Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Side 12
Menning
fimmtudagur 30. ágúst 200712 Menning DV
Tengsl í norðri
Út er komið ritið Vänner, patroner och klienter i Norden 900–1800 þar
sem fjallað er um vináttu, óformleg samskipti og tengsl manna á milli á
Norðurlöndum á fyrri öldum. Í bókinni eru tólf ritgerðir eftir norræna
sagnfræðinga sem ræddu þetta viðfangsefni á norræna sagnfræðinga-
þinginu sem haldið var í Reykjavík í ágúst.
leiklist
Dans
Möguleikhúsið hefur tilkynnt verkefnaskrá vetrarins:
Níu íslensk verk
Möguleikhúsið er nú að hefja átj-
ánda leikár sitt en frá upphafi hefur
leikhúsið lagt áherslu á að bjóða upp
á frumsamið íslenskt efni fyrir börn
og unglinga. Þetta leikár verður eng-
in undantekning frá þeirri reglu.
Það verða níu íslensk verk á boð-
stólum hjá
Möguleikhús-
inu í vetur, ein
ný sýning, ein sem tekin er upp að
nýju eftir nokkurra ára hlé, fjórar frá
fyrra leikári og tvær gestasýningar.
Allt eru þetta farandsýningar sem
unnt er að koma með í skóla, auk
þess sem hópum býðst að koma og
sjá sýningarnar í sal Möguleikhúss-
ins við Hlemm.
Þær sýningar, sem í boði eru í vetur
fyrir aldurshópinn 2 til 10 ára, eru Höll
ævintýranna eftir Bjarna Ingvarsson í
leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar,
Landið Vifra sem byggt er á barna-
ljóðum Þórarins Eldjárn, Smiður jóla-
sveinanna eftir Pétur Eggerz, Langafi
prakkari eftir Pétur byggt á sögum Sig-
rúnar Eldjárn, Hvar er Stekkjarstaur?
eftir Pétur og svo Sæmundur Fróði í
leikgerð títtnefnds Péturs fyrir áhorf-
endur á aldrinum 6 til 12 ára.
Fyrir þá sem eru orðnir aðeins
eldri, eða eru í eldri bekkjum grunn-
skóla og framhaldsskóla, eru það svo
Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson
í leikgerð og leikstjórn Öldu Arnar-
dóttur, Gísli Súrsson í leikgerð Elf-
ars Loga Hannessonar og Jóns Stef-
áns Kristjánssonar en um er að ræða
gestasýningu Kómedíuleikhússins
sem heimsækir höfuðborgarsvæðið
1.–12. október og 25. febrúar–7. mars,
og Skrímsli – einleikinn gamanleik-
ur eftir Pétur Eggerz og Elfar Loga
Hannesson. Þetta er einnig gestasýn-
ing Kómedíuleikhússins sem sýnd
verður á höfuðborgarsvæðinu 1.–12.
október og 25. febrúar–7. mars.
Nánari upplýsingar um sýning-
arnar er að finna á moguleikhusid.
is.
„Öll atriðin voru valin gaum-
gæfilega og það er hiklaust hægt að
mæla með þeim öllum,“ segir Hild-
ur Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri
Reykjavík Dance Festival, sem hefst
í kvöld og stendur yfir alla helg-
ina. Hátíðin var fyrst haldin árið
2002 og hefur verið haldin árlega
síðan ef frá er talið eitt skipti. Að
sögn Hildar hefur undirbúningur
gengið vel. „Það er náttúrlega kom-
in nokkur reynsla á þessa hátíð og
danshöfundarnir og listamenn-
irnir öllu vanir. Það hefur líka ver-
ið mjög gaman fyrir mig, sem er
hvorki dansari né telst sérstaklega
listræn, að taka þátt í þessu verkefni
með þeim,“ segir Hildur sem kemur
að undirbúningi hátíðarinnar nú í
fyrsta sinn.
Stærri hátíð en áður
Hún segir hátíðina í ár vera
nokkuð stærri en fyrri ár. „Ekki
síst huglægt séð þar sem við fær-
um okkur aðeins nær almenningi.
Við erum ekki lengur inni í lokuðu
rými leikhússins heldur förum við
út á götu, inn á kaffihúsin, út í búð-
argluggana og til fólksins. Þetta er
ekki síst vegna þess að við viljum
gera almenningi kleift að nálgast
nútímadansinn því fólk hefur svo-
lítið veigrað sér við þessu listformi.
Í staðinn fyrir að biðja það alltaf að
koma til okkar ætlum við að fara til
þess,“ segir Hildur.
Boðið verður upp á göngur um
miðborgina með leiðsögn þar sem
horft verður á dansa víðs vegar um
borgina. „Fólk hittist þá á Aust-
urvelli og gengur með leiðsögu-
manni um göturnar. Staldrað er
við á óhefðbundnum stöðum og
fylgst með danssýningu, til dæm-
is við búðarglugga, og svo er meira
að segja farið heim til eins dansar-
ans á Grundarstígnum. Við erum
því aðeins að færa nútímadansinn
inn í hversdagsleikann,“ segir Hild-
ur og bætir við að búið sé að fá leyfi
frá tilteknum búðareigendum til að
dansa í gluggunum hjá þeim.
Bæði fyrir vana og óvana
Hildur segir þó líka vera boð-
ið upp á hefðbundið leikhús öll
kvöldin sem hátíðin stendur yfir.
„Þá verða þrjár danssýningar í
Verinu sem er við hliðina á Loft-
kastalanum. Þótt það sé ekki leik-
hús er það í leikhúsformi sem
við þekkjum. Við höfum búið til
dansheim, eða black box studio
svokallað, sem ég held að hafi
ekki verið gert fyrr og er mjög
skemmtilegt.“
Eins og áður sagði segist Hild-
ur geta klárlega mælt með öllum
sýningunum. „Það fer svolítið eft-
ir smekk fólks hvað það vill upp-
lifa. Þeim, sem hafa séð mikið
af danssýningum, finnst kannski
hressandi að fara í göngurnar og
setja hann í nýtt samhengi. Þeir
sem ekki hafa kynnt sér dans-
inn vilja kannski byrja með hefð-
bundnari hætti með því að kíkja á
kvöldsýningu í Verinu.“
Hægt er að kaupa miða á midi.
is, bæði á stakar sýningar og
passa sem gildir á alla viðburði
hátíðarinnar.
kristjanh@dv.is
Danshátíðin Reykjavík Dance Festival hefst í kvöld og stendur yfir fram á sunnudag.
Fimmtán dansverk verða sýnd á hátíðinni og koma tugir dansara víðs vegar að
fram á hátíðinni. Og það verður ekki bara dansað inni í húsum.
Umkomulaus
börn
Sýningin Umkomulausu
börn Afganistan verður opn-
uð í Skotinu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í dag. Það er lista-
maður að nafni Dante, sem
býr og starfar í Reykjavík, sem
tók myndirnar. Þær sýna börn
í Afganistan í daglegu lífi sem
einkennist af óróleika stríðs-
rekstrar og óstöðugleika á
svæðinu eins og alkunna er. Að
sögn Dantes hafa börnin þurft
að þola meira harðræði fyrir
níu ára aldur en flest fólk kynn-
ist á heilli mannsævi. Þrátt fyrir
þetta skynjaði hann hjá þeim
einlæga von og styrk til að tak-
ast á við framtíðina. Sýningin
stendur til 24. október.
Merkismanna
minnst
Á dagskrá Kvikmyndasafns
Íslands í haust verður minnst
merkra manna sem féllu frá á
árinu: leikstjóranna Ingmars
Bergman og Michelangelo Ant-
onioni, Baldvins Halldórssonar,
leikara og leikstjóra, og Péturs
Rögnvaldssonar kvikmynda-
leikara. Haustdagskráin hefst
með þremur kvikmyndum
eftir Bergman: Sem í skugg-
sjá (Såsom i ett spegel) sem
sýnd verður 4. og 8. september,
Kvöldverðargestirnir (Natvärds-
gästerna), sýnd 11. og 15. sept-
ember, og Þögnin (Tystnaden),
sýnd 18. og 20. september. Að
venju verða sýningar Kvik-
myndasafnsins á þriðjudögum
kl. 20 og laugardögum kl. 16.
Yfirlitssýning
á verkum
Eggerts
Listasafn Reykjavíkur og
Landsbankinn hafa gert með
sér samkomulag um samstarf
vegna stórrar yfirlitssýningar
á verkum Eggerts Pétursson-
ar listmálara á Kjarvalsstöðum
sem opnuð verður 8. septemb-
er. Auk þess að styðja sýning-
una með veglegu framlagi lánar
Landsbankinn verk á sýninguna
en bankinn á eitt stærsta ein-
staka safn verka Eggerts. Eggert
er kunnur fyrir einstök málverk
sín af fínlegri og harðgerri nátt-
úru landsins sem hann málar af
mikilli nákvæmni. Verk Eggerts
á sýningunni spanna feril hans
frá upphafi til dagsins í dag og
hafa sum hver aldrei komið fyrir
sjónir almennings áður. Sýning-
in stendur til 4. nóvember.
Úr Höll ævintýranna möguleikhúsið
við Hlemm er nú að hefja sitt átjánda
leikár.
DANSAÐ Í HEIMAHÚSUM
OG BÚÐARGLUGGUM
Dansað á Austurvelli dansarar
komu saman á austurvelli í gær til
að kynna hátíðina.
DV myndir Stefán
Hildur Sverrisdóttir
framkvæmdastjóri reykjavík
dance festival segir hátíðina
þá stærstu hingað til.