Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Blaðsíða 25
Tafla 6.3 Lántökur með ríkisábyrgð 1988-1992.
1988 1990 1991 1992
í milljörðum króna 21,9 39,1 55,1 70,5
Hlutfall af VLF 8,6 11,0 14,3 18,4
Fjöldi lántakenda 94 187 206 201
7. Alþjóðasamanburður.
í þessum hluta verður stuttlega fjallað um afkoma og umsvif hins opinbera á Islandi
og í öðrum OECD-ríkjum. Tekjuafkoma segir til um hversu vel tekjur hins opinbera
nægja fyrir rekstrar- og fjárfestingarútgjöldum þess. Sé um tekjuhalla að ræða þarf hið
opinbera ijármagn (nettó) frá öðrum aðilum hagkerfisins. A mynd 7.19 má lesa að
tekjuafkoma OECD-ríkjanna hefur versnað verulega síðustu árin. A árinu 1993
mældist tekjuhalli þeirra 4,6% af landsframleiðslu að meðaltali, en aðeins 1% fjórum
árum áður. í Evrópulöndunum mældist tekjuhallinn enn meiri eða í kringum 6,8% að
meðaltali á árinu 1993 en 2b2% fjórum árum áður. Hér á landi var tekjuhallinn 3,3%
árið 1993. Athyglisverð er þróun tekjuafkomunnar á Norðurlöndum, en hún var
jákvæð um 1% af landsframleiðslu árið 1989 en mældist hins vegar neikvæð um 7%
að meðaltali árið 1993. Þar munar mestu um versnandi afkomu hins opinbera í Svíþjóð
og Finnlandi. Ekkert OECD-ríkjanna skilaði tekjuafgangi á árinu 1993.
Umsvif hins opinbera í OECD-ríkjunum hafa aukist verulega síðustu áratugina. Á
mynd 7.210 má meðal annars lesa að heildarútgjöld hins opinbera í þessum löndum
mældust að meðaltali rúmlega 42% af landsframleiðslu á árinu 1993 en rétt rúmlega
28% þremur áratugum fyrr. Hér á landi jukust heildarútgjöldin úr um 26% af lands-
framleiðslu í 38% á sama tíma og á öðrum Norðurlöndum úr 28% af landsframleiðslu í
ríflega 58%. Þar er því um rúmlega tvöföldun útgjalda að ræða á þessu þriggja áratuga
9 Sjá einnig töflu 9.1 í töfluviðauka.
10 Sjá einnig töflu 9.2 í töfluviðauka.
23