Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Blaðsíða 11
1. Inngangur.
Rit þetta ijallar um búskap hins opinbera, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almanna-
tryggingakerfis. Ritið, sem er númer 12 í ritröð Þjóðhagsstofnunar um þjóðhags-
reikninga nær sérstaklega til áranna 1990-1992 og er framhald rita um sama efni, sem
komu út í ársbyrjun 1983, 1986, 1991 og 1993, og náðu yfir tímabilin 1945-1980,
1980-1984, 1980-1989 og 1980-1991.
I ritinu er "hið opinbera" í meginatriðum notað sem heiti á starfsemi sem tekna er
aflað til með álagningu skatta en ekki með sölu á vöru og þjónustu á almennum
markaði. Af þessu leiðir að starfsemi fyrirtækja og sjóða í eigu ríkis og sveitarfélaga
fellur utan við efni ritsins, nema að því marki sem þessir aðilar eiga viðskipti við hið
opinbera. Að því er ríkissjóð varðar fellur þessi skilgreining að mestu að A-hluta
ríkisreiknings og hvað sveitarfélög varðar að sveitarsjóðum.
Reikningakerfi opinbera búskaparins, eins og það birtist í þessu riti, er hluti af
stærra reikningakerfí fyrir þjóðarbúskapinn í heild og er unnið samkvæmt reglum
Sameinuðu þjóðanna um gerð þjóðhagsreikninga. Birt eru sérstök yfirlit um ríki,
sveitarfélögin í heild og almannatryggingakerfið hvert um sig og síðan eru dregnar
saman tölur fyrir hið opinbera í heild. Þessi yfirlit eru þrískipt. í fyrsta lagi er tekju- og
útgjaldareikningur, sem sýnir tekjur og rekstrargjöld á hverju ári. I öðru lagi er yfírlit
um fastafjárútgjöld, en þar færist meðal annars ijármunamyndun og fjármagns-
tilfærslur ársins. Að lokum er svo fjárstreymisreikningar, sem sýna kröfu- og
hlutafjárbreytingu hins opinbera og lána- og sjóðshreyfíngar þess á hverju ári.
Ritið skiptist í átta hluta, auk töfluhluta. I öðrum hluta er vikið að afkomustærðum
hins opinbera, í þriðja hluta umsvifum þess og í fjórða hluta tekjum þess. Þá er í
fímmta hluta Qallað um útgjöld hins opinbera. í sjötta hluta er að fínna umfjöllun um
skuldir og lánastarfsemi hins opinbera. I sjöunda hluta er gerður stuttur alþjóðlegur
samanburður. Að síðustu eru í áttunda hluta sýndar ýmsar viðbætur við tekjur og
útgjöld hins opinbera sem að réttu lagi ættu að teljast með samkvæmt þjóðhags-
reikningakerfí Sameinuðu þjóðanna. Svo er þó ekki enn sem komið er en áformað er
að bæta úr því síðar.
Töfluhluti ritsins skiptist í níu flokka. Fyrst eru yfírlitstöflur, en síðan sundurliðanir
á tekjum og gjöldum, s.s. á samneyslu, framleiðslustyrkjum, fjármunamyndun o.fl.
Síðast í töfluhlutanum eru viðbótartekjur og -útgjöld hins opinbera flokkuð eftir
tegund og viðfangsefnum.
Heimildir um búskap hins opinbera eru að mestu leyti unnar upp úr reikningum
ríkissjóðs, sveitarfélaga og Tryggingastofnunar ríkisins. Reikningar ríkissjóðs hafa
nær eingöngu verið unnir upp úr A-hluta ríkisreiknings, sem nær yfír skatttekjur og
ráðstöfun þeirra. I B-hluta eru hins vegar færð fyrirtæki ríkisins, ýmsar lánastofnanir
o.fl.
Urvinnsla úr reikningum sveitarfélaganna hefur fyrst og fremst miðast við hina
eiginlegu bæjarsjóðareikninga, en þar eru færðar skatttekjur og ráðstöfun þeirra. Efni
fyrir hreppana hefur verið unnið upp úr reikningum helstu hreppa, nokkuð breytilegt
efitir árum. Þessi úrvinnsla er síðan notuð til viðmiðunar við áætlun fyrir aðra hreppa
og sýslufélög. Þá liggur fyrir uppgjör Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, en Jöfnunarsjóður er
hér færður sem hluti af búskap sveitarfélaganna.
9