Byggingarlistin - 01.01.1956, Síða 23
GUNNLAUGUR HALLDÓRSSON:
AKADEMIAN 200 ARA
Listaháskólinn í Kaupmannahöfn
átti 2ja alda afmœli 31. marz 1954.
Stofnun akademíunnar átti sér
nokkurn aðdraganda. Forustumenn
málara og myndhöggvara höfðu
snemma á 18. öld stofnað til list-
fræðslu, sem aldrei varð þó regluleg-
ur skóli, þótt einatt væri nefnd lista-
akademia og nyti styrks og verndar
konungs.
Friðrik V., sem átti um þessar
mundir í allmiklum byggingarfram-
kvæmdum og hafði safnað að sér er-
lendurn listamönnum, greip nú í
taumana, er listfræðslan var að þrot-
um komin um miðja öldina.
Frægasti húsameistari Dana var þá
N. Eigtved hirðbyggingarmeistari, og
hafði hann með höndum framkvæmd-
ir og undirbúning að byggingu Ama-
lienborgarballanna, Marmarakirkj-
unnar og öðrum meiriháttar fram-
kvæmdum konungs.
Konungur skipaði nú Eigtved for-
stjóra akademíunnar, en hann flutti
skólann í vinnustofu embættis sins í
Kristjánsborgarhöll. Eigtved undir-
bjó síðan stofnun akademíunnar og
fékk bætt við þriðju listgreininni,
byggingarlistinni, og kom því til leið-
ar, að konungur lét Charlottenborgar-
höll af hendi við skólann.
í þeirri mynd, sem akademían er
til þessa dags, var hún stofnuð form-
lega með viðhöfn 31. marz 1754, en
sá dagur hefur jafnan síðan verið há-
tíðisdagur þess og markaður árlega
með opnun vorsýningar Charlotten-
borgar, með þátttöku hinna þriggja
listgreina, málaralistar, myndhöggv-
aralistar og byggingarlistar.
Akademían hefur frá bernskudög-
um sínum og fram á þennan dag átt
ríkan þátt í listsköpun Islendinga.
Á árunum 1780—1790 voru þrír
íslendingar, þeir fyrstu sem mér er
kunnugt um, við nám í akademíunni.
Sæmundur Magnússon Hólm var þar
1776—1788. Ólafur Ólafsson, síðar
prófessor á Kóngsbergi í Noregi,
hlaut sína fyrstu viðurkenningu í
byggingarlist 1780 hjá Harsdorff, en
Ólafur varð fyrstur allra íslendinga
til að nema byggingarlist. Ólafur lét
sér ekki nægja að ljúka byggingar-
listanáminu hjá Harsdorff, en lagði
urn leið stund á lögfræðinám og lauk
prófi í þeirn fræðum og gerðist síðan
lektor við Bergseminaríið í Kóngs-
bergi.
ísland fékk ekki að njóta þessa
mikilhæfa sonar síns, þó að við lægi
að hann yrði stiftamtmaður hér. En í
Noregi er nafni hans enn á lofti hald-
ið sem brautryðjanda í byggingai-
list.
Þriðji íslendingurinn, yngstur
þeirra, var myndhöggvarinn Bertel
Thorvaldsen. Um viðkynningu þre-
menninganna á þessum árum er ekki
vitað, en nokkru síðar gerðu þeir
Ólafur og Bertel frumdrög að minnis-
merki Jóns Eiríkssonar.
Þótt þjóðin nyti ekki innlendra
listamanna um þessar mundir, voru
áhrif akademíunnar og forgöngu-
manna hennar mestu ráðandi í bygg-
ingarlist, og nægir að nefna hina kon-
unglegu byggingameistara Eigtved,
Thura og Anthon, sem gerðu upp-
drætti af öllum meiriháttar bygging-
um, sem hér voru reistar síðari hluta
18. aldar, svo sem Viðeyjarstofu, Nes-
stofu, Bessastaðastofu, stjórnarráðs-
húsið sem nú er, og kirkjurnar á Hól-
um og í Vestmannaeyjum.
Nítjánda öldin er ekki viðburðarík
í málum fagurra lista á landi voru og
enn hafði þjóðin lítinn skilning á
boðskap þeirra, sem gleggst má sjá á
örlögum Sigurðar Guðmundssonar
málara, en sóknin er þeim mun meiri
í upphafi tuttugustu aldarinnar. Með-
al þeirra eru margir, sem gerðu garð-
inn frægan, því til sönnunar nægir að
nefna Ásgrím, Kjarval, Jón Stefáns-
son og Einar Jónsson og húsameistar-
ana Rögnvald Ólafsson, Guðjón Sam-
úelsson og Sigurð Guðmundsson.
Allir þessir nrenn numu list sína í
akademíunni, en þeir eru alþjóð svo
kunnir, að óþarft er að lýsa því, hve
rnikinn skerf þeir eiga í íslenzkri
menningu tuttugustu aldarinnar.
*
Charlottenborg er með fegurstu og
virðulegustu byggingum í Danmörku,
byggð á árunum 1672—83, í hol-
lenzkum barokstíl.
Vér vitum að það var Ulrik Fredrik
Gyldenlpve, sem lét reisa bygginguna,
þótt ekki sé vitað með vissu hvort þar
voru að verki Hans van Steewinkel
yngri og Evert Jansen, hitt skiptir
mestu að hún hefur í tvær aldir verið
griðastaður fagurra lista. í hugum
okkar, sem þar höfum notið fræðslu
er byggingin og stofnunin í órofa-
tengslum.
BYGGINGARLISTIN
21