Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Síða 4
fimmtudagur 30. ágúst 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, kannast ekki við trúnaðarbrest
innan meirihlutasamstarfs Seltjarnarnesbæjar. Heimildir DV herma að verið sé að ræða
uppsögn bæjarstjórans eftir að lykilstarfsmenn bæjarins hafi kvartað undan fjarveru
hans. Sjálfur segist hann hafa nýtt sér lögbundinn orlofsrétt og telur að engin mál hafi
tafist í afgreiðslu vegna fjarveru hans.
„Ég er alveg furðu lostinn yfir þessu.
Að um trúnaðarbrest sé að ræða í
meirihlutasamstarfinu eru algjörar
fréttir fyrir mér og í raun er það al-
veg þvert á móti. Hér geta menn rætt
í fullri einurð um hlutina og um það
er ekkert meira að segja,“ segja Jón-
mundur Guðmarsson, bæjarstjóri
Seltjarnarnesbæjar.
Heimildir DV innan bæjarstjórn-
arflokks sjálfstæðismanna herma
að meirihluti bæjarstjórnar
íhugi að segja Jónmundi
upp störfum sem bæj-
arstjóri. Síðustu daga
hefur verið fundað
vegna kvartana lyk-
ilstarfsmanna bæj-
arins um fjarveru
bæjarstjórans á sum-
armánuðum og trún-
aðarbrestur er sagður
ríkja innan meirihlut-
ans.
Jónmundur var ráð-
inn til starfans af bæjar-
stjórn og henni er heimilt
að segja honum upp störf-
um vegna vanrækslu.
Hann segist ekk-
ert kannast
við um-
ræðu þess efnis að uppsögn sé yfir-
vofandi og veit ekki til þess að trún-
aðarbrestur ríki meðal meirihlutans
í bæjarstjórn. Slíkt stangast á við
heimildir DV úr innsta hring sjálf-
stæðismanna á Seltjarnarnesi.
Engar tafir
Lykilstarfsmenn Seltjarnarnes-
bæjar eru sagðir hafa kvartað und-
an fjarveru Jónmundar síðustu þrjá
mánuði. Sjálfur vísar hann því al-
farið á bug að hafa ekki sinnt störf-
um sínum sem bæjarstjóri. „Ég hef
verið í sumarleyfi í 27 daga sem er
algjörlega innan míns
orlofsréttar sem
starfsmaður bæj-
arins. Aðra daga
hef ég verið við
störf og fullyrð-
ingar um ann-
að eru algjör-
lega úr lausu
lofti gripnar. Vegna
míns sumarleyfis hafa
engin málefni bæjar-
ins tafist,“ segir Jón-
mundur. „Ég kann-
ast ekki við neinar
kvartanir lykilstarfs-
manna. Að minnsta
kosti hef ég ekki
séð slíkar formlegar
kvartanir til bæjar-
stjórnar.“
Ekki á förum
Heimildarmaður
DV segir Jónmund hafa
fjárfest í lóð í Mosfells-
bæ en þangað hyggist
hann flytjast búferlum.
Því hafnar Jónmundur
alfarið og kannast held-
ur ekki við að kæra hafi borist bæn-
um vegna tafa á framkvæmdum við
Hrólfsskálamela. „Það er algjörlega
rangt að til bæjarins hafi borist kæra
frá ÍAV og fyrirtækið hefur ekki orð-
ið fyrir neinum töfum vegna minnar
fjarveru. ÍAV hefur gert athugasemd-
ir vegna skipulagsmála sem eru í ferli
en þau mál hafa ekki tafist vitund og
eru óháð minni fjarveru,“ segir Jón-
mundur.
„Það er fullkomið ranghermi að
ég hafi keypt mér lóð í Mosfellsbæ. Ég
á ekki og hef ekki keypt lóð þar og það
stendur ekki til að flytja þangað. Öll
mál hjá bænum eru í eðlilegum far-
vegi og tómt mál að tala um að þau
hafi tafist af mínum völdum eða ann-
arra. Þetta eru allt alvarlegar ávirð-
ingar sem standast engan veginn.“
trausti@dv.is
TrausTi hafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
VERÐ ÁFRAM BÆJARSTJÓRI
Jónmundur
Guðmarsson
Bæjarstjórinn neitar
því að lögbundin
fjarvera hans hafi
valdið töfum á
málefnum bæjarins.
Trúnaðarbrestur?
Heimildir dV innan raða sjálfstæðismanna í bæjarstjórn seltjarnar-
nesbæjar stangast á við orð bæjarstjórans. Hann kannast ekki við
trúnaðarbrest og hefur ekki heyrt af yfirvofandi uppsögn.
Vann alþjóðlega
ræðukeppni
Sigrún Guðmundsdóttir sigr-
aði í alþjóðlegri ræðukeppni sem
haldin var á heimsþingi samtak-
anna Powertalk International í
Brisbane í Ástralíu í júlí. Sigrún
er fyrsti Íslendingurinn sem nær
svo langt í þessari keppni, sem
haldin er á ensku.
Ræða Sigrúnar fjallaði um
það að njóta nútímans og augna-
bliksins, án þess að hafa of
miklar áhyggjur. Sigrún gegndi
embætti forseta íslensku ITC-
samtakanna á síðasta ári. Power-
talk-hreyfingin á Íslandi ber
nafnið Málfreyjur.
Mikil byggð á
Hólmsheiði
Fyrirtæki geta reist allt að
700 þúsund fermetra hús á
Hólmsheiði verði ný tillaga
að deiliskipulagi að veruleika
og byggt verður eins mikið og
heimilt er.
Skipulagsráð Reykjavík-
ur samþykkti í gær að auglýsa
deiliskipulagstillöguna. Þar
er gert ráð fyrir athafnasvæði
á 170 hekturum lands, þar
af fara um hundrað hektarar
undir lóðir. Byggja má hús upp
á eina til sex hæðir á svæðinu
sem verður tengt við Suður-
landsveg með vegum.
Harður árekstur á
Dalvegi
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Nýbýlavegar og Dalveg-
ar þegar tveir bílar rákust saman
í gærmorgun um tíuleytið. Að
sögn lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu var áreksturinn mjög
harður og var ökumaður annars
bílsins, kona á fertugsaldri, flutt-
ur meðvitundarlaus á sjúkrahús.
Slökkviliðið þurfti að beita klipp-
um til að ná henni út og mynd-
uðust miklar tafir í kjölfarið.
Að sögn lögreglu eru tildrög
slyssins óljós. Ekki fengust upp-
lýsingar um líðan konunnar sem
missti meðvitund. Konan var
með lítið barn með sér og slapp
það nánast ómeitt.
Skotleyfi á starra
Meindýraeyðar geta fengið
undanþágu frá banni við því að
skjóta starra. Guðmundur Óli
Scheving, formaður Félags mein-
dýraeyða, telur minnst tvo nú
hafa slíkt leyfi.
Í DV í gær var haft eftir tveimur
meindýraeyðum að ólöglegt væri
að skjóta starra. Guðmundur seg-
ir greinilegt að viðkomandi séu
ekki meðlimir félagsins þar sem
þeir vissu annars af undanþág-
unni. Í fyrirtækjum þar sem loft-
hæð er mikil þurfi að grípa til þess
örþrifaráðs að skjóta fuglana.
Skjöl um íslenska starfsmenn
Varnarliðsins sem störfuðu á Kefla-
víkurflugvelli á þeim tíma sem her-
stöðinni var lokað verða vistuð hér á
landi til ársins 2016, þegar þau verða
send til Bandaríkjanna í vörslu yfir-
valda. Upphaflega stóð til að flytja
þau strax úr landi en slíkt var talið
óheppilegt starfsmannanna vegna.
DV sendi utanríkisráðuneyt-
inu fyrirspurn um hvort ráðuneytið
myndi rannsaka hvort Varnarliðið
hefði haft undir höndum gögn sem
það hafði ekki heimild til að hafa.
Tilefnið er fréttaflutningur DV af því
að Varnarliðið hafði undir höndum
sjúkraskýrslur frá Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja og upplýsingar frá lög-
reglu um fyrrverandi starfsmann. Í
svari ráðuneytisins segir: „Utanríkis-
ráðuneytinu er ekki kunnugt um að
varnarliðið hafi haft undir höndum
neinar viðkvæmar persónuupplýs-
ingar og önnur gögn um starfsmenn
sína sem það hafði ekki heimild til
að hafa. Hins vegar getur ráðuneytið
staðfest það að
varnarliðiðinu var sem vinnu-
veitanda heimilt að hafa undir und-
ir höndum tilteknar viðkvæmar per-
sónuuplýsingar um starfsmenn sína
svo sem launaseðla, þar sem fram
koma upplýsingar um stéttarfélags-
aðild og upplýsingar um heilsuhagi
svo sem læknisvottorð vegna fjar-
vista og þess háttar.“
Þá segir í svari utanríkisráðu-
neytisins að það varðveiti skjalasafn
starfsmannahalds Varnarliðsins á
grundvelli sérstaks samkomulags við
Bandaríkin, í safninu er að finna gögn
sem varða vinnuréttarsamband milli
einstakra starfsmanna og Varnarliðs-
ins. Þá segir jafnframt: „Með vísan til
umfjöllunar DV varðandi mál-
efni tiltekins fyrrverandi
starfsmanns varnarliðsins
vill ráðuneytið upplýsa að
með bréfi ráðuneytisins,
dags. 30. mars 2007, voru
viðkomandi aðila afhent
þau gögn sem hann bað með
þeim takmörkunum sem leiða
af ríkari einkahagsmunum
annarra starfsmanna varnar-
liðsins. Rétt er að taka fram að
utanríkisráðuneytið hefur um
margra ára skeið afgreitt erindi
frá þeim aðila sem hér um ræðir
og kappkostað að vanda sem mest
afgreiðslu þessara erinda sem oft á
tíðum hafa verið umfangsmikil og
tímafrek.“ valgeir@dv.is
Skjölin árið 2016 til Pentagon
Skjöl um íslenska starfsmenn Varnarliðsins verða hér á landi í 10 ár:
skjöl Verða geymd í 10 ár hér
á landi þar til Pentagon fær
þau til vörslu árið 2016.