Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 7

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 7
Nýtt S. O. S. 7 .Svo kalla sjómennirnir svörtu þrælana frá Gullströridinni, sem alltaf er verið að smygla inn í Bandaríkin enda þótt sam- veldisþingið hafi fyrir löngu bannað þrælasölu með lögum og einnig innflutn- ing svartra manna gegn vilja þeirra. En hverju skiptir þrælasalan þá háu herra í Washington? Hað koma þeim við alþjóðasamþykktir, sem hafa sagt allri þrælasölu stríð á hendur? Þeir hafa bara áhuga fyrir dollurum, öðru ekki. Góðum, gullnum dollurum, sem fljóta í stríðum straumum fyrir svörtu þrælana. Já, að baki Mexikóflóans liggja Suðurríkin. Hin- ir voldugu plantekrueigendur, drembilát- ir landherrar, sem ráða yfir landsvæði á :stærð tið smáríki í Evrópu, jDurfa jafnt •og ])étt ódýran vinnukraft á ekrurnar sín- ar. Fyrir stóran og stæðilegan negra, hvers ] íkamsbýggíng gefur vonir um ábatasaman vinnuþræl, eru greiddir 300 dollarar. Það er verzlun, þar eru möguleikar á gróða! Varan kostar ekki mikið í Afríku. Oft Jiarf ekki annað en láta þorpshöfðingjann fá dálítið af ódýru glingri eða þá nokkur skothylki. Og svo fyllast lestarnar af svört- um mönnum, sem eru hlekkjaðir saman. Hvað varðar þrælaskipstjórana um það, þó þeir hafi hrifið þá brott frá konum og börnum? Hvað varðar þá um það, þó þessir ógæfumenn líti aldrei framar ætt- land sitt? Fyrir þeim eru mennirnir í lestinni bara farmur. Gróðavænlegasti farmur, sem völ er á. 100 negrar? Þeir komast fyrir í fremri lestinni. Þétt við þétt og keðjurn- ar, sem þeir eru bundnir við, svo stutt- ar, að þeir geta varla risið upp við dogg. Og svo er annað hundraðið stjórnborðs- niegin og loks fimmtíu í afturlestina. Þetta gerir samtals 350! Kostnaðurinn er hins vegar ekki mik- ill. Maturinn er miðaður við það, að negr- arnir drepist ekki úr hungri, og helzt verður að gæta þess, að þeir verði ekki svo illa haldnir, er þeir koma á markaðinn einlivers staðar í Suðurríkjunum, að þeir geti ekki staðið á fótunum. Þrælasalinn gerir ráð fyrir, að einn þriðji týni tölunni vegna hungurs og veik- inda, þá eru eftir a. m. k. 200 negrar, sem verður söluvarningur. Hver þeirra gefur af sér a. m. k. 150 dollara. Það ger- ir hvorki meira né minna en 30 000 gull- dollara! 3000 fara í kaup handa áhöfninni og aðrir 3000 til yfirmannanna og eru þá eftir 24.000 dollarar lianda skipstjóran- um. Og tvær ferðir er hægt að fara á ári, stundum þrjár. Góð kauphöndlan, góðir hálsar, ábatasöm verzlun! Þessi verzlun kostar blóð og tár, glæp- samlegasta verzlun, sem nokkru sinni hef- ur verið rekin í heiminum. Og áhafnir þrælaskipanna eru úrhrök hafnarbæjanna! áVashington gnístir tönnum, og reynt er að styrkja aðstöðuna á sjónum. Bretar og Frakkar láta herskip njósna við Gull- ströndina. Vei þeim þrælasala, sem brezkir sjó- menn klófesta. Þeir hafa sína aðferð við þá. Mjór kaðall er bundinn um hvorn úlnlið og þannig er viðkomandi þræla- sali hengdur upp á rá. Þegar þeir hafa liangið svona nokkrar klukkustundir, hlakka þeir til að dingla í gálganum! Og amerísku strandverðirnir vanda þeim heldur ekki kveðjurnar. „Undir ránni er nóg pláss og í landi bíður gálg- inn,“ var kjörorðið á þessum umbrota- sömu árum fyrir borgarastyrjöldina. Hins \ægar er það svo, að það eru nær eingöngu Norðurríkjamenn, sem halda uppi gæzlu-

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.