Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Blaðsíða 20
12%, fer til annarra fræðsluútgjalda, svo sem til námslána og stjómunarkostnaðar. í
töflu 6.1 í töfluviðauka kemur fram að útgjöld til fræðslumála voru um 85 þúsund
krónur (verðlag 1993) á mann árið 1993. Þar af var kostnaður vegna grunnskóla um 41
þúsund krónur á mann, vegna framhaldsskóla um 19 þúsund krónur og vegna
háskólastigs um 10 þúsund krónur.
Tafla 5.3 Útgjöld hins opinbera til fræðslumála 1990-1993.
í milljónum króna Brt. Hlutfall afVLF
1990 1991 1992 1993 1990 1991 1992 1993
1. Grunnskólastig 8.625 9.844 10.637 10.771 2,43 2,56 2,78 2,71
2. Framhaldsskólastig 4.194 4.693 4.867 4.969 1,18 1,22 1,27 1,25
3. Háskólastig 2.145 2.550 2.456 2.578 0,61 0,66 0,64 0,65
4. Önnur fræðslumál 2.709 3.001 2.619 2.391 0,76 0,78 0,68 0,60
- þar af námslán 2.174 2.432 1.996 1.699 0,61 0,63 0,52 0,43
Opinbcr fræðslumál 17.673 20.089 20.579 20.709 4,99 5,23 5,37 5,21
Langstærsti hluti fræðsluútgjalda hins opinbera eru samneysluútgjöld, eða um 77%
útgjaldanna. Tilfærslur, sem eru að mestu til Lánasjóðs íslenskra námsmanna, vega
einnig þungt í fræðsluútgjöldum, eða um 9V2%. Þær hafa þó dregist saman síðustu tvö
árin, eins og sést töflu 5.3. Opinber fræðsluútgjöld mældust 5,2% af landsframleiðslu
árið 1993 eða 20,7 milljarðar króna.
Tafla 5.4 Heildarútgjöld til fræðslumála 1990-1993.
Ár. Hlutfall fræðsluútgj. hins opinbera afVLF Fflutfall fræðsluútgj. heimila afVLF Hlutfall fræðsluútgj. alls afVLF Hlutfall fræðsluútgj. heimila af heildar- fræðsluútgj. Fræðslu- útgjöld á föstu verði 1) Fræðslu- útgjöld á föstu verði ámann 1)
1990 4,99 0,71 5,70 12,4 100,0 100,0
1991 5,23 0,73 5,96 12,3 105,7 104,4
1992 5,37 0,83 6,20 13,4 106,1 103,6
1993 brt. 5,21 0,88 6,09 14,4 105,1 101,5
1) Fræðsluútgjöld staðvirt með verðvísitölu landsframleiðslunnar.
í töflu 5.4 má lesa að heildarútgjöld til fræðslumál eru um 6,1% af landsframleiðslu
hér á landi árið 1993, en það svarar til um 24,2 milljarða króna. Árið 1990 var
samsvarandi hlutfall 5,7% af landsframleiðslu. Um 141 /2% útgjaldanna eru fjár-
mögnuð af heimilunum og hefur þáttur heimilanna farið vaxandi. Þá má lesa að á föstu
verði hafa fræðsluútgjöldin vaxið um 5% síðustu þrjú árin og á mann um 11/2 prósent.
5.2 HeilbrigðismáL
Heilbrigðisútgjöld hins opinbera voru rúmlega 28 milljarðar króna á árinu 1993 eða
um 7,1% af landsframleiðslu, en það hlutfall hefur haldist tilölulega stöðugt síðustu
sex árin. Langstærsti hluti heilbrigðisútgjalda hins opinbera eru samneysluútgjöld, eða
um 96%. En samneysla er kaup hins opinbera á vöru og þjónustu til samtímanota.
Afgangurinn er Qárfesting og tilfærslur. Af heildarútgjöldum hins opinbera fara ríflega
18% til heilbrigðismála.
18