Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 21
íslenzk listiðn
Mynd 1
Mynd 2
Byggingarlistin mun leitast við að
kynna lesendum ýmsar athyglisverð-
ar nýjungar í íslenzkum listiðnaði og
gera sér far um að fylgjast með þróun
þeirra mála, vekja athygli á því sem
vel er gert á þessu sviði.
Byggingarlistin kynnir að þessu sinni
verk eftir bræðurna Jón og Guðmund
Benediktssyni. Húsgögn sem þeir hafa
teiknað og smíðað hafa vakið verð-
skuldaða athygli vegna gerðar og
vandaðs handbragðs.
Þeir bræður hafa einnig vakið eftirtekt
sem efnilegir myndhöggvarar og báð-
ir haldið sjálfstæðar sýningar, auk
þess tekið þátt í samsýningum innan
lands og utan.
1 Grind stólsins er smíðuð úr flötu
stáli, seta og bak eru úr plastþræði.
Raða má saman tveimur eða fleiri
stólum og fá þannig hentugan
bekk.
2 Stólgrindin er smíðuð úr sívölu
stáli, seta og bak úr sveigðum við.
Þetta er borðstofustóll, en gerðin
hentar einnig vel í matsali og veit-
ingahús, því stafla má stólunum
hverjum ofan á annan.
Ljósmyndir: Andrés Kolbeinsson