Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 42

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 42
184 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Bókmentir. Guðmundur Gíslason Haga- lín: Guð og lukkan, sögur. Útgefandi Þorst. M. Jóns- son. Akureyri. 1929. Guðmundur Gislason Hagalín er les- endum þessa rits og mörgum öðrum að svo góðu kunnur, að eg vona, að enginn virði mér til hlutdrægnis, þótt eg segi á- lit mitt afdráttarlaust og telji, að hann standi fremstur þeirra, er nú rita smá- söguf á íslenzka tungu. Ber í raun og veru margt til þess; en helztu einkenni hans eru þó þau, ,að hann hefir náð fast- ari tökum á efnum sínum en alment ger- ist, enda virðist hann þekkja sjálfan sig svo vel og dæma hæfileika sína svo rétt, að hann velur sér ekki önnur viðfangs- efni en þau, sem hann að öllu leyti er bú- inn að lifa sig inn í, skilur til botns og veit, að hann getur leikið sér að; hann hefir náð föstum og sérkennilegum stíl, sem gerir frásagnir hans heilsteyptar og sterkar — oft eins og meitlaðar í berg — alt er bygt á nákvæmri athugun, svo hugsunarháttur og málfæri hverrar per- sónu nýtur sín til fullnustu; hann er þróttmikill og blóðríkur og — síðast en ekki sízt — oft frábærlega skemtilegur, enda er frásagnarlist hans bygð á því, sem eitt er nauðsynlegt fyrir góðan frá- sagnara: hann nýtur sjálfur og hefir yndi af vel sagðri sögu. Hvergi finst mér þessi sérkenni Haga- líns hafa komið eins jafn vel fram og í þessum þrem sögum, sem nú eru nýút- komnar. Fyrsta sagan, sem gefur bókinni nafn, er tvímælalaust einhver allra bezta — ef ekki sú allra bezta — saga, sem hann hef- ir ritað. Hún er tvent í einu, góðlátleg, en þó mein-fyndin og skemtileg. Hún er svo fast bygð og hnitmiðuð, að þar má engu bæta við, ekkert fella úr — manni verður ósjálfrátt að hafa engan minni háttar en Knut Hamsun í huga, þegar maður les hana. — Aðalpersónan, Gunn- ar á Máfabergi, sem baslar í ættgengri fátækt og hleður niður ómegð, treystandi guði og lukkunni, verður ógleymanlegur í bókmentum vorum. Einfeldni hans er svo dásamleg og upprunaleg, að meira að segja hreppsnefndaroddviti, samvizku- samur og síhugsandi um »almennings- heillina«, eins og sönn sveitarforsjón, verður að láta undan síga — hvað þá al- mennur lesandi! Næsta sagan, »Einstæðingar«, er lík þeirri fyrri að því leyti, sem höfundur- inn altaf hefir augað opið fyrir kýmni þeiri'i, er .eftir atvikum getur verið byrst eða góðlátleg, og sem oft felst bak við sorgarleik lífsins. — Sumum mun ef til vill geta fundist sagan óþarflega marg- orð á köflum, en það er þó hvergi svo, að höfundurinn lini á tökunum, og í raun og veru er veslings krypplingssál Lauf- eyjar sérstæð og eftirtektarverð, og sem persóna gefur hún ef til vill Gunnari á Máfabergi ekkert eftir. Ástaræfintýri hennar, sem ekki er neitt ástaræfintýri, og hin elskulega sjálfsblekking,’sem læt- ur hana telja sjálfri sér trú um, að elsk- huginn ímyndaði hafi látið lífið hennar vegna og ekki vegna »bankóseðlanna«, sem hann vissi í höndum hennar, þegar hann gerði tilraun til að »bjarga því, sem honum þótti vænst um« — þetta tvent gerir hana svo ríka, að hún getur miðlað öllum, sem hún mætir.... Hér er brugðið upp mynd, sem lætur lesandann sjá inn í djúp sálarlífs þessarar einmana veru —

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.