Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 21

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 21
Nýtt S. O. S. 21 að farm sinn í liafið. Og í Mexikóflóan- um úir og grúir af hákörlum! Undir fullum seglurn hefur Joe Lane næstum siglt fyrir tangann, sem skilur milli þeirra og þrælaskipsins. Þrælaskip- ið hlýtur að koma í augsýn þegar minnst varir, skipið og bátar þess. Skipstjórinn sensrur hröðum skrefum út að kutborðs- síðu. „Fallbyssurnar tilbúnar?" spyr hann enn einu sinni skytturnar fram á. Texasbúinn við stafnbyssuna lyftir hend inni til samþykkis. Og fallbyssuskytturn- ar við báðar byssur afturá svara játandi: „Aye (já), Sir. Erum tilbúnir að skjóta.“ „Verið þá viðbúnir. Skjótið fyrst reiða- búnaðinn og mín vegna má skjóta þilfar- ið í tætlur, en munið, að skjóta ekki í skrokkinn, því þá gerið þið meira ógagn en gagn. Sá djöfull skal ekki ganga okkur úr greipum. Og við náum þá líka þrælun- um. En auðvitað vil ég ná þeim lifandi: þið skiljið það, er ekki svo?“ Joe Lane siglir nú inn í næstu vík og fer svo mikinn, að freyðir mjög um bóga. Það er næstum eins og skonnortan sjálf viti, að allt velti nú á henni. Á hraða hennar og skothæfni Texasbúans í fram- stafni. Og eitt, eitt er víst: Áhöfn þræla- skipsins blýtur að verða þess vör í hvaða andrá sem vera skal, að því er veitt eft- irför. Það er einvörðugu því bragði skip- stjórans að þakka, að sigla fast upp við land, en koma ekki af hafi, að skonnortan skuli ekki hafa verið séð fyrir löngu. Þessir piltar á þrælaskipinu munu vissu- lega ekki eyða tímanum í það, að bíða þess, hvað þessi aðvífandi skonnorta ætl- ast fyrir. Smyglarar eru fljótir að taka á- kvarðanir. Og ekki sízt, þegar um þeirra eigið líf er að tefla. Þess er heldur ekki langt að bíða, að eithvað gerist. Joe Lana er ekki komin nerna nokkur hundruð metra inn flóann, er dimmur skothvellur hveður við í landi og rautt blys flýgur upp frá trjátoppi, upp í blá- an himininn í stefnu á tollgæzluskipið. Nú eru hendur látnar standa fram úr ermum á barkskipinu. Þar hefur hver ein- asti maður af áhöfninni verið viðbúinn. Frá Joe Lane er hægt að sjá hverja þeirra hreyfingu, því loftið er óvenjulega tært; skúrin í gær hefur hreinsað loftið.' Eins og þegar tjöld eru dregin fyrir á leiksviði að sýningu lokinni. eru rásegl- in dregin upp og barkskipið snýr stefni til hafs. Jacky Coogan heldur í sömu átt eins og ósjálfrátt, en þá kveður við hörku- lég skipun skipstjórans: „Haltu stefnunni milli strandarinnar og bátsins, sem er full- fermdur mönnum. Láttu hann ekki kom- ast til lands.“ Andartak eru skipverjar á tollskipinu sem steini lostnir, er þeir heyra þessa skipun. Báturinn er þéttsetinn svörtum' mönnum, sem eru hlekkjaðir saman. Bát- urinn er svo sem í einnar mílu fjarlægð frá ströndinni. Það er róið knálega til lands, en ræðarana grunar ekki enn hvað skipstjórinn á tollgæzluskipinu ætlazt fyrir. Þeir ganga að því gefnu, að skúta muni fylgja barkskipinu eftir, en alls ekki skips- bátnum. Þegar skútan eltir þá, en lætur bark- skipið afskiptalaust, vita þeir fyrst, hvað klukkan slær. Áratogin verða enn ákaf- ari og ræðararnir komast úr jafnvægi. „Mr. Loges“, er kallað úr afturlyfting- unni, „erum við ekki að komast í skotmál við ströndina?“ „Jú, Sir, svo er“, svarar stórskotafor-

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.