Byggingarlistin - 01.01.1960, Síða 25
Nesti h.f
i
i
Arkitekt:
Manfreð Vilhjólmsson
Biíreiðaþjónusta þessi er skilgetið af-
kvæmi þeirrar vélaaldar, sem við lif-
um á. Hún er nýtt íyrirbrigði hér á
Islandi en vel þekkt víða erlendis.
Segja má að þetta hús eða skýli sé
reist handa hinum tímabundna
manni: bifreiðarstjóranum, sem allt-
af er að flýta sér.
Hinn þurfandi ekill íær hér ýmsar veit-
ingar afgreiddar utanhúss án þess
hann yfirgefi ökutæki sitt. Bensín
og olíur eru einnig á boðstólum undir
sama þaki, svo að það er séð íyrir
bílnum líka.
Nesti var fyrst reist við Reykjanes-
braut 1957. Meðfylgjandi myndir eru
af Nesti við Suðurlandsbraut frá
1958. Byggingarefni eru valin úr bíla-
smíði: gler, járn og gúmmí. í gluggum
eru tvöfaldar glerrúður festar með
gúmmílistum. Neðan við glugga eru
litaðar emaleraðar járnplötur í sams-
konar listum. A þaki er málaður
strigi. Húsin eru smíðuð á verkstæði
og flutt á staðinn í flekum. Hið stóra
þakskýli, sem tengir húsin saman er
gert á staðnum. Grind þess og uppi-
stöður eru úr járni en þakið er klætt
ýmist báruplastgleri eða asbesti. Að
neðan eru sett óhefluð furuborð. Jafn-
stór þakinu er steinsteyptur grunnur.
Aðkeyrslubrautir og torgið í kring
eru gerð úr malbiki.
Byggingarefnum er stillt saman
sem andstæðum, hin grófa áferð furu
og steinsteypu myndar mótvægi við
hið harða og slétta yfirborð lakks og
fágaðs glers.
Byggingarlag er augljóst, ekkert er
falið, rúm hússins stendur opið og
létt við augum skoðandans. Það er
skemmtilegt flug í hinum rytmisku
hreyfingum þaksins, sem er haldið í
skefjum af rólegum og lóðréttum uppi-
stöðum.
Afgreiðsluskáli
Ljósmyndir: Andrés Kolbeinsson