Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 20

Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 20
hvers vegna rýfur arkitektinn ris kór- gaflsins með því að nota tvenns konar efni, við að neðan, málað trétex að of- an? Þessi tvískipting dregur ekki að- eins úr risi skipsins, heldur eykur hún einnig óróleik þess. Hið sama verður upp á teningnum þegar staðið er í kór og horft fram eftir kirkjunni: maður skilur ekki hvers vegna hin jafna sam- þjöppun rúmsins stall af stalli er rof- in af mismunandi efnisáferð. Að öðru leyti er kirkjan hlýlegt og að- laðandi guðshús. Neskirkja var boðin út til samkeppni af sóknarnefnd Neskirkjusafnaðar 1942. I dómnefnd áttu sæti: Alexander ló- hannesson, prófessor, séra Jón Thorar- ensen, Björn í Mýrarhúsum, Sigurjón Jónsson og Gunnlaugur Halldórsson, og Halldór H. Jónsson af hálfu Arki- tektafélags Islands. I. verðlaun hlaut Agúst Pálsson. II. — r— Bárður Isleifsson. III. — — Sig. Guðmundsson. I dómneíndarniðurstöðu segir um verk Ágústar: „Fyrirkomulag og form skips ágætt og samband þess við kór. Uppbygging skipsins og hinn hái kór gefa kirkju- salnum tignarlegan svip. Lýsing í kirkju og kór með ágætum. Höfundi hefir tekist að koma söngpalli fyrir í kór á dekoratívan og áhrifaríkan hátt og sameina þannig hina tvo höfuð- þætti guðsþjónustunnar án þess þó að athyglin sje dregin frá altarinu, sem aðalatriði í kirkjunni. Konstruktion kirkjunnar er mjög greinileg og um leið dekorativ. Einn aðaltilgangur höfundar í upp- byggingu kirkjunnar virðist vera að skapa gcð hljómskilyrði, þannig að bæði tal og söngur fái notið sín. Höf- undi hefir tekist þetta óvenju vel. Ytra útlit er í fullu samræmi við innra form kirkjunnar. Með hinu stígandi skipi og háa kór, sem snýr að torginu, virðist höfundi hafa tekist vel að gefa kirkjunni hreinan og fastan svip." Teikningin er samþykkt í byggingar- nefnd 1944. Um sama mund drógust byggingarframkvæmdir saman og söfnuðurinn óttaðist að kirkjan yrði of viðamikil og stór fyrir getu hans, svo arkitektinn varð að breyta henni og minnka frá upprunalegri mynd. 1952 var svo sú breyting samþykkt í byggingarnefnd og var þá þegar haf- izt handa um framkvæmdir. Kirkjan var vígð á páskum 1957. Alexander Jóhannesson prófessor, sem mest og bezt barðist fyrir Nes- kirkju á sínum tíma, hefur lýst henni ágætlega í grein, sem hann skrifaði í Morgunblaðið í marz 1944: „Kirkjan er þannig sett, að austurgafl hennar snýr að stóru torgi, sem á að vera austan við kirkjuna, og rís kirkj- an þar hæst, í nál. 18 metra hæð og er þar kór kirkjunnar. Er kirkjunni snúið þannig, að gengið er inn í forkirkju norðvestanmegin. Forkirkjan rís og hækkar eftir því sem innar dregur og verður innsti hlutinn lítilsháttar upp- hmkkaður. Nú göngum við úr forkirkju inn um þrennar dyr inn í aðalkirkjuna. Hún er stór salur, sem rís fremst í 8 metra hæð, en hækkar smámsaman upp í 13 metra, en sjálfur kórinn rís upp í 20 metra. Rúmir gangar eru í miðju og til beggja hliða og eru þar 400 sæti, er auka má upp í rúmlega 500 á stórhátíðum og ella, ef þurfa þykir. Gluggum er komið fyrir þann- ig, að birtan berst á ská inn að kóm- um frá báðum hliðum. Allt miðar að því að athyglin beinist að kór og prje- dikunarstól og innst við kórinn sunn- anmegin er mjög stór gluggi og snýr kirkjan þannig, að kl. 11 á sumartíma fellur sólarljósið jafnhliða kórgafli og lýsir kirkjuna upp að innan, meðan messa stendur yfir. Vinstra megin við kcr er orgeli og söngkór ætlaður stað- ur. Undir söngpalli og við hlið sjálfs kirkjukórsins er skrúðhús með snyrti- kleía og fataskáp. Kirkjugestir þurfa því aldrei að snúa sér við til þess að sjá söngfólk eða einsöngvara og auk þess hefir fyrirkomulag þetta þann mikla kost, að fullt tillit er hægt að taka til heyrðarlögmáls við bygging kirkjunnar. Þá er samkomusal komið fyrir norðanmegin við kirkjuna, þar sem hún rís hæst og verður hann í beinu sambandi við kirkjusalinn á svo haganlegan hátt, að úr hverju sæti í samkomusal sjest til prests í ræðustól og er einnig gott samband við altari kirkjunnar. Á þennan hátt bætast 150 ágæt sæti við kirkjusalinn, en þegar þess gerist ekki þörf, er sam- komusal lokað með vængjahurðum. 18

x

Byggingarlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.