Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Side 11

Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Side 11
1. Inngangur. Rit þetta ijallar um búskap hins opinbera, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almanna- tryggingakerfis. Ritið, sem er númer 12 í ritröð Þjóðhagsstofnunar um þjóðhags- reikninga nær sérstaklega til áranna 1990-1992 og er framhald rita um sama efni, sem komu út í ársbyrjun 1983, 1986, 1991 og 1993, og náðu yfir tímabilin 1945-1980, 1980-1984, 1980-1989 og 1980-1991. I ritinu er "hið opinbera" í meginatriðum notað sem heiti á starfsemi sem tekna er aflað til með álagningu skatta en ekki með sölu á vöru og þjónustu á almennum markaði. Af þessu leiðir að starfsemi fyrirtækja og sjóða í eigu ríkis og sveitarfélaga fellur utan við efni ritsins, nema að því marki sem þessir aðilar eiga viðskipti við hið opinbera. Að því er ríkissjóð varðar fellur þessi skilgreining að mestu að A-hluta ríkisreiknings og hvað sveitarfélög varðar að sveitarsjóðum. Reikningakerfi opinbera búskaparins, eins og það birtist í þessu riti, er hluti af stærra reikningakerfí fyrir þjóðarbúskapinn í heild og er unnið samkvæmt reglum Sameinuðu þjóðanna um gerð þjóðhagsreikninga. Birt eru sérstök yfirlit um ríki, sveitarfélögin í heild og almannatryggingakerfið hvert um sig og síðan eru dregnar saman tölur fyrir hið opinbera í heild. Þessi yfirlit eru þrískipt. í fyrsta lagi er tekju- og útgjaldareikningur, sem sýnir tekjur og rekstrargjöld á hverju ári. I öðru lagi er yfírlit um fastafjárútgjöld, en þar færist meðal annars ijármunamyndun og fjármagns- tilfærslur ársins. Að lokum er svo fjárstreymisreikningar, sem sýna kröfu- og hlutafjárbreytingu hins opinbera og lána- og sjóðshreyfíngar þess á hverju ári. Ritið skiptist í átta hluta, auk töfluhluta. I öðrum hluta er vikið að afkomustærðum hins opinbera, í þriðja hluta umsvifum þess og í fjórða hluta tekjum þess. Þá er í fímmta hluta Qallað um útgjöld hins opinbera. í sjötta hluta er að fínna umfjöllun um skuldir og lánastarfsemi hins opinbera. I sjöunda hluta er gerður stuttur alþjóðlegur samanburður. Að síðustu eru í áttunda hluta sýndar ýmsar viðbætur við tekjur og útgjöld hins opinbera sem að réttu lagi ættu að teljast með samkvæmt þjóðhags- reikningakerfí Sameinuðu þjóðanna. Svo er þó ekki enn sem komið er en áformað er að bæta úr því síðar. Töfluhluti ritsins skiptist í níu flokka. Fyrst eru yfírlitstöflur, en síðan sundurliðanir á tekjum og gjöldum, s.s. á samneyslu, framleiðslustyrkjum, fjármunamyndun o.fl. Síðast í töfluhlutanum eru viðbótartekjur og -útgjöld hins opinbera flokkuð eftir tegund og viðfangsefnum. Heimildir um búskap hins opinbera eru að mestu leyti unnar upp úr reikningum ríkissjóðs, sveitarfélaga og Tryggingastofnunar ríkisins. Reikningar ríkissjóðs hafa nær eingöngu verið unnir upp úr A-hluta ríkisreiknings, sem nær yfír skatttekjur og ráðstöfun þeirra. I B-hluta eru hins vegar færð fyrirtæki ríkisins, ýmsar lánastofnanir o.fl. Urvinnsla úr reikningum sveitarfélaganna hefur fyrst og fremst miðast við hina eiginlegu bæjarsjóðareikninga, en þar eru færðar skatttekjur og ráðstöfun þeirra. Efni fyrir hreppana hefur verið unnið upp úr reikningum helstu hreppa, nokkuð breytilegt efitir árum. Þessi úrvinnsla er síðan notuð til viðmiðunar við áætlun fyrir aðra hreppa og sýslufélög. Þá liggur fyrir uppgjör Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, en Jöfnunarsjóður er hér færður sem hluti af búskap sveitarfélaganna. 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Búskapur hins opinbera 1992-1993

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búskapur hins opinbera 1992-1993
https://timarit.is/publication/1005

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.