Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir fimmtudagur 30. ágúst 2007 7
hafa verið kúgaðar til að þegja um
meðferðina. „Ég veit að tvær stúlkur
þurftu að leita læknisaðstoðar vegna
ofbeldis forstöðumannsins. Eng-
in kæra var lögð fram því stelpurn-
ar voru skíthræddar og foreldrarnir
í mörgum tilvikum illa fyrirkallaðir.
Hann kúgar stelpurnar algjörlega og
passar virkilega upp á að engin kjafti
frá eða kærur skili sér,“ sagði faðirinn
og bætti við:
„Börnin voru niðurlægð í tali, les-
ið upp úr einkadagbókum þeirra fyrir
aðra og þau beitt líkamlegu ofbeldi af
hálfu Ingjalds. Við tókum dóttur okk-
ar þaðan í burtu þrátt fyrir viðvaranir
Ingjalds og Barnaverndarstofu. Þeg-
ar við bárum upp á forstöðumann-
inn andlegt og líkamlegt ofbeldi var
brugðist hart við og litið á kvartanir
okkar sem vesen. Viðbrögðin voru
þau að ef við hættum ekki þessu ves-
eni fengjum við enga aðstoð fyrir
dóttur okkar.“
Vona að þetta sé ekki rétt
Ingibjörgu Guðmundsdóttur,
móður eins af núverandi skjólstæð-
ingum Meðferðarheimilisins að
Laugalandi, varð hverft við að lesa
ásakanir á hendur forstöðumanni
meðferðarheimilisins. Hún segir
hann hafa hlotið meðmæli barna-
verndaryfirvalda og vonar að ásak-
anirnar reynist ekki á rökum reistar.
„Mér brá við að lesa þessar ásakanir
því dóttir mín býr á heimilinu. Hún
hefur verið ánægð í þá daga sem hún
hefur verið þarna en hún hefur ver-
ið mjög stutt. Það er áfall að heyra
ásakanirnar en ég hef ekki orðið vör
við neitt ofbeldi. Ég myndi vilja að
þetta yrði skoðað nánar því þetta er
mjög óþægilegt fyrir foreldrana og
stelpurnar sem eiga heima þarna.
Ég vona að ekkert af þessu sé satt,“
segir Ingibjörg.
Aðspurður undraðist faðirinn
hvítþvott Barnaverndarstofu sem
hann segir að eigi fyrst og fremst að
gæta hagsmuna barna. Hann bend-
ir á fjölda vitnisburða fyrrverandi
skjólstæðinga sem staðfesti ofbeldi
forstöðumannsins. „Margar af stelp-
unum höfðu engan stuðning frá ætt-
ingjum og voru ofurseldar meðferð-
araðilunum. Málið var rannsakað
vel þar sem margar aðrar stúlkur,
sem voru samtímis okkar dóttur á
Laugalandi, komu í viðtöl og studdu
framburð hennar og sögðu frá sinni
reynslu af andlegu og líkamlegu of-
beldi Ingjalds. Í stuttu máli sagt hvít-
þvoði Barnavarndarstofa Ingjald í
hvínandi hvelli og lýsti starfseminni
þar sem einhvers konar míníútgáfu
af Paradís.“
„Í stuttu máli sagt
hvítþvoði Barna-
varndarstofa Ingj-
ald í hvínandi hvelli
og lýsti starfseminni
þar sem einhvers
konar míníútgáfu af
Paradís.“
„Ég vissi að það væri vafasamt að
dæma þarna en mig óraði ekki fyrir því
að þetta væri eitthvað í þessa veru. Það
er náttúrlega hrikalegt að lenda í þessu
og alveg klárt mál að þarna dæmi ég
ekki aftur,“ segir Valur Steingrímsson
knattspyrnudómari.
Davíð Smári Helenarson, mark-
vörður Dynamo Gym 80, réðst á Val
eftir leik við Vatnaliljurnar í Utan-
deildinni í fyrrakvöld. Valur hafði þeg-
ar skammt var til leiksloka vísað leik-
manninum af velli með rautt spjald
fyrir ósæmilega framkomu innan vall-
ar. Er Valur flautaði leikinn af skömmu
síðar réðst Davíð Smári að honum og
sparkaði honum harkalega í jörðina.
Farið var með Val á slysavarðstofu þar
sem hugað var að meiðslum hans.
Þrjú rifbein hans brotnuðu í árásinni
og hann liggur nú fyrir samkvæmt
læknisráði.
Ekkert fordæmi
Stjórn Utandeildarinnar kom sam-
an í gær og fór yfir atvikið. Ekkert for-
dæmi er fyrir slíkri líkamsárás í langri
sögu deildarinnar og þær upplýsing-
ar fengust hjá stjórninni að setja þurfi
skýrt fordæmi fyrir því að svona hegð-
un líðist ekki. Á fundinum var rætt
hversu langt keppnisbann leikmað-
urinn ætti að hljóta í Utandeildinni.
Niðurstaðan varð sú að hann verður í
banni út næsta keppnistímabil.
Davíð Smári hefur nú þegar sett sig
í samband við stjórn deildarinnar og
beðist afsökunar á hegðun sinni. Þar
lýsti hann því yfir að hann iðrist gjörða
sinna og að hann hygðist setja sig í
samband við fórnarlambið.
Dauðsér eftir dómgæslunni
Aðspurður stefnir Valur á að kæra
árásina til lögreglu á næstunni og hefur
í höndum lögregluskýrslu og áverka-
vottorð. Hann segist ekki hafa dæmt
marga leiki í Utandeildinni og segir
þennan leik þann síðasta sem hann
dæmi þar. „Ég hef það alls ekki nógu
gott eftir þessa hræðilegu uppákomu.
Fyrir utan líkamsárásina viðhafði leik-
maðurinn hræðilegar hótanir í minn
garð, þá réðst hann aftan að mér og
sparkaði mig niður. Ég held að það sé
ekki annað hægt en að kæra svona lag-
að,“ segir Valur. „Þetta á ekki að gerast í
fótbolta. Það eru ekki margir dómarar
sem vilja dæma í þessari deild vegna
vandræða oft á tíðum. Á löngum dóm-
araferli hef ég aldrei lent í neinum
vandræðum og ég dauðsé eftir að hafa
tekið að mér að dæma þennan leik.“
trausti@dv.is
Knattspyrnudómari varð fyrir líkamsárás eftir að hafa vísað leikmanni utandeildarliðs
af leikvelli. Í árásinni brotnuðu þrjú rifbein og dómarinn þurfti að leita aðstoðar á slysa-
varðstofu. Stjórn deildarinnar fundaði í gær og úrskurðaði árásarmanninn í leikbann
út þetta keppnistímabil og það næsta.
MARKVÖRÐURINN GEKK
Í SKROKK Á DÓMARANUM
Allur lurkum laminn
Valur liggur sárkvalinn heima fyrir
með þrjú brotin rifbein. Hann óraði
ekki fyrir því að geta lent í líkamsárás
fyrir dómgæslu í fótbolta.
„Á löngum dómara-
ferli hef ég aldrei lent í
neinum vandræðum og
ég dauðsé eftir að hafa
tekið að mér að dæma
þennan leik.“
TrAusTi hAfsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Bræðurnir, sem lögreglan í Borg-
arnesi handtók á sunnudagsmorg-
un ásamt tveimur stúlkum, eru þekkt-
ir glæpamenn og hafa komið við sögu
lögreglu áður. Þeir eru þekktir í undir-
heimunum og hafa stundað fíkniefna-
sölu í Reykjavík. Lögreglan í Reykjavík
staðfesti það að þeir ættu sakaferil að
baki, meðal annars fyrir fíkniefnamis-
ferli og ofbeldisbrot.
Samkvæmt upplýsingum DV hafa
þeir ekið um á hvítri Grand Cherokee-
bifreið með krómfelgum. Lögreglan í
Borgarnesi staðfesti það að þeir hefðu
ekið um á hvítum bíl en vildu ekki gefa
nánar upp um tegundina. Mennirn-
ir verða að líkindum ákærðir fyrir lík-
amsárás, umferðarlagabrot og fíkni-
efnamisferli en þeir óku aftan á bifreið
tveggja manna um sjöleytið á sunnu-
dagsmorgun og gengu í skrokk á far-
þega bifreiðarinnar.
Málavextir eru þeir að bræðurnir
héldu frá Reykjavík í átt að sumarbú-
stað í Hvalfirði þar sem fórnarlamb-
ið var statt ásamt félaga sínum aðfara-
nótt sunnudagsins. Bræðurnir töldu sig
eiga óuppgerð mál við fórnarlambið en
með þeim í för voru tvær stúlkur um
tvítugt. Að sögn Theódórs Þórðarsonar,
yfirlögregluþjóns í Borgarnesi, fundu
bræðurnir ekki sumarbústaðinn og
brugðu því á það ráð að hringja í fórn-
arlambið og lokkuðu það til sín. Mað-
urinn fór út úr bústaðnum með félaga
sínum og fór sem leið liggur niður á
veginn til að hitta bræðurna. Þegar þeir
sáu hvað verða vildi forðuðu þeir sér á
bílnum og hringdu og óskuðu eftir að-
stoð frá lögreglu. Bræðurnir héldu þá á
eftir þeim og brugðu á það ráð að keyra
aftan á bíl þeirra til að ná honum út af
veginum. Bræðrunum tókst ætlunar-
verk sitt og endaði bíllinn utan vegar
mikið skemmdur eftir aftanákeyrsluna.
Ökumaðurinn forðaði sér út úr bílnum
en farþeginn læsti að sér en hann var sá
sem mennirnir voru á eftir. Bræðurn-
ir hoppuðu þá á þaki bílsins og brutu
rúður til að draga manninn út þar sem
höggin voru látin dynja á honum.
Bræðurnir eru fæddir árið 1973 og
1981 en talið er að þeir hafi verið und-
ir áhrifum kókaíns. Lögreglan í Borg-
arnesi og á Akranesi var kvödd á vett-
vang og handtók ódæðismennina en
neysluskammtar af kókaíni fundust í
bifreið þeirra.
Lokkuðu fórnarlambið til sín
Mennirnir sem voru handteknir á sunnudaginn eru þekktir úr undirheimum borgarinnar:
Lögreglan Ódæðismennirnir
eru þekktir bræður úr undir-
heimastarfsemi reykjavíkur.