Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Síða 20
Er maðurinn var farinn gerði skipstjóri II. birgðaverði orð að finna
sig-
„Eg hef breytt ákvörðun rninni varðandi Rosy-gimsteininn, Mr. Morr-
is. Komið hingað til mín með hann. Eg ætla að læsa hann inni í minni
eigin geymslu.“
„Er brynvarið geymsluhólf mitt ekki öruggara?"
Wilmott skipstjóri svaraði engu þessari athugasemd.
„Allt í lagi, skipstjóri!“ Morris hneigði sig.
„Eg kem aftur að tíu mínútum liðnum.“
Chepstew, fjórði vélstjóri, horfði forvitnisaugum af efri hluta véla-
rúmsins til íþróttaþilfarsins. Mabel Davis var rétt í þessu að stinga sér
af efsta þilfarinu niður í sundlaugina. Það hvítmataði í augu hans í
olíumettuðu andlitinu. Chepsterv hélt sér með báðum höndum í hand-
riðið. Heitt loftið streymdi upp, en hafgolan blés því á brott, er upp var
komið.
Nú kom höfuð sundkonunnar í ljós undan yfirborðinu. Chepstew
sá, að Banbury beygði sig fram yfir laugarbarminn, sem var alsettur
grænum flísum, og dró rennvota stúlkuna inn á þilfarið með sterkum
höndum sínum. Chepstew giotti háðslega. Þá sleppti vélstjórinn taki á
handriðinu og fór niður í molluheitt vélarýmið.
Það var annar heimur þarna niðri en úti á breiðum þilförunum, þar
sem léttklæddar meyjar undu löngum, eða á íþróttasvæðinu með sund-
lauginni og mislitum sólhlífum, þar sem karlar og konur sátu í þægileg-
um körfustólum og létu færa sér kampavín eða hvítan bordeaux með
humarsneiðum.
Á efri vistarverum skipsins skorti ekkert á hvern þann íburð, sem
færustu sérfræðingar í byggingarlist gátu upphugsað. En niðri var hinn
heiti heimur, kæfandi hiti með allskonar leiðslum og rörum, járni og
stáli. Risatúrbínur Morro Castle knúðu skipið um heimshöfin með
hraða járnbrautarlestarinnar.
Þegar Chepstew var kominn niður á miðpallinn, kallaði einn vélstjór-
inn til hans æstur mjög og patandi.
„Það er biluð smurolíuleiðsla!" hrópaði maðurinn. „Við verðum að
taka leiðsluna í sundur og gera við bilunina!"
Chepstew benti á olíutauma, sem láku niður með skilrúminu. „Þeg-
ar ég gekk hérna framhjá áðan, voru hér engir olíublettir!" hrópaði
hann.
20
Nýtt S O S