Byggingarlistin - 01.01.1956, Side 30
Fegrun og útlit Tjarnarinnar
LJÓSPRENT
Fljótt og vel af liendi leyst
A
SIGR. ZOEGA & Co.
Austurstrœti 10
fcifmiMýantar
Sérstaklega gerðir fyrir arkitekta, teiknara og aðra,
sem þnrfa beztu gerðir blýanta.
Blýið er meðhöntllað með sérstöku efni, sem hefir þau
áhrif, að það gefur gott Ijósprent.
DRÖFN MeF.
Símar 9393, 9483 . Pósthólf 8 . Hafnarfirði
Trésmiðja, húsbyggingar, skipasmíðastöð, dróttarbraut.
Byggingar- og skipasmíðaverzlun.
Smíðum alls konar innréttingar
í verzlanir, skrifstofur, íbúöar-
hús, hurðir, glugga og alls konar
lista, húsgögn, niódel.
Smíðum tréskip af öllum stærð-
um. Höfurn dráttarbraut fyrir
allt að 200 rúmlesta skip. Skipa-
hreinsun og málun.
Höfum ávallt fyrirliggjandi efni til húsa- og skipabygginga, verkfæri
og alls konar járnvörur, málningu til húsa og skipa, ryðvarnarefnið
FERRO-BET o. fl.
Fljót og góð afgreiðsla. Vélar af nýjustu gerð. 1. flokks fagmenn við öll
störf. Leitið tilboða hjá oss áður en þér festið kaup annars staðar.
TILLAGA „2000"
Framh. af bls. 6.
I tillögu A er gert ráð fyrir að ráð-
húsið rúmi aðeins fundarsali bæjar-
ráðs ásamt skrifstofum borgarstjóra,
en almennar skrifstofur bæjarins
verði í sérstakri byggingu, t. d. milli
Fríkirkju- og Laufásvegar. Það skal
tekið fram, að hér er ekki um nýja
hugmynd að ræða.
í tillögu B er gert ráð fyrir ráðhús-
byggingu, er rúmi bæði bæjarstjórn-
arskrifstofur og almennar skrifstofur
bæjarins.
Við Tjörnina væri æskilegt að
kæmu byggingar eins og t. d. útvarps-
hús með tilheyrandi hljómleikasölum,
skrifstofuhús fyrir ýmsar stofnanir
ríkisins o. s. frv. Við Tjarnargötu og
Suðurgötu er gert ráð fyrir að komi
stórar íbúðarhúsablokkir (kollektiv-
hús) með smáíbúðum á 6 efri hæðun-
um, en verzlunum, skrifstofum, veit-
ingasölum o. fl. á 2 neðstu hæðunum,
en bílageymslum undir húsunum, inni
í brekkunni.
Við norðvesturenda Tjarnarinnar
er í tillögu A gert ráð fyrir húsi fyrir
skautaíþróttir, en í tillögu B er gert
ráð fyrir að sú starfsemi geti farið
fram í húsunum við Tjarnargötu.
I Hljómskálagarðinum er gert ráð
fyrir því, að Hljómskálinn verði rif-
inn og í hans stað byggt „musiktri-
bune“ sunnar í garðinum. Við suður-
enda Tjarnarinnar er gert ráð fyrir að
reisa listasafn (eða e. t. v. Arna Magn-
ússonar safn) með tilheyrandi „skulp-
turgarði“, þar sem myndhöggvarar
gætu t. d. geymt verk sín, meðan end-
anleg staðsetning listaverkanna hefur
ekki verið ákveðin. Á gatnamótum
Fríkirkju- og Skothúsvegar komi torg
við innganginn í Hljómskálagarðinn.
Þar verði komið fyrir gosbrunni og
„skulptur“.
Meðfram Fríkirkjuvegi er gert ráð
fyrir svæði með bekkjum og liggi það
svæði ca. 1 m lægra en vegurinn sjálf-
ur. Þarna verði og komið fyrir gróðri
milli steinlagðra stétta. Allhár veggur
kæmi milli þessa svæðis og Fríkirkju-
vegarins og væri hann eins konar
28
BYGGINGARLISTIN