Byggingarlistin - 01.01.1956, Síða 7
S K U L 1 H. N O R Ð D A H L:
SAMKEPPNI UM FEGRUN OG ÚTLIT
TJARNARINNAR
Bæjarráð Reykjavíkur efndi á sín-
um tíma til „Hugmyndasamkeppni
um fegrun og útlit Tjarnarinnar“ eða
eins og segir í samkeppnisútboðinu:
„hugmyndasamkeppni um framtíðar-
útlit og fyrirkomulag Tjarnarinnar í
Reykjavík og nánasta umhverfi henn-
ar. Ætlazt er til að gerðar verði tillög-
ur að lögun og fyrirkomulagi Tjarn-
arinnar, bakka hennar og nærliggj-
andi gatna, gert sé ráð fyrir gróður-
setningu blóma, trjáa o. fl. auk gang-
stíga, bílstæða og annars þess er nauð-
synlegt kann að teljast og hagkvæmt.“
Svæðið var skilgreint á korti, en í út-
boðinu stendur ennfremur: „— en
þó er æskilegt að keppendur geri grein
fyrir hve mikla nýtingu þeir telja
heppilega á næstu lóðum við Tjörn-
ina. Einnig er heimilt að gera tillögur
um breytingu á skipulagi Hljómskála-
garðsins.“
I skilyrðum útboðsins var meðal
annars tekið fram: „D. Gera skal
grein fyrir öllum meiriháttar mann-
virkjum, sem hugsazt gerð á svæðinu,
með sérstökum skýringarmyndum og
þverskurðum, svo glöggt megi dæma
um byggingarmáta þeirra og lögun.
Og að síðustu að uppdráttum skvldi
skila fyrir 15. marz 1951.
Skýringar gáfu síðan frekari fyrir-
mæli um, til hvers bæjarráð ætlaðist
af keppendum, en þar segir: „Þess er
óskað að keppendur geri grein fyrir
tveim möguleikum við norðurenda
Tjarnarinnar, öðrum, sem gerir ráð
fyrir byggðu svæði milli Vonarstrætis
og Tjarnarinnar, og hinn, er gerir ráð
fyrir óbyggðu svæði milli Vonar-
strætis og Tjarnarinnar.
Ætlazt er til að hlynnt verði að
fuglalífi við Tjörnina og að búið sé í
haginn fyrir iðkun skauíaíþróttar að
vetrarlagi svo sem með möguleikum
til lýsingar og staðsetningu bæki-
stöðvar fyrir þá, er sjá um viðhald
skautasvellsins.
Gera skal grein fyrir hvers konar
lýsingu væri hugsað að nota, helztu
tegundir gróðurs, hvar og hvernig
listaverk og önnur skreyting yrði stað-
sett. hvers konar yfirborð gatna og
stíga o. s. frv.“
Þegar skilafrestur var útrunninn,
eftir að hafa verið framlengdur til 1.
maí 1951, voru komnar fram sex til-
lögur, sem dæmdar voru með þeim úr-
slitum, að þrjár voru verðlaunaðar og
ein keypt.
Dómnefndin gerir í dómnefndar-
áliti sínu aðeins grein fyrir afstöðu
sinni til þessara fjögurra uppdrátta.
Er því ekki hægt að sjá afstöðu henn-
ar til óverðlaunuðu tillagnanna, sem
hefðu átt að fá umsögn, ef ekki hvor
fyrir sig, þá sameiginlega. Hefði ekki
verið til of mikils mælzt, að þeir tveir
uppdrættir fengju sinn dóm.
Þeim uppdráttum, sem hér birtast,
fylgja meginatriðin úr greinagerðum
höfundanna; skal því aðeins vikið
nokkrum orðum að dómi dómnefnd-
arinnar.
Áður en farið er að dæma smá-
atriðin við útfærslu hugmyndanna,
verður dómnefndin að taka afstöðu til
tveggja meginatriðanna við samhengi
bessa svæðis í bænum við bæinn í
heild og hafa rökstudda stefnu að
dæma eftir og fylgja henni við á-
kvörðun verðlauna. Þessi atriði eru
umferðaæðarnar að svæðinu og í
gegnum það og bvggingamar, þ. e.
hvernig byggt og óbyggt svæði skuli
mætast á þessum stað.
Dómnefndin semur ekkert heildar-
álit um tillögurnar og gerir hvergi
grein fyrir neinu mati á grundvallar-
atriðum í ólíkum lausnum.
Skal reynt að draga saman slíkt
heildarálit.
Keppendur hafa verulega, nærri úr
hófi fram, reynt að uppfylla sam-
keppnisskilyrðin og eytt mikilli vinnu
í „detalj“-vinnu og því ekki lagt upp
neinar stórar línur um framtíðarlausn
skipulagslega séð. Þeir hafa puntað
staðinn þokkalega. Það er e. t. v. ekki
að lasta þá fyrir það, þar eð sam-
keppnisútboðið virðist miða fyrst og
fremst að því.
Um umferðaæðarnar kemur þetta
fram: Tillagan Vje sleppir Tjarnar-
götu og gerir þar gangstíg. Tillagan
2000 segir Tjarnargötu eiga að vera
„promenade“ götu, þar eð eðlilegt sé
að umferð suður úr miðbænum vest-
an Tjarnarinnar fari um Suðurgötu.
Því verður ekki mótmælt. Vje fær við-
urkenningu fyrir breytingu á legu Frí-
kirkjuvegar. Sömu tvær tillögur
breyta tjarnarbrúnni í göngubrú eða
brýr, og viðurkennir dómnefndin það
sem athyglisverðar og skenuntilegar
hugmyndir. Hvergi er hrakin röksemd
tillögunnar Vje fyrir því, að rétt sé að
gera þetta. en þó talið hæpið til fram-
kvæmda. Umferðin norðan Tjarnar-
innar er hvergi rædd. en telja má víst,
að lausn umferðarinnar þar hafi áhrif
á byggð og opin svæði kringum dóm-
kirkjuna, þinghúsið og aðrar opinber-
ar bvggingar, sem lagt er til að komi
þar í stað þeirra, sem nú eru.
Framh. á 26. bls.
5
BYGGINGARLISTIN