Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Blaðsíða 3

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Blaðsíða 3
„SKIP TVÖ STRIK Á BAKBORÐA". „Skip framundan tvö strik á bakborða", söng í varðbergsmanninum uppi á fram- siglupallinum á skonnortunni „Joe Lane“ aðfaranótt 12. október 1858, er skipið var statt.í Mexikóflóanum. En köll hans heyrð- ust varla niður á þilfarið. Vindurinn tæt- ir sundur orðin, þau fjúka út í óravíddir úthafsins, kafna í þyt stormsins í rá og reiða. Hásetinn við stýrið, Jacky Coogan að nafni, hlustar á nið sjávarins og hann horfir á hvíta öldufaldana í skini Ijóss- ins, sem skonnortan varpar á hafið í næsta umhverfi. Vikadrengurinn ber boðin frá varðbergs- manninum til hásetans, hann setur hend- urnar fyrir munninn eins og trekt og endurtekur syngjandi rómi: „Skip tvö strik á bakborða!" Nú heyrast boðin betur en ofan úr siglutrénu í tólf metra hæð. Stýrimaðurinn, Ben Cliff, hrekkur við. Hann var niðursokkinn í liugsanir sínar þessa lc'ingu vakt, eins og svo oft áður. Fyrir stundu hafi vindáttin orðið nokk- uð suðlægari og hann er ekki eins hvass og áður. Stefnan er suð-suðaustur. Joe Lane liggur með vindi og er með rifuð segl. Ben Cliff, annar stýrimaður á tollskút- unni Joe Lane, í þjónustu Bandaríkja- stjórnar, grípur stóra sjónaukann og leitar með honum um sjóndeildarhringinn á bakborða. Skyggni er slæmt og erfitt að festa sjónir á nokkrum hlut vegna sjó- gangsins. Hann klifrar upp á stýrishúsið, og þá fyrst sér hann skipið. En skipið sézt ógreinilega, því það er langt í burtu, en það virðist stefna beint til strandar- innár. „Ef þetta er kaupskip á leið til New Orleans, þá er þetta þrísiglda skip full vestarlega á ferðinni," hugsar stýrimaður- inn. En það er þó ekki vegna þess, að þessi ungi sjómaður finnur hjá sér hvöt til að skoða Jretta ókunna skip dálítið ná- kvæmar í sjónaukanum. Prísiglda skipið siglir Ijóslaust! Og samt er það tiltölulega nærri ströndinni. Stefnu- mót skipa! Lað er raunar ekki ótítt á þess- um slóðum, og hér getur varla verið um annað tilefni Jressa undarlega framferðis að ræða. Og með skírskotun til þessa tek- ur annar stýrimaður sínar ákvarðanir. „Vektu skipstjórann", skipar hann vika- drengnum, „og báðar vaktir á þilfar!“ „Já, já, Sir“, syngur pilturinn, ber hægri hönd upp að sjóhattinum og hverfur eins og örskot niður í káetuna. Stýrimaður skipar nú hásetanum við stýrið að beita nokkuð frá vindi og eykst Jtá skriðurinn um nær fulla mílu. „Álveg er hún eins og reiðhestur, sem er hvattur sporum,“ hugsar stýrimaður með velþóknun. Svo skjótt lætur skonn- ortan að stjórn. Tollskútan á nú að varna óþekkta skipinu leiðina til strandar. „Við ættum að hittast um þrjár mllur undan ströndinni og eftir hér um bil tvær stundir", heldur Ben Cliff áfram’ og bregður enn fyrir sig sjónaukanum. Ó- kunna skipið sést enn frá þilfarinu. Það

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.