Innsýn - 01.03.1987, Side 2
1987
ÁR ADVENTÆSKUNNAR
Það hefur víst ekki
farið fram hjá neinum að
það er komið nýtt ár, árið
1987 ár aðventæskunnar.
Þannig að þetta er
okkar ár. Það er ekki þar
með sagt að við eigum að
láta aðra þjóna okkur,
heldur eigum við að koma
okkar skoðunum og hug-
myndum á framfæri og
athuga hvað við getum
gert í söfnuðinum og að
deila boðskapnum til
annarra og þá sérstaklega
annarra unglinga. Megi
nýja árið, ár aðventæsk-
unnar gera það að verkum
að við tökum höndum saman
og virkjum þátt ungling-
anna í söfnuðinum, því að
við erum söfnuður morgun-
dagsins.
Innsýn hefur starfað
lengi og hefur það blað
reynt að koma til móts við
unglingana, finna greinar
við þeirra hæfi og ræða
um mál sem þeir hafa
áhuga á. En við höfum
mikin áhuga á að heyra frá
ykkur lesendur góðir og
sérstaklega frá ykkur
unglingunum, okkur langar
til að fá uppástungur um
efni og hvað annað sem þið
hefðuð áhuga á að lesa og
fræðast meira um. Gaman
væri líka að vera með þátt
sem byggist á spurningum
frá ykkur sem reynt yrði
að svara eftir bestu getu,
en til þess að svo megi
verða verðum við að fá
viðbrögð frá ykkur.
INNSÝN er ykkar blað og
við viljum á allan hátt
koma til móts við ykkur.
Harpa T. *
2