Byggingarlistin - 01.01.1956, Side 19
stíga milli lítilla hólma, með göngu-
brúm.
Þessi tillaga var prýðilega gerð og
rökstudd og eitt megin atriði í útliti
Tjarnarsvæðisins.
Umferðarbraut yfir Tjörnina er
ónauðsynleg, og með slíkri breytingu
yrði allt Tjarnarsvæðið að samfelld-
ari og fegurri heild.
í Tjarnarkrikanum, milli Tjarnar-
götu og Skothúsvegar, mætti setja
mátulega stóra byggingu. er lokaði út-
sjón til íbúðarhverfanna sunnan og
vestan, en umferðargötur að þeim
hverfum eru nægar og greiðar, enda
þótt Skothúsvegur yrði lagður niður
sem umferðarbraut yfir Tjörnina.
Þessar tillögur fannst mér einna
merkastar þeirra, sem fram komu, og
líklegastar til þess að hafa hvað mest
áhrif á heildarútlit Tjarnarsvæðisins.
*
Illa hefur verið farið með Tjarnar-
götuna norðanverða. Eru þar ósam-
stæð og miður ásjáleg fjórlyft hús, er
blasa við Tjarnarsvæðinu. Verður
erfitt að lagfæra þá byggð, svo vel
fari, en hlýtur að verða eitt af vanda-
málunum, þegar skipulagið verður
endanlega ákveðið. Það er hart að
þurfa að fjarlægja slíka byggð, en
helzt þyrfti það að gerast, ef vel á að
fara um heildarútlit þessa svæðis, en
ég á hér við húsin frá Vonarstræti til
suðurs.
Nokkurs uggs hefur gætt hjá sum-
um í sanrbandi við ráðhússtæði við
norðurenda Tjarnarinnar, og að ráð-
hús þar mundi skerða Tjörnina eða
minnka úlsýn lil suðurs.
Ekki verður nein hætta á því, ef
byggt verður í tvennu lagi, eins og að
framan getur. Enda þótt eitthvað
verði fyllt út í Tjörnina fyrir miðju
Vonarstræti, þá opnast í þess stað
með rúmu svæði beggja vegna við, -—■
að Lækjargötu annars vegar, en
Tjarnargötu hins vegar, er býður hið
glæsilegasta útsýn yfir allt Tjarnar-
svæðið frá báðum þessum götum, og
miklu meira og betra en nú er, því að
sjálfsögðu er þá gert ráð fyrir, að
Búnaðarfélagshúsið og Iðnó hverfi,
og verði þar að mestu opið svæði
milli ráðhúss og Lækjargötu, fram að
Tjörninni.
Ég hef dvalið nokkuð við þessar
hugleiðingar um ráðhússtæði við
Tjörnina, og gert það af ásettu ráði,
þar sem skoðun mín er sú, að ráðhús-
ið beri að setja á fegursta staðinn í
miðbænum, við Tjörnina og norður-
enda hennar. Verður frágangi þessa
svæðis því ekki gerð full og sómasam-
leg skil nema tillit sé tekið til þess.
Um samkeppnina um Tjarnarsvæð-
ið, og árangur hennar í heild, eða
niðurstöður dónmefndar. má hins
vegar mjög margt segja, og hefur þeg-
ar sagt verið. Get ég þó ekki skilið við
þessa þanka án þess að hnýta ofur-
litlu í dómnefnd samkeppninnar og
greinargerð hennar, sem þá um leið
skýrir frekar nokkur atriði málsins.
Hefði greinargerð fyrir niðurstöð-
um mátt vera vandaðri og í betra sam-
ræmi við niðurstöður dómsins. Ólík
sjónarmið hafa þar sýnilega togazt á.
— T. d. telur dómnefndin æskilegast
að hafa engar byggingar í Tjarnar-
brekkunni og segir um hæstlaunaða
uppdráttinn, að hin þétta byggð við
Tjarnargötu eyðileggi hina jögru
brekku. A öðrum verðlaunuðum upp-
dráttum eru breið bil milli húsa á
þessu sama svæði, og sést sæmilega
vel í brekkuna milli þeirra. Um hæst-
launaða uppdráttinn segir ennfrem-
ur: „Tillögur um syðri Tjörnina
kuldalegar, — miður heppilegt að
staðsetja byggingu þar, nema „musik-
tribune“.“ — Á öðrum verðlaunuð-
um tillögum eru engar byggingar ráð-
gerðar sunnan við Tjarnarendann,
enda væri það mjög misráðið. Hefur
hér fallið dómur um tvö veigamikil
atriði í samkeppninni, sem fyrstu
verðlaunum eru beinlínis fundin til
foráttu, og virðist þannig sú spurning
liggja nærri, á hverjum forsendum
niðurstöður dómsins hvili.
Nefndarmenn segja að lokum, að
þeir hafi hvorki orðið ásáttir um röð
verðlaunanna, né skipulag Tjarnar-
brekkunnar, byggingar þar o. fl.
Það hefði verið virðulegra og rétt-
mætara að skila sératkvæðum, þannig
að skoðun hinna einstöku nefndar-
manna hefði komið skýrt fram, enda
skylda, þegar mikið ber á milli, að
skýra hreinlega þau sjónarmið, er til
greina hafa komið fyrir niðurstöðum
dómanna.
BYCGINGARLISTTN
17