Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Blaðsíða 40
inu. Skórnir voru brunnir, fötin rifin og kviknað í þeim. Brunablöðr-
ur voru kornnar á hendur hans.
Þá hljóp hann fyrir borð.
Hann vissi ekki, hve lengi hann hafði verið í sjónum, unz björgunar-
bátur frá „Andrea Luckenback ' tók hann upp.
Báturinn var fylltur skipbrotsmönnum, sem voru hrifnir úr greipum
hafsins. Þá var róið að skipinu.
HVER VAR SEKUR?
Á þennan veg urðu þá endalok Morro Castle.
Eldurinn hafði unnið sitt eyðingarstarf í þessu giæsta skipi: á silki-
klæddum veggjum viðhafnaríbúðanna, viðhafnarsölum, risatúrbínum
þess, matvælageymslum, kampavínskjöllurum og svo framvegis.
Eftir að vindurinn stóð á hlið skipsins hrakti það óðfluga nær strönd-
inni, sem sást greinilega á bakborða í nokkurri fjarlægð og nálgaðist
jafnt og þétt, svo greinilega sást hvítur sandurinn, söluskálar og bað-
strandarhótelin.
Eins og allir New York-búar þekkti fyrsti stýrimaður vel þessa bað-
strönd.
Hún heitir Asbury Park og liggur um 100 km. í suður frá New York.
Þarna var fjöldi lítilla timburhúsa, stór hótel og hressingarheimili.
Straumar og stormur ráku óhappaskipið hægt en öruggt nær þessari
fögrtt baðströnd New York-búa.
Margir baðgestanna, sem skemmtu sér þessa nótt í Asbury Park sáu
eldhafið langt út við sjóndeildarhring. Eldurinn færðist nær og nær og
smám saman kom skipsskrokkur í ljós, óhugnanleg sjón, er brennandi fer-
líkið nálgaðist ströndina.
Fólkið hljóp upp á svalir Covent Hall, sem vissu út að hafinu, og
það horfði út á hafið með undrun og hryllingi.
Hættumerki kallaði björgunarsveit á vettvang.
Þúsundir manna hópuðust út á ströndina. Blaðadrengir, sem komu
með bílum frá New York, hrópuðu ógnarfregnina meðal fólksins:
„Farþegaskipið Morro Castle stendur í björtu báli og nálgast Asbury
Park. Skipið er 11000 tonn og 550 manns er enn um borð.
Fregnin hafði komið eins og reiðarslag yfir New York-búa. Bílar þutu
eftir þjóðveginum til Asbury Park i löngum röðum. Þessi óvenjulegi stór-
40
Nýtt S O S