Árbók Reykjavíkurbæjar - jul. 1953, Side 154
136
Barnaheimili Reykjavíkurbæjar.
Börn dvalið Reksturskostn. Vistgjöld
Starfs- Dvalar- Alls kr. Pr. Greidd kr. Af
Starfsemi: dagar Alls Meðalt. dagar Rekstur: dvalar- kostn.
Kumbara vogur: d. kr. %
Kumbaravogur:
1945 52 7 5 259 1945 59260 288,80 — —
1946 365 29 14 5137 1946 193787 37,72 49605 25,6
1947 365 30 15 5349 1947 218530 40,85 80883 37,0
1948 365 29 19 6793 1948 203665 29,98 81162 39,9
1949 365 37 19 6966 1949 196107 28,15 80954 41,3
1950 365 22 18 6533 1950 273810 41,91 98929 36,1
1951 365 25 18 6584 1951 339771 51,60 125078 36,8
Hlíðarendi: Hlíðarendi:
1949 92 16 11 983 1949 89074 90,60 8332 9,4
1950 365 50 21 7808 1950 306877 39,30 65373 21,3
1951 365 46 21 7847 1951 381098 48,56 105306 27,6
Silungapollur: Silungapollur:
1950 184 36 17 3108 1950 168410 54,18 19360 11,5
1951 365 49 21 7558 1951 576833 76,32 154955 26,9
Aths.: Eins og fram kemur af skýrslum Barna-
vinafélag'sins Sumargjafar, hefir vistheimilisstarf-
semi félagsins dregizt saman á undanförnum
árum, enda stefnt að þeirri breytingu á starf-
seminni í samráði við Reykjavíkurbæ, og höfðu
vistheimilin alveg lagzt niður í árslok 1951. Bæj-
arsjóður hefir hins vegar tekið upp rekstur vist-
heimila fyrir börn á mismunandi aldri, allt til
fermingaraldurs, einkum vegalaus börn, er þarfn-
ast opinberrar forsjár. Rekur bærinn nú þrjú
heimili af þessu tagi, vöggustofu að Hlíðarenda
við Simnutorg, Reykjavík, fyrir börn innan 18
mánaða, vistheimili að Silungapolli við Reykjavík,
fyrir eldri börn innan skólaskyldualdurs og vist-
heimili að Kumbaravogi, Stokkseyrarhr., Árnes-
sýslu, fyrir börn á skólaskyldualdri. Sækja þau
barnaskóla að Eyrarbakka.
Kumbaravogur: Umdæmisstúkan nr. 1 (þ.e. Suð-
urlands), I.O.G.T., samþykkti á haustþingi sínu
1941 að stofna sumarheimili fyrir börn. Festi stúk-
an kaup á jörðinni Kumbaravogi í Stokkseyrar-
hreppi í því skyni, í marzmánuði 1942. Af stofn-
un barnaheimilis á vegum reglunnar á þessum
stað varð þó ekki, en hins vegar var rekið þar
drykkjumannahæli frá 1. okt. 1942 til vorsins
1945, að það var flutt að Kaldaðarnesi. Rak
Stórstúka Islands hælið til ársloka 1943, en þá
tók ríkisstjórnin við rekstri þess.
Árið 1945 tók bæjarsjóður jörðina ásamt hús-
um á leigu af góðtemplurum til að reka þar
vistheimili allt árið fyrir böm, leigusamningur
undirritaður 26. sept. 1945. Leigutími var ákveð-
inn 5 ár frá fardögum 1945 til jafnlengdar 1950,
leiga eftir eignina 9.6 þús. kr. á ári (án uppbóta).
Viðhald hennar skyldi bæjarsjóður annast á sinn
kostnað, en endurbætur, sem kynnu að verða gerð-
ar á húsum eða jarðnæði með samþykki leigusala,
skyldi hann greiða eftir samkomulagi eða mati.
Leigusali skyldi og greiða alla opinbera skatta af
Framh. af bls. 135.
febr. 1946 og hefir starfað óslitið siðan, ein-
göngu fyrir drengi. Hefir þeirri reglu verið fylgt
að fullskipa skólann ekki strax á haustin, til
að hægt sé að koma þar fyrir á skólaárinu
drengjum, er nauðsynlegt reynist að ráðstafa til
skólavistar utan hinna almennu barnaskóla. Við
skólann hafa starfað skólastjóri og 1—2 kenn-
arar, ráðskona, umsjónarmaður, auk nauðsynlegs
eigninni. — Rekstur heimilisins hófst 10. nóv.
1945.
Auk venjulegs árlegs viðhalds vom á árinu
1947 gerðar allmiklar umbætur á húsum í
Kumbaravogi (m. a. fullgert fjós og hafin rækt-
un), að miklu leyti á kostnað bæjarsjóðs, er
greiddi 44.8 þús. kr. í þessu skyni á árinu 1947.
Voru jafnframt keyptar kýr, kaupv. kr. 3.6 þús.,
svo og hænsni. Árið 1948 nam bústoínsaukningin
5.6 þús. kr. Hefir heimilið nægilega mjólk, egg
og garðávexti til heimilisþarfa.
1 júnímánuði 1950 var samningurinn frá 1945
framlengdur frá þess árs fardögum um 5 ár til
fardaga 1955, með þeim breytingum, að leigan
var hækkuð í kr. 12000, á ári, og skal hún, eftir
nánar tilteknum reglum, breytast samkv. húsa-
leiguvísitölu. Þá skal bæjarsjóður og greiða öll
opinber gjöld af eigninni, þar með talið bruna-
bótagjald.
Hlíðarendi: Haustið 1947 (21. nóv.) samþykkti
barnaverndarnefnd Reykjavíkur að fara þess á
leit við bæjarráð, að húsið Hlíðarendi við Sunnu-
torg, er bæjarsjóður hafði þá keypt, yrði þegar
„tekið í notkun fyrir vöggustofu og aðra þá
starfsemi", er þar gæti farið fram og nauðsyn-
leg væri að dómi nefndarinnar. 1 byrjun des. S.
á. samþ. bæjarstjóm að láta fram fara athugun
á þessu máli, og fól borgarstjóri barnaverndar-
nefnd að hafa hana með höndum. Að tilhlutun
nefndarinnar gerði S. Collin, ráðunautur leik-
vallanefndar, (sbr. greinarg. um leikskóla) til-
lögur og teikningar að breytingu á húsinu, svo
að þar mætti reka vöggustofu. Voru þær til-
búnar í jan. 1948.
Eftir að gerð hafði verið kostnaðaráætlun unf
breytingu hússins, samkv. teikningunum, samþ-
bæjarstjóm í júli 1948 að láta gera umræddar
breytingar á húsinu. Var jafnframt sótt um fjár-
festingar- og innkaupaleyfi til fjárhagsráðs til
starfsfólks. Hefir hann starfað í 8 mánuði á ári,
nema síðasta skólaárið (1951—-’52), þá var starfs-
tíminn lengdur í 9 mánuði.
Um greiðslu kostnaðar við skólahaldið fer eftir
sömu reglum og hinna almennu barnaskóla (sjá
greinarg. um þá), að öðm leyti en því, að ríkis-
sjóður greiðir kaup ráðskonu, á sama hátt °S
við aðra heimavistarskóla (sbr. 1. nr. 34/1946’
51. gr.).