Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Síða 26
bók Morro Castle. „Sigldum fram hjá Bamegattvita klukkan 1,35. Fjar-
lægð 3 sjómílur."
„Stefna ein gráða á Ambrosevital" skipaði Hackney.
„Ein gráða á Ambrosevita," endurtók maðurinn við stýrið.
Það var rigning og kalt í veðri, austanvindurinn blés með tuttugu
mílna hraða og það var úfinn sjór.
Um klukkan hálf þrjú kom fyrsti stýrimaður upp á stjórnpallinn.
Hann hafði þá sofið um eina klukkustund. „Er nokkuð að?"
„Ekki umtalsvert, Sir. Nokkrir farþegar eru ekki hættir enn og fara
með söng um þilförin.“
„Fjandinn ætti að hirða þál" urraði Warms. „Hvenær versnaði veðrið?“
„Skömmu eftir miðnætti."
„Hefur nokkuð nýtt skeð í vélinni?"
„Tveir katlar bilaðir í viðbót," sagði Hackney. „Viðgerð á að vera
lokið klukkan 3. Abott hefur kallað út vélamenn af frívaktinni. Hann
sagði, að þetta myndi komast í lag.“
„Er Abott líka niðri?“
„Ó nei, hann er fyrir löngu farinn í káetu sína."
Skipið hjó meira og meira, fyrstu brotsjóirnir fóru að segja til sín.
Vaxandi stormurinn söng í reiða skipsins. En nú var ákvörðunarstaður-
inn óðfluga að nálgast.
Niðri í ketilrúminu loguðu björt vinnuljós. Enn var unniS að við-
gerð á kötlunum tveim.
„Helvítis svínarí!" sagði Swift, kyndarinn. sem var að fást við að láta
lokið á aftur. Viðgerðinni er að heita má lokið. Klukkuna vantaði fimrn
mínútur í þrjú. „Á morgun fer ég af skipinu. Morro Castle getur þá
siglt án mín!“
„Ekki á skipið sök á þessu,“ sagði einn kyndaranna.
„Skipið, vinur sæll. Það er hlaðið illvilja og undirferli," svaraði Swift.
„Hver plata, hver hnoðnagli situr um að drepa þig."
„Haldið áfram að vinna, svo þið verðið einhverntíma búnir og kjaftið
minna," sagði Chepstew. „Ef við verðum ekki búnir um klukkan þrjú,
höfum við varla klukkustupnd í kojunni. Eg fer nú. Þið ljúkið við
þetta. Nú er víst varla hægt að segja góða nótt!“
„Heyrðu, maður, hefur þú séð þá svörtu með rauðu skóna?" spurði
Swift félaga sinn, þegar Chepstew var farinn.
„Þá svörtu með rauðu skóna?“ Maðurinn glotti. „Auðvitað hef ég séð
2Ö
Nýtt S O S