Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Side 17
DV Sport fimmtudagur 30. ágúst 2007 17
enski boltinn
What a Waste of money
stuðningsmenn Leeds kalla ekki allt
ömmu sína. Þegar dadid Nugent skoraði
sitt fyrsta mark fyrir Portsmouth sungu
stuðningsmenn Leeds „What a waste of
money!“ framtíð
Nugents hefur
verið mikið í
umræðunni upp á
síðkastið þrátt
fyrir að hafa
komið til
Portsmouth fyrir
tveimur
mánuðum. Hann
er nú orðaður við
derby þar sem Billy davis er stjóri en
hann var stjóri Prestons þegar Nugent
skapaði sér nafn. „Það er ekkert
leyndarmál að derby vill fá Nugent. Ef
fólk er óánægt á vinnustað verður maður
að sleppa takinu,“ sagði Harry redknapp,
stjóri Portsmouths. „Þetta er allt í hans
höndum. Ég mun setjast niður með
honum og fara yfir hans mál í rólegheit-
um,“ bætti redknapp við. Kanu, John
utaka og Benjani eru allir á undan
Nugent í framlínu Portsmouths en sá
síðastnefndi hefur virkað frekar utangátta
í leikjum liðsins. „Við erum að leita að
framherja. Ef ég kaupi verður það mjög
góður framherji. Ég ætla ekki að kaupa
bara einhvern, bara til þess að kaupa. Ég
efast um að það verði anelka. mér líkar
vel við hann en ég efast um að hann vilji
koma. Ég þarf samt mann sem skorar 15-
20 mörk og það eru ekki margir sem geta
það. til að það geti gerst þarf ég að fórna
einum eða tveimur góðum leikmönnum.
Hins vegar gæti ég fengið heimsklassam-
ann í staðinn.“
myndum elska ef
Ronaldinho kæmi
fyrirliði Chelsea, John terry, býst ekki við
því að ronaldinho komi til liðsins en myndi
elska það ef hann kæmi. miklar
vangaveltur hafa
verið um framtíð
ronaldinhos hjá
Barcelona en
eigandi Chelsea er
að sögn tilbúinn
að borga hvaða
upphæð sem er til
að fá leikmanninn.
„Hann yrði frábær
viðbót við
leikmannahópinn. Ég hef spilað á móti
honum og séð hvað hann er góður. Hann
er mun betri en sést í sjónvarpinu. Það yrði
ekki bara frábært fyrir Chelsea ef hann
kæmi heldur einnig fyrir deildina. Það
getur ekki verið slæmt að geta sagt að
ronaldinho spili í ensku deildinni,“ sagði
landsliðsfyrirliðinn. Barcelona hefur alltaf
þvertekið fyrir það að selja sína stærstu
stjörnu og hann er að sögn við það að
skrifa undir nýjan samning. „Hann myndi
passa í okkar lið, við erum með kantmenn
sem eiga að sækja en líka að verjast. Við
höfum séð það að Jose mourinho hefur
stundum tekið Joe Cole eða shaun Wright-
Phillips út af vegna þess að þeir verjast ekki
nægilega vel.“
eveRton ekki hætt
Everton fer mikinn á leikmannamarkaðin-
um þessa dagana. stephen appiah, leik-
maður fenerbache, er undir smásjánni
hjá david moyes, stjóra Everton, sem
lengi hefur hrifist
af leikmanninum.
fjöldi liða var á
eftir kappanum
í sumar en fen-
erbache hafnaði
tvívegis tilboðum
í hann á þeim
tima. appiah er
ganamaður og
spilaði áður fyrir
Juventus en vitað er af áhuga nokkurra
liða í ensku knattspyrnunni á honum og
oft hefur West Ham verið nefnt á nafn
þegar hugsanleg kaup á kappanum eru
nefnd.
tvisvaR hjaRtastopp hjá ClaRke
Hjarta Clives Clarke stöðvaðist tvívegis í
hálfleik og eftir leik Notthingaham forrest
og Leicester í enska deildarbikarnum.
Clarke hneig
niður í hálfleik á
leiknum og var
leiknum hætt í
kjölfarið. Hann var
fluttur með
sjúkrabíl á spítala
og er líðan hans
stöðug.
umboðsmaður
Clarkes, gary
mellor, sagði í samtali við BBC-útvarpsstöð-
ina að hann væri allur að braggast og gæti
talað við fjölskyldu sína og vini. „Blástursað-
ferðin virkaði ekki og því var hann lífgaður
við með rafstuði,“ segir mellor.
antonio puerta er borinn til grafar í dag:
ÞÚSUNDIR VOTTUÐU PUERTA VIRÐINGU SÍNA
Þúsundir knattspyrnuáhugamanna
umkringdu Sanchez Pizjuan, heima�
völl Sevilla, í gær og vottuðu Antonio
Puerta virðingu sína. Þegar mest lét
er talið að um tíu þúsund manns hafi
verið fyrir utan völlinn.
Puerta lést á þriðjudaginn, þrem�
ur dögum eftir að hafa fengið hjarta�
áfall í leik Sevilla og Getafe. Farið var
með líkkistu Puerta á völlinn en kistan
var umlukin fána Sevilla og þjóðfána
Spánar. Þar gat fólk vottað virðingu
sína og stuðningsmenn Sevilla sungu
„Puerta amigo, Sevilla esta contigo!“
(Puerta vinur, Sevilla er með þér).
Margir stuðningsmanna Real Betis,
erkifjenda Sevilla, voru einnig mættir
til að votta Puerta virðingu sína en Pu�
erta fæddist í verkamannahverfi borg�
arinnar.
Leikmenn Sevilla komu beint af
flugvellinum, en þeir snéru aftur til
Sevilla eftir að leik þeirra við AEK
Aþenu í undankeppni Meistaradeild�
ar Evrópu var frestað. Leikmennirnir
voru hjá fjölskyldu Puerta og báru kist�
una út. Mar, eiginkona Puerta, gengur
með barn þeirra hjóna og á von á sér
í október.
„Dagurinn í dag er einn sá sorgleg�
asti í sögu félagsins. Vinstri fótur hans
var demantur sem nú hefur yfirgefið
okkur, vinstri fótur sem breytti lífi okk�
ar hefur nú yfirgefið okkur,“ sagði Jose
Maria del Nero, forseti Sevilla, þegar
ljóst var að Puerta væri látinn.
Joaquin Caparros, þjálfari Athletic
Bilbao og fyrrverandi þjálfari Puerta
hjá Sevilla, sagði að Puerta hefði átt
bjarta framtíð fyrir sér. „Mér líður eins
og öllum í fótboltanum líður, nema
hvað að ég var svo heppinn að þekkja
hann betur. Hann var frábær leikmað�
ur og jafnvel enn betri manneskja, full�
ur manngæsku og átti sér bjarta fram�
tíð,“ sagði Caparros. dagur@dv.is
harmi slegnir Leikmenn sevilla báru líkkistu Puerta út af heimavelli félagsins, þar
sem fólk gat vottað hinum látna virðingu sína.
Arsenal vann auðveldan sigur á
tékkneska liðinu Sparta Prag í gær
3�0. Leikurinn var síðari leikur lið�
anna í undankeppni Meistaradeild�
ar Evrópu. Arsenal vann fyrri leik�
inn 2�0. Arsenal er þar með komið í
riðlakeppni Meistaradeildarinnar en
dregið verður í riðlakeppnina í dag.
Arsenal náði strax undirtökun�
um í leiknum og Tomas Rosicky kom
liðinu yfir með marki eftir aðeins sjö
mínútna leik. Rosicky lék áður með
Sparta og var því að skora gegn sín�
um gömlu félögum.
Sparta Prag reyndi hvað það gat
til að laga stöðuna en sóknarloturnar
voru máttlitlar og Arsenal átti í litlum
vandræðum með að verjast þeim.
Leikmenn Arsenal virtust taka lífinu
með ró, enda með öruggt forskot.
Fátt markvert gerðist í leiknum
þar til Arsenal skipti þeim Cesc Fa�
bregas og Emmanuel Adebayor inn
á. Við það lifnaði yfir leiknum og Fa�
bregas kom Arsenal í 2�0 á 82. mín�
útu.
Þar með voru úrslitin endanlega
ráðin. Arsenal átti þó eftir að skora
eitt mark til viðbótar. Þar var að verki
brasilíski Króatinn Eduardo Da Silva,
mínútu fyrir leikslok. Þetta var fyrsta
mark hans fyrir Arsenal.
„Við viljum fara alla leið, líkt og við
gerðum fyrir tveimur árum en vinna
að þessu sinni. Meistaradeildin er
ein skemmtilegasta deildin, ásamt
ensku deildinni og það verður okkar
markmið að vinna þær báðar.
Mér fannst mjög mikilvægt að
skora fyrsta markið snemma og losa
um pressuna og það er gaman að
sjá miðjumann skora, líkt og Tomas
gerði,“ sagði Cesc Fabregas eftir leik�
inn.
tvö skosk lið áfram
Skosku meistararnir í Glasgow
Celtic lentu í vandræðum með rúss�
neska liðið Spartak Moskva. Scott
McDonald kom Celtic yfir á 27. mín�
útu, mínútu eftir að Roman Pavlu�
chenko hafði klúðrað vítaspyrnu fyr�
ir Spartak.
Pavluchenko lét það ekki á sig fá
og jafnaði metin skömmu áður en
flautað var til leikhlés. Fyrri leikur
liðanna fór 1�1 og því þurfti að fram�
lengja. Í framlengingunni fékk Celt�
ic kjörið tækifæri til að vinna leikinn
þegar dæmd var vítaspyrna á Spar�
tak. Hollendingurinn Jan Vennegoor
of Hesselink tók spyrnuna en mis�
tókst að skora.
Leikurinn fór því í vítaspyrnu�
keppni þar sem Celtic skoraði úr
fjórum spyrnum en Spartak aðeins
úr þremur. Artur Buruc, markvörður
Celtic, var hetja liðsins þar sem hann
varði tvær spyrnur rússneska liðs�
ins og tryggði Celtic áframhaldandi
þátttöku.
„Ég vissi að þetta yrði opinn og
skemmtilegur leikur en ég vissi ekki
að hann yrði svona opinn. Þvílíkur
leikur! Við höfum séð nokkra frábæra
leiki hér en þessi var stórkostlegur.
Andlegur styrkur okkar var mik�
ill og þeir léku vel í fyrri hálfleik. Mér
fannst eins og við myndum vinna.
Mér fannst þetta vera okkar tími. Við
vorum sterkari andlega og það hjálp�
aði okkur líkamlega,“ sagði Gordon
Strachan, stjóri Celtic, eftir leikinn.
Skotar eiga tvö lið í Meistaradeildinni
þar sem Rangers tryggði sér einnig
sæti í riðlakeppninni í vikunni.
Portúgalska liðið Benfica tryggði
sér sæti í riðlakeppni Meistaradeild�
ar Evrópu með því að leggja FC Köb�
enhavn að velli 1�0, í Kaupmanna�
höfn. Fyrri leikurinn endaði 2�1 fyrir
Benfica og því vann portúgalska liðið
3�1 samanlagt.
Grikkinn Kostas Katsouran�
is skoraði eina mark leiksins í gær á
17. mínútu. Rui Costa tók þá auka�
spyrnu, boltinn barst til Katsouranis
sem skoraði með skoti framhjá Jesper
Christiansen, markverði danska liðs�
ins. Markið kom gegn gangi leiksins,
því FC Köbenhavn fékk góð mark�
tækifæri á fyrstu fimmtán mínútum
leiksins.
daguR sveinn dagbjaRtsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
fyrsta markið Emmanuel
adebayor fagnar félaga sínum
Eduardo da silva, sem skoraði sitt
fyrsta mark fyrir arsenal í gær.
Arsenal er komið í riðla-
keppni Meistaradeildar
Evrópu eftir 3-0 sigur á
Sparta Prag. eduardo da
silva skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Arsenal.
lÉtt oG lÖÐUR-
MAnnleGt