Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Blaðsíða 14
að opinber atvinnustarfsemi, sem Qármögnuð er að mestu með sölu á vöru og
þjónustu, er ekki talin til hins opinbera samkvæmt hinni hefðbundnu skilgreiningu,
heldur til hlutaðeigandi atvinnugreinar í framleiðsluuppgjöri þjóðhagsreikninga.
Eftirfarandi mynd sýnir Qárstreymið milli opinberra aðila og annarra aðila
hagkerfísins, og hefur þá innbyrðis fjárstreymi milli opinberra aðila verið fellt niður.
Af myndinni má ráða að ríflega 36% af landsframleiðslunni fer til hins opinbera í
formi skatta og annarra tekna. Útgjöld hins opinbera nema hins vegar rúmlega 39% af
landsframleiðslu og skiptast þau þannig að um þrír fímmtu hlutar fara til kaupa á vöru
og þjónustu, um tíundi hluti til vaxtagreiðslna og tæplega tveir fímmtu hlutar til
tilfærslna til fyrirtækja og heimila.
Einkaaðilar
Skattar
vaxtagjöld
framlög
og annað
138.637
36,2%
5
Hið opinbera 1992
Tekjur
138.637
36,2%
Beinir
skattar
47.724
12,5%
Óbeinir
skattar
79.881
20,8%
Eignatekjur
10.771
2,8%
Utgjöld (1)
149.858
39,1%
Samneysla
78.930
20,6%
Vaxtagjöld
14.508 3,8%
Hrein fjárfest.l)
13.551 3,5%
Tilfærslur
42.868
11,2%
Mynd 3.1
Fjárstreymi milli hins opinbera
og annarra aðila hagkerftsins 1992
í milljónum króna og hlutfall af VLF
1) Afskriftir ekki meðtaldar
Einkaaðilar
Mynd 3.1 sýnir sömuleiðis að skatttekjur hins opinbera eru langstærsti tekjuliður
þess eða 92% af heildartekjum. Þá sýnir hún að samneysluútgjöldin eru veigamesti
útgjaldaliðurinn eða ríflega helmingur heildarútgjaldanna. í samneysluútgjöldum eru
meðai annars útgjöld til fræðslumála, heilbrigðismála, réttar- og öryggismála, og
stjórnsýslu. Þessir fjórir málaflokkar taka til sín um 70% af samneysluútgjöldunum.
Fast á efitir þeim koma tilfærsluútgjöld, sem eru tæplega tveir fímmtu hlutar
heildarútgjalda hins opinbera. Til þessara útgjalda flokkast allar lífeyrisgreiðslur hins
12