Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Page 2
fimmtudagur 30. ágúst 20072 Fréttir DV
Jafnræði til náms
„Þetta er tækifæri til að efla
jafnræði til náms, óháð efna-
hag,“ segir Ragnar Þorsteins-
son, fræðslustjóri Reykjavíkur.
Í gær var kynntur samningur
milli Menntasviðs Reykjavíkur
og Fjölbrautaskólans við Ármúla
um ókeypis fjarnám fyrir grunn-
skólanema. Ragnar bendir á að
hingað til hafi þurft að greiða
um 10 til 15 þúsund krónur fyrir
hvern áfanga.
Á síðasta skólaári voru 173
grunnskólanemar í fjarnámi við
FÁ á haustönn en 125 á vorönn.
Fjarnám við FÁ hefur verið starf-
rækt frá 2002.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Snjóflóðahætta
í höfuðborginni
Snjóflóða- og skriðuhætta er í
fyrirhuguðum byggingarlöndum
Reykjavíkurborgar við Esjuræt-
ur og Úlfarsfell. „Við gerðum of-
anflóðahættumat fyrir alla staði
þar sem hættan er fyrir hendi. Í
ljós kom að flóð hafa fallið, bæði
snjóflóð og aurskriður, á þess-
um stöðum á síðastliðnum tvö
hundruð árum,“ segir Hörður Þór
Sigurðsson verkfræðingur á Veð-
urstofu Íslands.
Í skýrslu Veðurstofunnar um
ofanflóðahættu frá í fyrrahaust
kemur fram að fjöldi flóða hefur
fallið úr Esjunni. Sum þeirra hafa
valdið nokkrum skaða.
Tekinn á 166
kílómetra hraða
Karlmaður á fertugsaldri
var stöðvaður af lögreglunni á
Blönduósi á 166 kílómetra hraða
í fyrrakvöld. Að sögn varðstjóra
hjá lögreglunni á Blönduósi var
maðurinn sviptur ökuréttindum á
staðnum, hann átti leið um Holta-
vörðuheiðina.
Að sögn lögreglu liggur ekki
fyrir hvers vegna maðurinn flýtti
sér svona mikið en það mun kosta
hann skildinginn. Hann fær vænt-
anlega 150 þúsund króna sekt auk
þess að missa ökuréttindi í þrjá
mánuði. Hann fær einnig fjóra
punkta í ökuferilskrá.
Félagsmálaráðuneytið hefur óskað eftir stjórnsýsluúttekt á Vinnumálastofnun:
Óprúttnir verktakar brjóta á ódýru vinnuafli
Félagsmálaráðuneytið hefur ósk-
að eftir stjórnsýsluúttekt á Vinnu-
málastofnun. Hrannar Björn Arn-
arsson segir engin neikvæð skilaboð
felast í þessu. „Það er skylda ráðu-
neytanna að fylgjast með þróun mála
innan sinna stofnana,“ segir hann.
Hrannar segir ástæður úttektar-
innar fyrst og fremst vera þær að að-
stæður á vinnumarkaði hafi breyst
mikið í seinni tíð, einkum með til-
komu erlendra launþega á Íslandi.
„Lagaumhverfið hefur einnig breyst
talsvert og þetta þýðir að allar þær
forsendur sem lagt var upp með þeg-
ar stofnuninni var komið á fót eru
breyttar,“ segir Hrannar. Hann seg-
ir úttektina ekki vera í tengslum við
fréttir af óskráðu verkafólki við Kára-
hnjúka.
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, óskaði í gær eftir því að
félags- og tryggingamálanefnd Al-
þingis yrði kölluð saman hið snar-
asta, í ljósi fréttaflutnings um að hér
á landi sé verkafólk í stórum stíl án
þeirra réttinda sem því ber. Hann tel-
ur að hugsanlega séu hér alvarlegar
brotalamir á eftirliti með skráningu
verkafólks.
„Það er að koma fram í dagsljós-
ið að hér eru framin stórfelld brot á
kostnað verkamanna. Alþingi hef-
ur sett lög sem eiga að tryggja öllu
launafólki á Íslandi ákveðin lág-
marksréttindi og eftir þessum lögum
er ekki farið,“ segir Ögmundur. Hann
vill að nefndin fari í saumana á mál-
inu.
Vinnumálastofnun ber ábyrgð
á þessu eftirliti. „Þess ber samt að
geta að hvað sem eftirlitinu líður,
má aldrei missa sjónar á því að hér
eru óprúttnir verktakar sem brjóta
samninga og lög. Við megum ekki
gleyma ábyrgð þessara aðila. Það eru
sjálfir verkamenn-
irnir sem eru
fórnarlömb-
in. Hið ódýra
vinnuafl,
sem svo er
kallað,“ segir
Ögmundur.
sigtryggur@dv.is
Ögmundur Jónasson segir
brotalamir vera á eftirliti með erlendu
vinnuafli.
Hrannar Björn Arnarsson
félagsmálaráðuneytið hefur
óskað eftir stjórnsýsluúttekt
á Vinnumálastofnun.
Ógnarmat
fyrir Ísland
Unnið er að gerð ógnar-
mats fyrir Ísland innan utan-
ríkisráðuneytisins. Þetta kom
fram í ræðu Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur utanrík-
isráðherra á ráðstefnunni
Kapphlaup til Norðurskauts-
ins í gær.
„Ég hef nýtt tímann frá
því að ný ríkisstjórn tók við
til að undirbúa gerð vand-
aðs, faglegs ógnarmats fyrir
Ísland,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún og sagði slíkt mat löngu
orðið tímabært. Hún sagði
allar áætlanir um viðbúnað
ófullnægjandi án þeirrar und-
irstöðu sem ógnarmat gæfi.
Hún sagði ljóst að útfæra þyrfti
lýðræðislegri vinnubrögð en
hingað til hafa tíðkast þegar
kemur að þjóðaröryggi.
„Ég er mjög undrandi yfir þessu og
börnin mín hafa verið mjög sorg-
mædd undanfarið,“ segir Steinberg
Arnarson, eigandi hundsins Neo sem
lögreglan á Selfossi lét lóga fyrir litlar
sakir. Steinberg, sem er þriggja barna
faðir, er harmi sleginn yfir missinum
en Neo var fjögurra ára gamall bor-
der collie-hundur.
Skildi eftir skilaboð
„Hann týndist seinni partinn á
föstudeginum 17. ágúst. Ég fór um-
svifalaust að leita að honum úti um
allan bæ en mér tókst ekki að finna
hann,“ segir Steinberg, sem er bú-
settur í Hveragerði ásamt fjölskyldu
sinni. Steinberg segir að hann hafi
ekki getað haldið leitinni áfram á
föstudagskvöldið þar sem eiginkona
hans hafi farið á fæðingardeildina
í Reykjavík þar sem hún átti barn
sunnudaginn 19. ágúst.
„Það gerðist ekkert hjá henni á
föstudagskvöldið þannig að ég fór
aftur í Hveragerði til að halda áfram
leitinni,“ segir Steinberg en um ell-
efuleytið á föstudagskvöldið hafði
hann fyrst samband við lögregluna á
Selfossi. „Ég sagði við þá að ég hefði
týnt hundinum og spurði þá hvort
þeir hefðu fundið hann. Þeir sögðu
mér að þeir hefðu ekki fengið neina
ábendingu um lausan hund. Ég
skildi þá eftir nafn og símanúmer þar
sem ég bað þá um að hafa samband
ef hann fyndist.“
Lóguðu hundinum
Steinberg hélt leitinni áfram um
nóttina en hún bar engan árangur.
Hann skildi útidyrnar eftir opnar um
nóttina í von um að hann skilaði sér.
Það gerðist hins vegar ekki. Stein-
berg gafst ekki upp heldur hélt áfram
að leita á laugardeginum en án ár-
angurs.
„Ég hafði þá aftur samband við
lögregluna á Selfossi seinni partinn
á laugardeginum og spyr hvort þeir
hefðu fundið hundinn sem ég aug-
lýsti eftir kvöldið áður. Þá spurði kon-
an sem ég talaði við hvernig hann
liti út. Ég lýsti honum ítarlega fyrir
henni og þá gefur hún mér þau svör
að lögreglan hafi farið og látið lóga
sams konar hundi um morguninn.
Ég fór á stöðina þar sem þeir sýndu
mér mynd af honum og ég fékk stað-
festingu á að þetta var Neo.“
Klóraði konu
Steinberg segist hafa fengið þá
skýringu frá lögreglunni að hann hafi
ráðist á konu daginn áður. „Hann
hefur aldrei ógnað neinum og aldrei
sýnt tennurnar. Ég fékk þá skýringu
að hann hafi labbað á eftir einhverri
tík inn í garð hjá einhverri konu. Kon-
an reyndi að koma ól á Neo sem gekk
ekki. Hún hefur sennilega tekið utan
um hann og hann hefur reynt að
sleppa úr arminum á henni. Þannig
fékk konan klór á höndina á sér og
hringdi á lögregluna.“
Steinberg segir að lögreglan hafi
verið með hundinn í gæslu föstu-
dagsnóttina og farið með hann til
dýralæknis daginn eftir og skipað
honum að lóga hundinum. Hann
furðar sig á því að ekki hafi verið haft
samband við hann.
Ekki löglegt
Steinberg segir að þessi aðför lög-
reglunnar standist ekki lög. „Ég er
búinn að tala við lögfræðing sem hef-
ur skoðað málið. Lögin um hunda-
hald kveða á um að ef hundur bíti
mann sé réttlætanlegt að lóga hon-
um. Neo beit engan og hefði aldrei
gert það. Það var konan sem beitti
hann upphaflega valdi. Það eru all-
ir mjög hneykslaðir á þessu. Ég geri
alveg eins ráð fyrir því að kæra þetta
því það var ekki heldur talað við eig-
endur. Ég talaði við dýralækninn
sem lógaði honum og hann sagði
mér að þetta hafi verið besta grey.
Hann hafi bara fengið skipun frá
sýslumanni um að lóga hundinum.
Hann taldi þennan hund ekki ógna
einu né neinu,“ segir Steinberg, sár
yfir missinum.
Ekki náðist í Þorgrím Óla Sigurðs-
son, yfirlögregluþjón hjá lögreglunni
á Selfossi, við vinnslu fréttarinnar.
EinAr Þór SigurðSSon
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Lögreglan á Selfossi lét aflífa hundinn
neo sem slapp frá eigendum sínum. Stein-
berg Arnarson, eigandi hundsins, segir að
Neo hafi aldrei gert neinum neitt og verið
góður hundur. Börnin hans hafa verið
sorgmædd enda missirinn mikill. Hann er
forviða á ákvörðun lögreglunnar að láta
lóga hundinum fyrir svo litlar sakir.
„ég lýsti honum ítar-
lega fyrir henni og þá
gaf hún mér svör um
að lögreglan hefði
farið og látið lóga
sams konar hundi um
morguninn.“
HARMI SLEGIN EFTIR AÐ
LÖGGAN LÉT AFLÍFA NEO
Harmi slegnir feðgar
steinberg arnarson og
Pétur Orri ingvarsson
syrgja hundinn Neo.
Pétur Orri fékk hundinn á
jólunum fyrir nokkrum
árum.
Hundurinn neo Lögreglan
lét lóga hundinum án þess að
láta eigendur vita, þrátt fyrir
að þeir hefðu spurt eftir
honum hjá lögreglunni.