Árbók Reykjavíkurbæjar - Dec 1941, Page 6

Árbók Reykjavíkurbæjar - Dec 1941, Page 6
IV út að tilhlutun bæjarfógeta erindisbréf fyrir bæjarfulltrúa í Reykjavík þ. 4. nóv. þ. á. Ráðstöfun þessi átti enga stoð i iögurn. Erindisbréfið hlaut fyrst lagagildi, er Kanselliið staðfesti það, lítið eitt breytt, 16. jan. 1838. Valdsvið hinna kjörnu bæjarfulltrúa var samkv. erindisbréfinu mjög takmarkað, aðeins ráðgefandi vald. Einveldið í Danmörku var nú í upplausn og borgaramir að fá íhlutunarrétt um málefni sín. Sá tími hlaut þvi fyrir rás viðburðanna að nálgast, að Reykja- víkurbær fengi fullkomnari sjálfstjórn en erindisbréf bæjarfulltrúanna frá 1836 veitti honum. Árið 1846 var sett ítarleg reglugjörð um stjórn bæjarmálefnanna í kaupstaðnum Reykjavik, staðfest af konungi 27. nóv. þ. á. Reglugjörðin hafði átt alllangan aðdraganda. Frumvarpið var m. a. lagt fyrir embættismannafundina 1839 og 1841 og hlaut samþykki Alþingis 1845. Með þess- < ari reglugjörð var vald bæjarfógeta sett skör lægra en bæjarfulltrúanna. Hann þurfti nú sam- þykki þeirra til allra framkvæmda. Áhrifum borgaranna á gang bæjarmálanna var enn mjög misskipt, samkv. reglugjörðinni frá 1846. Allur þorri þeirra, tómthúsmennirnir (þ. e. þeir, sem áttu ekki timbur- eða múrhús, né höfðu borgarabréf) áttu aðeins einn af sex fulltrúum (einn af fjórum áður). Aftur á móti höfðu tómt- húsmenn (sem greiddu minnst 2 rd. í bæjargjöld) nú jafnan rétt til kosninga og kjörgengis, í stað þess, að áður höfðu aðeins þeir þann rétt, er bæjarfógeti áleit til þess hæfa. Þessi misskipting á áhrifavaldi borgaranna hlaut, þegar fram liðu stundir og fymtist yfir hin fornu forréttindi, en réttarmeðvitund almennings vaknaði, að vekja óánægju þeirra, er sáu rétt sinn fyrir borð borinn. Auk þess voru sjálfsstjórn bæjarins enn sett allþröng takmörk í reglu- gjörðinni frá 1846, og úrskurðarvald ýmsra mála lagt í hendur stjórnskipaðs embættismanns eða stjómardeilda. Árið 1872, þann 20. apríl, var gefin út tilskipun um bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík, samþ. af Alþingi 1871. Höfðu tómthúsmenn beitt sér fyrir því, að reglugj. frá 1846 yrði breytt. Með tilskipuninni frá 1872 var misskipting áhrifavalds borgaranna ekki alveg afnumin, þótt aðgreining þeirra í tómthúsmenn og aðra borgara hyrfi úr sögunni. Bæjarfulltrúunum, sem máttu ekki vera færri en 7 og ekki fleiri en 13, var skipt í tvo hluta. Meirihlutinn (einum fleiri en minnihl.) skyldi kosinn af öllum, sem kosningarrétt höfðu til Alþingis (og greiddu minnst 4 rd. í bæjargjöld), en minni hlutinn aðeins af V5 hluta kjósendanna, er greitt höfðu hæst bæjargjöld undanfarandi ár. Þessi misskipting áhrifavalds borgaranna var lögð niður með lögum, nr. 86, 22. nóv. 1907, um breytingu á tilskipuninni frá 1872. Frá 1872 til 1902 var tala bæjarfulltrúanna 9. Með sam- þykkt frá 1902 var hún færð upp í 13, en með lögunum frá 1907 upp í 15, og hefir sú tala hald- izt óbreytt síðan. 1 lögunum frá 1907 var ákvæði, sem hafði mjög mikla þýðingu fyrir framgang bæjarmál- anna. Bæjarfógetinn var leystur frá framkvæmd þeirra, en sérstakur framkvæmdarstjóri — borg- arstjóri — skyldi kosinn. Það hafði mjög háð framkvæmd bæjarmálanna, að framkvæmdarstjór- inn — bæjarfógeti — hafði haft mörgum óskyldum störfum að gegna. Á árunum 1806—’74 gegndi hann jafnframt iandfógetaembættinu, en á árunum 1803—’06 og 1874—’78 sýslumannsembættinu í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Bæjarfógeti hafði auk þess alltaf þau störf með höndum, sem eftir- taldir embættismenn nú gegna: Skattstjóri, tollstjóri, lögreglustjóri, sakadómari og lögmaður. Annar veigamesti þátturinn í þróun bæjarmálefnanna en yfirstjórn þeirra og framkvæmdar- stjóm er skipun fjármálanna. Mjög þýðingarmikið skref var stigið í þeim málum með reglugjörð- inni frá 1846, er veitti bæjarstjóminni rétt til skattaálögu. Til þess að standa straum af þeim útgjöldum bæjarsjóðs, er eigin tekjur hans, leigutekjur o. s. frv., hrykkju ekki fyrir, skyldi jafnað niður gjöldum á bæjarbúa, y3 „á byggingar bæjarmanna” (þ. e. húseignir aðrar en torfbæi) og % eftir efnum og ástæðum. Eru þá ótalin útgjöld vegna málefna, er höfðu sérstjóm, „svo sem fátækramálefna, og síðar skólamálefna“, en fjár til þeirra þarfa skyldi einnig aflað með niður- jöfnun eftir efnum og ástæðum. Þessir tekjustofnar reyndust ófullnægjandi, eins og bezt má sjá af því, að finna varð nýjan tekjustofn, áður hægt væri að koma á fót lögskipuðum bamaskóla (sbr. bls. 92). Var í þvi skyni ákveðinn nýr skattur á tómthús og óbyggðar lóðir. Þar með voru í grundvallaratriðum ákvarðaðir þeir skattstofnar, sem bæjarsjóður hefir síðan aðallega stuðzt við (sbr. bls. 108). Ræturnar að skipun margra af máiefnum bæjarins má rekja til stofnunar hans og hinna fyrstu ára í sögu hans. En viðunandi iausn ýmsra þeirra fékkst ekki fyrr en löngu síðar, þrátt fyrir góða viðleitni stjórnarvalda bæjarins. Má þar til nefna brunatryggingamálið. Með lögum og tilskipun frá 14. febr. 1874 var almennum brunatryggingum komið á hér í bæ, en fulltrúar bæjarins höfðu barizt fyrir því máli nær sleitulaust um 40 ára skeið. Hafði það hina mestu þýð- ingu fyrir byggingu bæjarins. Húsin var ekki hægt að veðsetja og fá lán út á þau, nema þau væru tryggð gegn eldsvoða, en erfitt og kostnaðarsamt var fyrir einstaka menn að fá húsin tryggð erlendis.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222

x

Árbók Reykjavíkurbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Reykjavíkurbæjar
https://timarit.is/publication/1047

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.