Alþýðuhelgin - 31.12.1949, Blaðsíða 8

Alþýðuhelgin - 31.12.1949, Blaðsíða 8
3G0 ALÞÝÐUHELGIN liygli, að það var tæpum mánuði áð- ur en Verkamannafélagið Dagsbrún var stofnað, en um líkt leyti sem Bárufélagið var að lognast út af. Ég hcf beðið Ágúst Jósefsson að segja frá stofnun þessa blaðs, og fer viðtalið við hann hér á eftir: m ------------------------------------------------♦ Ágúst Jóscfsson scgir frá. Fjórlán jafnaðarmenn mynda úlgáfufélag. --------------------------e „Síðari hluta árs 1905 komu nokkrir menn saman á fund til þess að ræða um stofnun blaðs, sem vera skyidi málgagn alþýðunnar í iand- inu. Fundarboðandi var Pétur G. Guðmundsson bókbindari. Fundarmenn ræddu málið nokkra stund, og að því loknu var sam- þykkt, að reyna að mynda félags- skap áhugamanna til þess að gefa blaðið út, og fá þá til þess að skjóta saman peningum til þcss að koma þessu í framkvæmd um næstu ára- mót (1906). Leituðum við fundarmenn svo til ýmissa manna, sem líklegir þóttu til hjálpar, og tóku margir vel í það, að lóta nokkuð af mörkum til útgáfu blaðsins. Allt voru þetta fátækir menn, sem í þessu voru að brjótast, sem í rauninni ekkert máttu missa frá daglegum þörfum, enda kom það á daginn síðar, að samskotin urðu endaslepp. Samt var ráðizt í að gefa blaðið út í þeirri von, að fólk mundi kaupa blaðið og styrkja það á þann hátt og með einhverjum peninga- gjöfum. Enn fremur gerðum við ráð fyrir að verkamönnum myndi renna blóðið til skyldunnar þegar blaðið færi að bcrjast fyrir hagsmunamál- um þeirra og þjóðfélagslegum rétt- arbótum. í útgáfufélagi Alþýðublaðsins voru eftirtaldir menn, sem ég man eftir: 1. Pétur G. Guðmundsson, bók- bindari. 2. Ágúst Jósefsson, prentari, síðar heilbrigðisfulltrúi. 3. Guðmundur Davíðsson, kennari. 4. Árni S. Bjarnason, skósmiður, síðar dyrav. við Alþingishúsið. 5. Sveinbjörn Björnsson, skáld. 6. Magnús Gíslason, skáld. 7. Þorsteinn Guðmundsson (brooir P. G. G.). 8. Guðjón Jónsson, vcrzlunarmað- ur hjá B. H. B. 9. Halldór Jónsson, verzlunarm. 10. Eggcrt Brandsson, sjómaður, síðar fisksali. 11. Jóhann Árm. Jónasson, úrsm. 12. Guðmundur Halldórsson, frá Eyrarbakka. 13. Hafliði Bjarnason, prentari. 14. Guðm. Sigurðsson, búfræðing- ur, síðaf bóksali. Alþýðublaðið hóf göngu sína 1. janúar 1906, og komu út á því ári 18 tölublöð. Af næsta árgangi blaðs- ins komu aðeins út 7 tölublöð, og þar með var lokið fyrstu tilraun til að halda úti óháðu málgagni fyrir ís- lenzkan verkalýð. Stefnuskrá Alþýðublaðsins var mjög hógvær, og hljóðaði svo: Að vernda rett lítilrhagnans. Að sporna við yfirgangi og kúgun auðvalds og cinstakra manna. Að innræta hjá þjóðinni þckkingu á gildi vinnunnar og virðingu fyrir henni. Að efla þekkingu alþýðunnar, eink- um á þjóðhagsfræði, atvinnu- rekstri og vinnuaðferðum. Að styðja samtök verkarhanna, sem miða að því, að sporna við valdi og vana, áníðslu og órétti, en efla sameiginlegan þagnað. Að efla svo andlegan þroska aljiýð- unnar, að hún verði jafnfær til ráða sem dáða. Stefnuskránni fylgdi svohljóðandi eftirmáli frá blaðstjórninni: „Við væntum Jress, að allir, sem vilja vclferð þjóðarinnar í nútíð og framtíð, styðji okkur að Jressu vcrki með alúð og einbeittum vilja. Jafn- réttið cr sá töframáttur, sern einn getur aflað þessari þjóð, sem öðrurn, vegs og virðingar, frelsis og far- sældar. Ágúst Jósefsson. Við trúum á þennan mátt, og til- einkum okkur orðin: Frelsi, jafnrétti, bræðralag.‘‘ Það rná með sanni segja, að ekki var hart riðið úr hlaði, og enginn byltingarbragur á stefnuskránni. Ekki eitt orð um kaupkröfur eða verkföll. Aðeins lrvatning um sam- heldni, réttindavernd og andlcga þroskun. Vegna stefnuskrár blaðsins hefði' Jdó mátt vænta, að verkamenn og sjómenn hefðu tekið blaðinu fcgins hendi og stutt að útbreiðslu þess. En þetta fór á aðra lcið, og þó kostaði árgangurinn ekki nema tvær krón- ur. Vonir útgefenda brugðust vegna skilningsleysis alþýðunnar. Þó voru hagsmunasamtök prentara og sjómanna- orðin tíu ára gömul þegar blaðið hóf göngu sína. í fyrsta tölublaði Alþýðublaðsins er grein, þar sem stungið var upp á stofnun verkamannafélags í Reykja- vík. Það er full ástæða til að ætla, að sú uppástunga hafi orðið til þess, að hafizt var handa um stofnun verkamannafélagsins „Dagsbrúnar“. Eins og áður er tekið fram, voru styrktarmenn að útgáfu Alþýðu- blaðsins bæði fáir og fátækir, og fé- lagsleg samtök verkalýðsins þá ekki orðin svo traust, að þaðan væri að vænta fjárhagslegs stuðnings. Ár- gjöld til félaganna voru svo lág, að Jiau rétt aðeins gálu staðið undir beinum x'ekstri Jxeirra. Stjórnir fé- laganna unnu verk sín kauplaust og héldu fast utan urn lxina litlu sjóði þeiiTa. Á fyrra helmingi annars árgangs Alþýðublaðsins urðu stuðningsmenn útgáfúnnar að lcggja árar í bát. Ilvcr eyrir var uppgenginn, og rit- stjórinn, Pétur G. Guömundsson, fékk enga boi'gun fyrir starf sitt, og varð að lokurn að greiða af sínum litlu efnum eftirstöðvarnar af prent- unarkostnaði blaðsins. Þetta er í fáum orðum jsagan um

x

Alþýðuhelgin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.