Byggingarlistin - 01.01.1956, Blaðsíða 4
Húsgagnaviimustofa
Friðriks Þorsteinssonar h.f.
Skólavörðustíg 12, sími 3618
smíðar allskonar húsgögn og ínnréttingar
Höfum hafið framleiðslu á linotol-gólf-
Linotol-gólf um eftir uppskriftum frá A/S Linotol
í Kaupmannahöfn. — Linotol-gólf má
leggja á timbur og ópússaðan stein. Neðra lagið er sagsteypa og slit-
lagið asbeststeypa. Neðra lagið má einnig nota undir linoleumdúka
eða teppi. —Linotol-gólfin eru mjög hentug á afgreiðslusali, ganga,
stiga og baðherbergi. — Fimmtíu
ára reynsla tryggir gæðin.
Allar nánari upplýsingar gefur
Pétub SnmAnD
VESTURGOTU 71
SIMI 81950
Arsæll magxússox
Grettisgötu 29 . Sími 4254
Terrazzo
Og
utanhúðunarefni
/■----------------------------N
FRÉTTIR
V_____________________________)
A árinu 1954 áttu sér stað tvær embætt-
isveitingar, sem búsameistarar hafa látið
sig nokkru skipta. Það var skipun Harðar
Bjarnasonar húsameistara í embætti húsa-
meistara ríkisins og skipun Zophóníasar
Pálssonar landmælingamanns í embætti
skipulagsstjóra ríkisins.
Hörður Bjarnason er fæddur 3. nóvem-
her 1910. Lauk hann stúdentsprófi við
menntaskólann á Akureyri árið 1931.
Fyrrihlutaprófi í húsagerðarlist lauk hann
við tekniska háskólann í Darmstadt 1934
og útskrifaðist sem húsameistari frá tekn-
iska háskólanum í Dresden 1937. Að loknu
námi réðist hann sem framkvæmdastjóri
skipulagsnefndar rfkisins og gegndi því
starfi til ársins 1944, er hann var skipaður
skipulagsstjóri ríkisins, en því starfi
gegndi hann til 1. júlí 1954, er hann tók
við embætti húsameistara ríkisins eins og
áður er sagt.
Verk Harðar hafa aðallega verið á sviði
skipulagsmálanna eins og að líkum lætur
og eru margir af núgildandi skipulagsupp-
dráttum bæja og kauptúna í landinu unn-
ir á þeim tíma er hann stóð fyrir teikni-
stofu skipulagsnefndar ríkisins. Af stærri
byggingum eftir Hörð er vert að geta
Hafnarhvols við Geirsgötu í Reykjavík,
stækkun Nýja bíós og Austurbæjarbíó, er
hann hefur unnið í samstarfi við aðra.
Hann hefur einnig teiknað ýms íbúðar-,
verzlunar- og skrifstofuhús. Hörður var
formaður byggingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins frá árinu 1945 þar til að byggingu
hússins var lokið, en síðan hefur hann set-
ið í þjóðleikhúsráði. Hann sat í bygging-
arnefnd Reykjavíkur árin 1937—1954.
Ifann hefur verið formaður í Islandsdeild
„Nordisk byggnadsdag“ síðastliðin fjögur
ár. Einnig hefur hann verið formaður
Húsameistarafélags íslands. Hörður hefur
síðan 1944 ritað þáttinn „Bærinn okkar“ í
dagblaðinu Vísi og auk þess greinar um
skipulags- og byggingarmál í bækur og
tímarit.
Þó að hér verði ekki farið út í að birta
byggingarskýrslu, þykir til hlýta að geta
nokkurra stærri bygginga, sem ýmist eru
á teikniborðinu, rétt hafin bygging á eða
eru næstum fullbyggðar.
Hjá húsameistara ríkisins hefur verið
unnið að ýmsum byggingum s. s. Hjúkr-
unarkvennaskólanum, sem er nú verið að
ljúka og viðbygging við Landspítalann,
sem langt er komið að steypa. Þá má einn-
Framh. á bls. 4.
2
BYGGINGARLISTIN