvölum nokkrum rjett hjá fang- elsinu stóðu hinar tvær ungu stúlkur frá Sikiley. Andspænis þeim var hin gamla, stóra, ömurlega bygging með járnrimlum fyrir gluggum og járnslegnum dyrum, og geymdi hún landa þeirra. »Hvað er framorðið?« Oliveta hafði endurtekið spurninguna margoft. »Hún er farin að ganga ellefu«. »Enn heyiá jeg ekki neitt. En þú?« »Nei, ekkert«. »Við hlytum að geta heyrt eitthvað, ef þeir hættu þessu barsmíði þarna fyrir handan. Þeir ætla að byggja strætisvígi«. Oliveta greip skjálfandi höndum um grindurnar. »Madonna mia! Jeg er að deyja! Heldurðu að Signore Blake geri þá bón þína, að aftra þeim frá þessu?« »Jeg er hrædd um, að hann geri það ekki«, mælti Vittoria hljóðlega. 22*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.