Byggingarlistin - 01.01.1956, Blaðsíða 18
IIORÐUR BJARNASON :
Tjörnin í Reykjavík og tjarnarsvæðið
Nokkrar hugleiðingar um árangur hugmyndasamkeppni
Tjarnarsvæðið í miðbiki höfuð-
borgarinnar okkar er og verður eitt
viðkvæmasta og þýðingarmesta atrið-
ið til úrlausnar í skipulagi bæjarins.
Þar má engin tilviljun ráða um árang-
ur, enda var það skoðun bæjaryfir-
valdanna, er boðið var til hugmynda-
samkeppni um þetta svæði fyrir
nokkrum árum, til þess að leita sem
flestra góðra úrlausna hjá arkitekta-
stéttinni yfirleitt.
Allmargar tillögur bárust, og verð-
laun voru veitt eftir mati dómnefndar,
en þar fór eins og oft áður, að allmik-
ill ágreiningur varð um niðurstöður
dómnefndar, og sýndist þar hverjum
sitt.
Enga hinna verðlaunuðu tillagna í
samkeppni þessari virtist hægt að taka
eingöngu til greina við hugsanlegar
framkvæmdir, en allar höfðu þær að
sjálfsögðu nokkrar leiðbeiningar um
þau atriði, sem mestu máli skipti, og
þær leiðir, sem í aðalatriðum bæri að
halda.
Arangur samkeppninnar varð því
sá, að allar líkur benda til þess, að
teknar verði til greina hugmyndir,
sem fram komu í öllum hinum verð-
launuðu uppdráttum, og reynt að fella
inn í heildarskipulag.
Samkeppni þessi var mjög lauslega
undirbúin, að því leyti, að verkefnið
var víðfemt mjög og óbundið um
margt, er máli hlaut að skipta. Má þar
nefna staðarval ráðhúss, er sumir
gerðu að aðalatriði við Tjarnarsvæð-
ið, en aðrir slepptu með öllu.
*
Vil ég hér á eftir gera stutta grein
fyrir skoðun minni á einstökum atrið-
um í sambandi við skipulag og fegr-
un Tjarnarsvæðisins, á grundvelli
þess, sem ég hef áður sagt um þessi
mál, og þeim, sem hugmyndasam-
keppnin bar með sér.
Ráðhúsið og staðsetning þess við
Tjörnina, hlýtur að verða það, sem
gengið er út frá sem miðdepli í skipu-
lagi Tjarnarsvæðisins, og hlýtur að
binda það að verulegu leyti, en það er
skoðun mín, að við norðurenda
Tjarnarinnar eigi ráðhúsið að koma.
Allverulegur kostnaður er samfara
því staðarvali vegna uppkaupa lóða
og húseigna, en þar skapast að mínum
dómi fegursti möguleikinn í bænum
fyrir glæsilegri lausn þessarar fvrir-
huguðu byggingar.
Ekki er ég þeirrar skoðunar, að við
Tjarnarendann sjálfan eigi að byggja
allt skrifstofubákn stjórnar bæjarins,
heldur tvískipta byggingarfram-
kvæmdum, þannig að þar komi að-
eins skrifstofur borgarstjóra með
helztu salarkynnum bæjarstjórnar,
móttöku o. s. frv., en í næstu nálægð,
eða þar sem t. d. barnaskólinn stend-
ur nú, komi helztu skrifstofur hinna
einstöku deilda almenningsþjónust-
unnar.
Ef allt þetta væri í einu húsi, mundi
það verða of viðamikið fyrir þennan
stað, og bera umhverfið ofurliði.
I hugmyndasamkeppninni komu
báðir þessir staðir til greina, en á
hvorum um sig er gert ráð fyrir að-
eins einni ráðhúsbyggingu með öllu
skrifstofubákni bæjarins, en báðir eru
staðirnir góðir og vel hægt að fara
eftir báðum tillögum, með tvískiptu
ráðhúsi í stað eins, enda virðist sú
hugmynd mjög hafa rutt sér til rúms
hjá þeim, sem á annað borð eru fvlgj-
andi ráðhússtæði við Tjörnina.
*
Flestar tillögur samkeppninnar
gerðu ráð fyrir miklum stórhýsum
meðfram Fríkirkjuvegi og Tjarnar-
götu.
Ollum slíkum tillögum er ég algjör-
lega mótfallinn. Tjörnin sjálf þolir
engan veginn slíka umgjörð hárra
húsa, og yrði árangurinn aðeins sá,
að allt svæðið missti gildi sitt og
mælikvarða. Ramminn um Tjörnina
verður að vera með lágum bygging-
um, þannig að hún komi ekki fyrir
sem Iítill pyttur, í stað þess að njóta
sín að fullu hvað stærð og fegurð
snertir. Nægilegt er að loka henni að
norðan með myndarlegu ráðhúsi, sem
einnig fær mælikvarða sinn af lágri
byggð á bökkunum beggja vegna.
Annars er í þessu sambandi mikið
vafamál hversu mikið ætti að byggja
við gömlu Tjarnarbrekkuna. Kæmi
þar vissulega til greina að gera það
svæði að óbyggðum trjágarði, en
brekkan sjálf frá Tjarnargötu upp að
Suðurgötu nýtur sín vel sem jafnvægi
við lágreista byggð á bakkanum and-
spænis.
Byggðin við Fríkirkjuveginn ætti
að halda óbreyttri húsalínu að mestu,
allt frá Skothúsvegi a. m. k. að Skál-
holtsstíg, og garðar framan við húsin,
opnir að götu, líkt og nú hefur verið
gert á nokkrum hluta svæðisins.
Meðfram Fríkirkjuvegi, úti í
Tjörninni, mætti koma fyrir verkum
myndhöggvara í sambandi við litla
upplýsta gosbrunna, eins og tillögur
hafa komið fram um, ef búið er að
ganga vel frá umgerð vatnsflatarins,
dýpka og byggja upp Tjarnarbotninn.
Ein tillaga samkeppninnar um
Tjarnarsvæðið var þess eðlis að
leggja niður Skothúsveg yfir Tjörn-
ina, og setja í þess stað smágöngu-
16
BYGGINGARLISTIN