Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Blaðsíða 21
Opinberum útgjöldum í heilbrigðismálum má skipta niður eftir helstu viðfangs-
efnum, eins og gert er í töflu 5.5, þ.e. í almenna sjúkrahúsaþjónustu, öldrun og
endurhæfingu, heilsugæslu, lyf og aðra heilbrigðisþjónustu. Þar kemur fram að á árinu
1993 er ríflega helmingur opinberra heilbrigðisútgjalda í formi almennrar sjúkrahúsa-
þjónustu, en til þeirrar þjónustu var ráðstafað rúmlega 15 milljörðum króna, sem
svarar til 3,8% af landsframleiðslu. Hlutdeild öldrunar- og endurhæfingarþjónustu utan
almennra sjúkrahúsa mældist ríflega 14% af opinberum heilbrigðisútgjöldum á því ári,
en sú hlutdeild hefur vaxið tölvert síðasta áratuginn. Til heilsugæslu runnu um 4,8
milljarðar króna eða fjárhæð sem svarar til 1,2% af landsframleiðslu. Lyija- og
hjálpartækjakostnaður utan sjúkrahúsa varð rúmlega 3 milljarðar króna, en það eru um
11% opinberra heilbrigðisútgjalda.
Tafla 5.5 Útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála 1990-1993.
1990 í milljónum króna 1991 1992 Brt. 1993 Hlutfall af VLF 1990 1991 1992 1993
1. Almenn sjúkrahús 13.303 15.030 14.480 15.058 3,75 3,91 3,78 3,79
2. Öldrun og endurhæfmg 3.456 3.831 3.946 3.980 0,98 1,00 1,03 1,00
3. Heilsugæsla 4.098 4.850 4.754 4.763 1,16 1,26 1,24 1,20
4. Lyf og hjálpartæki 3.200 3.070 3.293 3.038 0,90 0,80 0,86 0,76
5. Önnur heilbrigðisútgjöld 1.015 1.153 1.273 1.242 0,29 0,30 0,33 0,31
Opinber heilbrigðisútgjöld 25.072 27.934 27.745 28.081 7,07 7,27 7,24 7,07
í töflu 6.2 í töfluviðauka er að finna fleiri upplýsingar um heilbrigðiskostnað. Þar
má meðal annars lesa að útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála voru ríflega 106
þúsund krónur (verðlag 1993) á mann árið 1993, og höfðu dregist nokkuð saman frá
árunum 1991 og 1992. Kostnaður vegna almennra sjúkrahúsa var rúmlega 57 þúsund
krónur á mann, vegna heilsugæslu rúmlega 17 þúsund, vegna öldrunar- og
endurhæfingar rúmlega 15 þúsund og vegna lyija og hjálpartækja 11-12 þúsund
krónur á mann.
Tafia 5.6 Heildarútgjöld til heilbrigðismála 1990-1993.
Ár. Hlutfall heilb.útgj. hins opinbera afVLF Hlutfall heilb.útgj. heimila afVLF Hlutfall heilb.útgj. alls afVLF Hlutfall heilb.útgj. heimila af heildar- heilb.útgj. Heilbrigðis- útgjöld áfóstu verði 1) Heilbrigðis- útgjöld á föstu verði á mann 1)
1990 7,07 1,08 8,15 13,2 100,0 100,0
1991 7,27 1,09 8,36 13,0 103,5 102,3
1992. 7,24 1,26 8,50 14,8 101,6 99,2
1993 brt. 7,07 1,37 8,44 16,2 101,8 98,3
1) Heilbrigðisútgjöld staðvirt með verðvísitölu landsframleiðslunnar.
I töflu 5.6 koma fram upplýsingar um heildarútgjöld til heilbrigðismála hér á landi á
árunum 1990-1993 mælt sem hlutfall af landsframleiðslu. Einnig eru sýnd heilbrigðis-
útgjöld á mann á föstu verði5. Þar sést að á árinu 1993 nam heilbrigðiskostnaður af
landsframleiðslu ríflega 8,4% af landsframleiðslu, en það svarar til um 33,5 milljarða
5 Sjá einnig töflu 6.2 í töfluviðauka. Heilbrigðiskostnaður alls er staðvirtur með verðvísitölu
landsframleiðslunnar. Sjá einnig neðanmálsgrein 2 á blaðsíðu 14.
19