Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Page 41
atburður hafði lokkað menn út úr vínkránum í Manhattan, þar sem þeir
voru að skemmta sér um nóttina. Nú voru þeir komnir, sumir í kjól
eða smoking og hefðarfrúr í kvöldkjólum með glitrandi gimsteina.
Strandgæzlu- og björgunarliðið kom á vettvang. f»eir mynduðu keðju
meðfram ströndinni og horfðu í nætursjónauka sína út á stormbólgið
hafið.
Og nú sást til björgunarbátanna frá Morro Castle með fyrsta stýri-
mann og síðustu hásetana um borð, sem höfðu loks látið akkeri skipsins
falla óhugnanlega nærri ströndinni.
Skipið brann enn, er síðustu bátana bar inn yfir brimgarðinn.
Morro Castle, hið fyrrum glæsta skip, var nú ekki annað en útbrunn-
in járngrind, horfin af vegum hafsins.
Horfinn var klefinn með líki skipstjórans og horfinn var skipslæknir-
inn, sem snéri við til þess að ná í smásjána sína og beið við það bana.
Horfin var hin glæsilega búna skrifstofa gjaldkerans, horfin brynvar-
in geymslan með gimsteinum og verðbréfum. Hofinn var Rosy-gimsteinn-
inn, sem svo mikilli ógæfu hafði valdið.
Horfin var líka líkkista miljónamæringsins, þar sem hinn gimsteinninn
kann að hafa verið látinn.
Aldrei verður gátan mikla um síðustu nótt Morro Castle leyst að
fullu.
Var Mahony prófessor í raun og veru brjálaður maður? Eða glæpa-
maður, sem leitaði Rosy-gimsteinanna? Aldrei oftar mun hann trufla
ástfangið fólk á efstu þilförum skipa um dimmar nætur.
Aldrei oftar mun Swift kyndari ógna yfirmönnum sínum.
Og hinn látni skipstjóri mun aldrei bera vitni. —
Sjórétturinn hefur dæmt fyrsta stýrimann, William Warms, sekan vegna
þeirrar röngu ákvörðunar hans, að reyna að ná höfn í New York án
aðstoðar. Það var allt og sumt.
Hver kveikti í skipinu? Var þar glæpamaður að verki að sprungin olíu-
leiðsla? Það hefur ekki verið upplýst.
Það eitt þótti sannað, að fyrsti stýrimaður hefði framið hið alvarleg-
asta glappaskot á þessum óhappadegi og algerlega mistekist stjórnin á
skipinu.
4i
Nýtt S O S