Byggingarlistin - 01.01.1960, Side 8
Látnir félagar A. í
Sigurður Pjetursson f.v. byggingarfulltrúi var fæddur í Reykja-
vík 14. ágúst 1896. Hann lauk prófi í múraraiðn 1919, en að því
loknu stundaði hann nám í byggingarfræði við „Tekniska Sel-
skabs Skole'' í Kaupmannahöfn og lauk þar prófi 1925.
Fyrst eftir heimkomu rak hann teiknistofu hér í bæ, en árið
1926 var hann kjörinn byggingarfulltrúi í Reykjavík, og gegndi
hann því embætti til ársins 1957 er hann lét af störfum sökum
heilsubrests.
Aðallífsstarf hans var því í þjónustu Reykjavíkurbæjar, en auk
þess teiknaði hann nokkur hús, hér í bænum og úti á landi.
Sigurður Pjetursson var mjög félagslyndur og áhugasamur um
öll mál er varðaði byggingarmál. Hann var traustur meðlimur
í félagsskap arkitekta og tók þátt í störfum þeirra meðan kraft-
ar entust. Hann andaðist 8. febr. 1959.
Gunnar Ólafsson var fæddur á Suðureyri við Súgandafjörð 13.
sept. 1915. Hann ólst upp á Isafirði við Skutulsfjörð, lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1936, en sigldi síðan
til Noregs. Hann stundaði nám í byggingarlist við arkitektur-
deild Norges tekniske högskole í Þrándheimi og lauk þaðan
brottfararprófi sem arkitekt 1940.
Að námi loknu hóf Gunnar starf í Noregi og dvaldist þar öll
stríðsárin. Hann kom heim 1945, hóf starf hjá húsameistara
Reykjavíkurbæjar og vann þar sem deildararkitekt til ársins
1955, að hann var ráðinn fyrsti skipulagsstjóri Reykjavíkur-
bæjar yfir sjálfstæðri skipulagsdeild.
Gunnar Ólafsson lézt á sumardaginn fyrsta, 23. apríl 1959.
6