Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Blaðsíða 16
a. Framleiósla hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Á árinu 1992 nam verg
landsframleiðsla ríflega 383 milljörðum króna, en landsframleiðsla er summa vöru
og þjónustu sem framleidd er í landinu á einu ári og notuð er til neyslu,
Qárfestingar eða útflutnings. Meginhluti þessarar framleiðslu á sér stað í einka-
geiranum, en hið opinbera hefur hins vegar staðið að framleiðslu k 17,7% af
landsframleiðslu ársins 1992, og þá einkum þjónustu, eins og réttar-, fræðslu- og
heilbrigðisþjónustu.
b. Vinnuafl í þjónustu hins opinbera sem hlutfall af heildarvinnuafli. Á árinu 1992
voru heildarársverk í landinu um 124 þúsund. Af þeim voru 23,6 þúsund unnin í
þágu hins opinbera eða um 19,1% af heildinni.
Mynd 3.3 Umfang hins opinbera 1992, mismunandi
mælikvarðar í hlutfalli við VLF.
Opinber Opinbert Samneysla Samneysla Heildartekjur Heildargjöld
framleiðsla vinnuafl og fjárfesting
c. Samneysla og jjárfesting hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Þessi
mælikvarði sýnir þann hluta landsframleislunnar sem notaður er af hinu opinbera.
Á árinu 1992 námu samneysluútgjöldin 78,9 milljörðum króna eða sem svarar
20,6% af landsframleiðslu. Fjárfestingarútgjöld voru hins vegar 4,2% af VLF.
d. Heildartekjur og heildarútgjöld hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Á
árinu 1992 námu heildartekjur hins opinbera rúmlega 138,6 milljörðum króna eða
36,2% af landsframleiðslu. Óbeinir skattar stóðu fyrir um þremur fimmtu hlutum
heildartekna, en beinir skattar fyrir þriðjungi teknanna. Á sama ári námu
heildarútgjöld um 149,9 milljörðum króna án afskrifta eða 39,1% af VLF.
Eins og lesa má af mynd 3.4 hafa tekjur og útgjöld hins opinbera á mann staðið í stað
eða dregist saman að raungildi allra síðustu árin miðað við verðvísitölu2 lands-
2 Það er erfiðleikum bundið að finna ásættanlega verðvísitölu sem hægt er að beita við raunvirðingu á
útgjöldum og tekjum hins opinbera. Að réttu lagi ætti að raunvirða hvem lið íyrir sig með þeirri
verðvísitölu sem lýsir verðbreytingu þess liðar. Iðulega eru svo sundurliðaðar verðvísitölur ekki tiltækar
og verður því að grípa til nálgunaraðferða. Oftast eru þá notaðar almennar verðvísitölur eins og vísitala
landsframleiðslu. Þá er gengið út frá þeirri forsendu að viðkomandi liðir fylgi almennri verðþróun. Að
öðrum kosti verða niðurstöður villandi.
14