Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Page 35
Nýtt S O S 35
SOS og loftskeytatækin
Guglielmo Marconi er almennt talinn
liafa fundið upp loftskeytatækin. Og þetta
er rétt, þótt eigi megi gleyma því að áður
höfðu ýmsir hugvitsmenn rutt brautina
fyrir hann með tilraunum sínum, og þar
með lagt undirstöðuna að þessari stór-
merku uppgötvun.
Marconi sótti fyrst um einkaleyfi fyrir
loftskeytatæki sín árið 1896. Tilraunum
hans hafði þegar í upphafi verið beint
að sjónum. Honum var það Ijóst, að með
þessum tækjum væru leiðir fundnar til
þess að rjúfa að fullu hina aldagömlu þögn
úthafsins.
Fyrst í stað voru tækin afar veik, en
styrkur þeirra fór vaxandi, og að ári liðnu
drógu þau 10 rnílur, miðað við, að sent
væri yfir sjó eða flatlendi. Eftir 4 ár
drógu þau 200 mílur. Sem öryggistæki á
sjó fengu þau eldvígslu sína árið 1899. í
desember árið áður voru loftskeytatæki
sett í vitaskipið á East Goodwin-grynning
unum við suðurströnd Englands. Stöðin
var mjög fábrotin og flutt út í skipið á
lítilli bátkænu.
3. marz 1899 varð vitaskipið fyrir alvar-
legum skemmdum af völdum ásiglingar.
Var þá í fyrsta skipti í sögunni send hjálp-
arbeiðni frá nauðstöddu skipi með loft-
skeytatækjum.
Dráttarbátar kornu þegar á slysstaðinn
og drógu vitaskipið til lands.
Fyrsta verzlunarskipið, sem sett voru í
loftskeytatæki var þýzka skipið Kaiser Wil-
helm der Grosse. Það var í marz árið 1900.
Arið 1904 höfðu mörg þeirra skipa, er
um úthöfin sigldu, tekið loftskeytatækin í
þjónustu sína. Loftskeytamennirnir brezku
höfðu flestir verið símritarar áður. Þeir
fluttu ekki aðeins símritunarprófið með
sér inn á hið nýja starfssvið sitt, heldur og
margt af þeim skammstöfunum, sem not-
aðar eru í ritsímaviðskiptum. Meðal
þeirra var skammstöfunin CQ, er notuð
var til að vekja athygli símritaranna al-
mennt, þegar sendar voru tilkynningar,
er alla varðaði jafnt.
A alþjóðafundi, sem haldinn var í Ber-
lín 1903 til undirbúnings skipulagningar
loftskeytaviðskipta í heiminum, kom fram
það sjónarmið, að nauðsyn væri, að ákveð-
ið yrði sérstakt neyðarmerki, er frorgangs-
rétt hefði í viðskiptum fram yfir afgreiðslu
almennra skeyta. Árið 1904 birtir svo
Marconi-félagið tilkynningu til loftskeyta-
manna, um að þeir noti bókstafina CQD
í neyðartilfellum.
Önnur ráðstefna um loftskeytaviðskipti
var haldin í Berlín 1906 og tóku 30 þjóð-
ir þátt í henni. Ekki varð mikið ósam-
komulag um val neyðarmerkis á þessarir
ráðstefnu. Þýzk skip höfðu valið sér í
þessu skyni bókstafina SOE, og vildu Þjóð-
verjar gera þá að alþjóðlegu neyðarmerki.
Samþykkt var þó að breyta um stafinn E
í merkinu og setja S í staðinn, vegna þess
að stafurinn E væri aðeins einn depill og
gæti hæglega dottið niður ef um lofttrufl-
anir væri að ræða.
SOS hlaut alþjóðlega staðfestingu árið
1908, þótt stundum heyrðist fyrst í stað
eftir það gamla neyðarmerkið CQD, eink-
um frá brezkum skipum.
En frá þessum tíma hefur SOS verið