Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Side 9

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Side 9
Nýtt S. O. S. 9 átundu var Ray Rosen foringi og jafn- framt skipstjóri á nýju strandgæzluskipi. Nú var liann stjórnandi hins fyrsta stóra •gæzluskips, er var gefið nafnið „Cambell“. Skipið var smíðað í Porthmout í Virgin- íafylki og síðar þrjátíu skip af sömu gerð. Skipin voru 34 metra löng, stórsiglan 18 metrar á hæð, breiddin 5,30 metrar, Jrar sem skipið var breiðast. Skipasmíðastöðin Graves og Feulio, er vann verkið, skildi til fulls hlutverk sitt. Stefnið var hnífskarpt, siglutrén há. Skipin áttu að vera hraðskreið og góð sjóskip. En þá er ótalin merkileg nýung. Á fram- lyftingu var komið fyrir tólf punda fall- byssu á snúningsskífu. Það er því auðvelt að beina fallbyssunni hvert sem vera vill á svipstundu. Afturá eru hinsvegar tvær sexpunda fallbyssur. Slík skip áttu að geta ráðið niðurlögum hvers einasta sjóræn- ingja og smyglara! En jrrátt fyrir þetta undruðust menn rnjög, að Ray Rosen, þessi ungi skipstjóri, •s'kýldi talca í sínar hendur forystuna yfir þrem liðsforingjum, átján hásetum og þrenr vikadrengjum á Cambell. Vinir hans ypptu öxlum og venslafólk hans sagði, að hann mundi varla með öllum mjalla. Hann hefði liafnað glæsilegri framtíðar- stöðu, sem hefði komið honum í álnir, en þess í stað tekið lítt launaðri stöðu yfirforingja á tollgæzluskipi. Þessu svaraði Ray Rosen ávallt á sama hátt: „Einhver verður að taka starfið að sér, og sá sem það gerir er ég. Já, ég geri þetta, og þar að auki hópur manna, sem fetar í mín spor, nú og seinna!“ Þetta var allt, sem Ray Rosen hafði um þetta mál að segja. Og brátt kom að því, að fjöldi ungra og efnilegra manna bauð sig fram til gæzlustarfa við ströndina. Það þótti eftirsóknarvert, að starfa undir merki gyllta arnarins og einkunnarorðun- um „Semper paratus“. Alexander Hamil- ton og forsetinn Abraham Linroln sögðu, að hið erfiða hlutverk strandgæzzlunnar yrði ekki falið öðrum en úrvalsmönnum.

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.