Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Blaðsíða 23
vegar börn, svo sem með rekstri bamaheimila, og hins vegar aldraðra, eins og með
rekstri elliheimila. Samneysla ríkissjóðs á þessu sviði var að mestu þjónusta við
fatlaða. Afgangurinn var samneysla almannatrygginga. Ríflega tveir þriðju hlutar af
heildarsamneyslu hins opinbera í velferðarmálum er launakostnaður. Fjárfesting hins
opinbera í velferðarmálum varð um 11/2 milljarður króna á árinu 1993. Þar af var
fjárfesting sveitarfélaga um þrír ijórðu hlutar hennar, en þar taka dagvistunarheimili
bama og heimili aldraðra stærsta hlutann. Fjárfesting eða Qármagnstilfærslur ríkisins
fara að mestu til stofnana fatlaðra, en aðstaða aldraðra fær einnig sinn skerf.
í töflu 6.3 í töfluviðauka er að finna fleiri upplýsingar um útgjöld til almanna-
trygginga og velferðarmála. Þar má meðal annars lesa að útgjöld hins opinbera til
þessa málaflokks voru ríflega 109 þúsund krónur (verðlag 1993) á mann árið 1993, og
höfðu aukist jafnt og þétt frá fyrri árunum. Kostnaður vegna elli-, örorku- og
ekkjulífeyris var um 55 þúsund krónur á mann á því ári og vegna atvinnuleysisbóta 10
þúsund krónur.
6. Skuldir og lánastarfsemi hins opinbera.
Hið opinbera er umsvifamikill lántakandi og lánveitandi í hagkerfinu, sömuleiðis
ábyrgist það í ríkum mæli lán ýmissa aðila. Það getur því með lánastefnu sinni haft
margþætt áhrif á starfsemi hagkerfisins, svo sem á sparnað og ráðstöfun sparnaðar
þjóðarbúsins, uppbyggingu atvinnulífsins, vexti og starfsemi lánamarkaðarins
almennt. Það er því mikilvægt að gera sér grein fyrir umfangi þessa þáttar. Rétt er þó
að benda á, að lántaka eða lánveiting getur haft mismunandi áhrif á hagkerfið efitir því
hvemig fénu er varið. Á árinu 1993 var hrein lánsfjárþörf hins opinbera rúmlega 14'/2
milljarður króna eða 3,7% af vergri landsframleiðslu, og kröfu- og hlutafjáraukningin
1,7 milljarðar króna eða um 0,4% af VLF. Hér er um nettóstærðir að ræða þannig að
umsvif hins opinbera á lánamarkaðnum eru umtalsverð.
Tafla 6.1 Lánastarfsemi hins opinbera 1991-1993._______________________________
í milljónum króna Brt. Hlutfall af tekjum Hlutfall afVLF
1990 1991 1993 1991 1992 1993 1991 1992 1993
Tekjuafgangur/halli -11.624 -11.221 -12.936 -8,52 -8,09 -9,39 -3,03 -2,93 -3,26
Kröfu- og hlutafjárútgjöld 5.982 -1.425 1.706 4,38 -1,03 1,23 1,56 -0,37 0,43
Hrein lánsfjárþörf 17.606 9.796 14.642 12,90 7,07 10,63 4,58 2,56 3,68
Á mynd 6.18 kemur fram að vergar skuldir hins opinbera hafa vaxið hröðum
skrefum síðustu árin. í árslok 1993 er talið að þær hafi numið ríflega 200 milljörðum
króna eða um 51,2% af landsframleiðslu og eru þá hvorki Iífeyrisskuldbindingar
ríkissjóðs né sveitarfélaga taldar með, en lífeyrisskuldbindingar A-hluta ríkissjóðs
náum um 58 milljörðum króna í árslok 1992. Af skuldum hins opinbera eru um 52%
frá erlendum aðilum. Þá kemur fram á myndinni að útistandandi kröfur hins opinbera
hafa staðið í stað eða minnkað á liðnum árum. I árslok 1993 voru þær ríflega 22% af
landsframleiðslu. Hreinar skuldir hins opinbera hafa því margfaldast allra síðustu árin,
8 Sjá einnig töflu 7.1 í töfluviðauka.
21