Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Síða 25
að 30 ár þar til næsta uppskera getur farið fram á sama svæði. Bændur,
sem að staðaldri heyja hreindýraflétturnar, verða því að hafa stór heiða-
lönd og uppskera aðeins lítinn hluta þeirra á hverju ári.
Eins og áður er drepið á, er næringargildi þessa fóðurs fyrst og
fremst fólgið í kolvetnunum, sem þó eru fremur tormelt, þótt klauf-
dýr virðist nýta þau betur en flest önnur dýr. Þegar fóðurskortur er,
hefur hins vegar reynzt vel að auka fjölbreytni fóðursins með fléttu-
heyi. Fornleifafundir í Sviss benda til að notkun fléttufóðurs hafi tíðk-
ast í Evrópu þegar í fornöld.
Ulfaeilur. Fáeinar fléttur innihalda eiturefni og eru þeirra kunn-
astar Evernia vulpina og Celraria pinastri. Þær eru báðar gular að lit,
og stafar liturinn af eitruðum fléttusýrum, vúlpinsýru og pinastrin-
sýru, sem eru efnafræðilega náskyldar. Þessar fléttur voru notaðar í
Skandinavíu fyrr á öldum til að eitra fyrir úlfa. Voru þær ásamt gler-
mylsnu hnoðaðar í tálbeitu. Hvorug þessara tegunda finnast á ís-
landi.
Rannsóknir á eiturverkunum þessara fléttusýra hafa leitt í ljós, að
brot úr grammi nægir til að bana hundum og kötturn. Valda þær í
byrjun öndunarerfiðleikum, hækkuðum blóðþrýstingi og uppsölum.
Lömun öndunarkerfisins verður síðan dýrunum að bana.
Fléttur til litunar. Fjölmargar fléttur innihalda efni, sem auðvelt
er að vinna úr litarefni. Litir unnir úr fléttum voru áður fyrr mikið
notaðir, bæði í verksmiðjum og heimilisiðnaði til að lita ull og ullar-
vörur, einnig til að lita silki, baðmull, vax, pappír, marmara og margt
fleira. Talið var að mölflugur legðust ekki á ullarvörur, sem litaðar
voru með litarefnum úr fléttum.
Eitt þekktasta litarefni unnið úr fléttum var Orcein. Fléttur sem
innihalda erythrin, lekanórsýru, gyrófórsýru eða evernsýru má nota til
Orceinframleiðslu, og má þekkja þessar fléttur á því, að ef á þær er
látin drjúpa klórkalkupplausn verða þær rauðar undan.
Orcein var unnið á þann hátt, að þvagi var hellt yfir flétturnar og
kalkoxýð sett saman við. Var þetta síðan látið liggja nokkrar vikur. Við
það gerjaðist þvagið og myndaðist ammoníumkarbónat. Fyrir tilverkn-
að ammóníaksins og andrúmsloftsins myndaðist úr áðurnefndum fléttu-
sýrum Orcein, sem er rautt eða fjólublátt á litinn.
Eftir að efnafræðiþekking manna jókst, var hætt að nota gerjun
þvagsins við þessa framleiðslu, heldur voru fléttusýrurnar felldar út
með saltsýru og síðan leystar upp í ammóníaki og hellt á flatar pönnur
til að auðvelda andrúmslofti aðgang að.
Ur sömu fléttum og Orcein er unnið úr má einnig framleiða lak-
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAERÆÐI - FlÚra 23