Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Side 19
Andlit fyrsta stýrimanns varð náfölt. Nokkra stnnd horfði hann þegj-
andi á skipstjórann, þá snérist hann á hæli og skundaði út úr íbúðinni.
Tónar danshljómsveitarinnar heyrðust vel, er hann opnaði dyrnar. Hurð-
in féll harkalega að stöfum á eftir honum.
MILJÓNERINN í LÍKKISTUNNI.
Wilmott skipstjóri var inni í þröngum kortaklefanum, sem var bak við
rúmgott stýrishúsið. Hann hélt á mælistiku í hendinni. Hann virtist
nokkuð annars hugar, því stundum stakk hann smágöt á sjókortið með
hvössum oddi mælistikunnar.
„Eg hef hingað til ekki haft á móti fyrirætluunum yðar, hetra pró-
fessor," sagði hann og leit á þennan litla svartklædda rnann, sem liafði
kynnt sig fyrir skipstjóranum sem Mahony prófessor. „Hinsvegar get ég
ekki fallist á, að veita yður upplýsingar um hluti, sem einvörðungu
snerta skipstjórnina og skipafélagið, sem ég vinn hjá.“
„Eg þarf heldur ekki upplýsinga yðar við um þá hluti, skipstjóri. í
kstunni er lík Mr. Gouldenfields, sem lézt fyrir skömmu í Havanna. Það
er ekki til sá maður í Havanna, sem ekki veit um eiganda Rosy-gim-
steinanna, sem enn sem komið er hafa einungis fært eigendum sínum
óhamingju! Eg veit, að gimsteinninn er hérna um borð! Fínslípaður
kristalsflöturinn getur sagt raunasögu, það er saga um mörg tár. Böl-
bænir fylgja hinum látna og mikið ólán mun af steininum hljótast.“
Wilmott reis á fætur og stóð andspænis þessum lágvaxna manni, sem
enn hélt á regnhlífinni sinni.
„Hvað óskið þér eiginlega, að ég geri, herra prófessor? Eg er litlu
nær um erindi yðar.“
„Eg fer fram á, að þér leyfið mér að biðjast fyrir við líkbörur Gould-
fields. Og það eins fljótt og við verður komið. Eg hef í mér kraft til þess
að létta af honum fargi þeina bölbæna og haturs, sem fylgja honum
annars út yfir gröf og dauða. Eg sárbið yður í nafni allra farþeganna.“
Wilmott skipstjóri hristi höfuðið.
„Tími minn er of dýrmætur til þess, að ég geti varið honum til þess
að hlusta á þetta og annað eins.“
„Þér munið iðrast þess að veita mér ekki þetta leyfi, herra skipstjóri.
já, þér iðrist þess áreiðanlega, Wilmott skipstjóri. En ég mun koma
aftur. Verið þér sælir.1'
Nýtt S O S
19