Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Side 18
fimmtudagur 30. ágúst 200718 Sport DV
Kieron Dyer varð fyrir því óláni að fótbrotna í leik West Ham og Bristol Rovers. Það er
því ljóst að fjórir af fimm leikmönnum sem West Ham keypti í sumar eru meiddir.
2,8 milljarðar
á sjúkralista
Engu er líkara en að bölvun hvíli á
nýjum leikmönnum Íslendingaliðs-
ins West Ham. Kieron Dyer fótbrotn-
aði í leik West Ham og Bristol Rovers
í enska deildarbikarnum á þriðjudag-
inn. Hann er fjórði nýi leikmaður fé-
lagsins sem meiðist skömmu eftir
að ganga í raðir West Ham. Hinir eru
Julien Faubert, Freddie Ljungberg og
Scott Parker.
Julien Faubert var keyptur til West
Ham frá Bordeaux í sumar fyrir 6,1
milljón punda, um 790 milljónir
króna. Hann skaddaði hásin í æfinga-
leik gegn tékkneska liðinu Sigma Olo-
mouc og verður frá keppni fram í jan-
úar, hið minnsta.
West Ham keypti Freddie Ljung-
berg frá Arsenal í júlí fyrir þrjár millj-
ónir punda, um 388 milljónir króna.
Ljungberg lék fyrsta leik West Ham
á tímabilinu. Skömmu síðar tognaði
hann í kálfa og hefur ekki getað leikið
síðan.
Scott Parker kom til West Ham frá
Newcastle fyrir sjö milljónir punda,
um 907 milljónir króna. Hann meidd-
ist á hné á undirbúningstímabilinu
og hefur ekkert leikið með West Ham
það sem af er tímabilsins. Það styttist
þó óðum í að hann nái sér af meiðsl-
unum.
Kieron Dyer lék sinn fyrsta leik
með West Ham gegn Birmingham eft-
ir að West Ham keypti hann frá New-
castle fyrir sex milljónir punda, um
777 milljónir króna. Dyer varð hins
vegar fyrir því óláni í leik West Ham og
Bristol Rovers á þriðjudaginn að fót-
brotna. Ekki er ljóst á þessari stundu
hvað Dyer verður lengi frá keppni.
Kærulaus tækling
„Félagið getur staðfest að Kieron
Dyer er með tvær sprungur í leggnum.
Það kom í ljós á röntgenmynd sem tek-
in var í gær. Það er of snemmt að segja
til um á þessari stundu hve lengi leik-
maðurinn verður frá keppni. Það kem-
ur í ljós þegar fyrsta aðgerðin verður
gerð,“ segir í yfirlýsingu sem West Ham
sendi frá sér í gær.
Alan Curbishley, stjóri West Ham,
segir að Joe Jacobson, leikmaður Bris-
tol Rovers sem braut á Dyer, hafi verið
kærulaus í tæklingu sinni. „Leikmenn
Bristol Rovers hljóta að vera mjög
ósáttir við tæklingu hans. Eins og ég
sá þetta þá sparkaði hann í Dyer eftir
að hafa misst boltann og hitti á slæm-
an stað. Yrðir þú ekki reiður? Það sáu
allir að hann að sparkaði í hann,“ segir
Curbishley.
Hann segir einnig að svo geti far-
ið að félagið verði að kaupa fleiri leik-
menn til að mæta meiðslum þess-
ara manna. „Á þessari stundu finnst
mér eins og að lukkan sé á móti mér.
Við erum með leikmenn að verðmæti
meira en 20 milljónir punda meidda.
Það er mjög svekkjandi en við verð-
um að halda áfram og til þess erum
við með leikmannahóp. Ég verð að
meta stöðuna og okkur vantar mann
á hægri kantinn. En hver vill koma og
spila fyrir okkur eftir það sem á undan
er gengið?“ segir Curbishley.
Hann segist miður sín yfir meiðsl-
um Dyers. „Ég er auðvitað ánægður
með að vera kominn áfram í deildar-
bikarnum en leikurinn var aukaatriði
eftir að Kieron meiddist. Ég er mjög
miður mín því hann var að spila vel í
sinni uppáhaldsstöðu, á miðjunni,“
segir Curbishley.
Paul Trollope, stjóri Bristol Rovers,
er ósammála Curbishley og segir að
þetta hafi verið slys. „Joe er heiðarleg-
ur strákur og hann gerði tilraun til að
sparka í boltann. Þetta var einfaldlega
óheppilegt slys,“ segir Trollope.
Finnum allir til með honum
Dyer hefur verið óheppinn með
meiðsli á ferlinum og hefur meðal
annars glímt við þunglyndi vegna
allra meiðslanna. Liðsfélagar Dyers
hjá West Ham virðast slegnir yfir
fótbrotinu og hafa reynt sitt til að
hughreysta kappann.
„Ég hef spilað með honum
áður og ég veit hvernig hann spil-
ar. Mér fannst hann spila vel gegn
Birmingham og á laugardaginn
gegn Wigan. Vonandi verður hann
klár fyrr en síðar,“ segir Lee Bowy-
er, sem spilaði með Dyer hjá New-
castle. Þeir félagar lentu í slagsmál-
um í miðjum leik með Newcastle á
sínum tíma og skömmu síðar var
Bowyer seldur.
Lucas Neill, fyrirliði West Ham,
meiddist skömmu eftir að hann var
keyptur til félagsins í janúar. Hann
sagði að mikilvægt væri að leik-
menn West Ham stæðu við bakið
á Dyer.
„Við finnum allir til með hon-
um. Við munum fara og heimsækja
hann og óska honum skjóts bata.
Þetta er leiðinlegur tími fyrir fót-
boltamann og enginn vill lenda í
þessu,“ segir Neill.
dagur@dv.is
meistaradeild evrópu
Dynamo Kyiv - FK Sarajevo 3-0
dynamo Kyiv vann samtals 4-0.
S. Donetsk - Red Bull Salzburg 3-1
shakhtar donetsk vann samtals 3-2.
Besiktas - FC Zurich 2-0
Besiktas vann samtals 3-1.
Steaua Bucuresti - BATE 2-0
steaua Bucuresti vann samtals 4-2.
D. Zagreb - Werder Bremen 2-3
Bremen vann samtals 5-3.
Slavia Prag - Ajax 2-1
slavia Prag vann samtals 3-1.
Anderlecht - Fenerbahce 0-2
fenerbahce vann samtals 3-0.
Celtic - Spartak Moskva 1-1
Celtic vann í 4-3 vítaspyrnukeppni og
6-5 samanlagt.
Elfsborg - Valencia 1-2
Valencia vann samtals 5-1.
FC Köbenhavn - Benfica 0-1
Benfica vann samtals 3-1.
Rosenborg - Tampere 2-0
rosenborg vann samtals 5-0.
Arsenal - Sparta Prag 3-0
arsenal vann samtals 5-0.
enski deildarbikarinn
Bristol City - Man. City 1-2
Middlesbrough - Northampton 2-0
Newcastle - Barnsley 2-0
franska úrvalsdeildin
Marseille - Nice 0-2
Auxerre - Rennes 0-2
Le Mans - PSG 0-2
Lille - Monaco 0-1
Metz - Bordeaux 0-1
St. Etienne - Strasbourg 2-0
Sochaux - Lyon 1-2
Staðan
Lið L u J t m st
1. monaco 6 4 1 1 11:4 13
2. Nancy 5 4 1 0 11:4 13
3. Valencie. 6 4 1 1 12:7 13
4. Bordeaux 6 3 2 1 7:4 11
5. rennes 6 3 2 1 6:3 11
6. Lorient 6 3 2 1 10:8 11
7. strasbo. 6 3 1 2 8:5 10
8. Le mans 6 3 1 2 8:8 10
9. st.Etienne 6 2 2 2 6:4 8
10. Nice 6 2 2 2 6:5 8
11. Lille 6 1 4 1 5:5 7
12. Psg 6 1 4 1 4:4 7
13. Lyon 4 2 0 2 4:3 6
14. marseille 6 1 3 2 5:7 6
15. toulouse 4 1 1 2 4:7 4
16. Caen 4 1 0 3 2:4 3
17. auxerre 6 1 0 5 2:13 3
18. Lens 4 0 2 2 1:3 2
19. sochaux 5 0 2 3 3:10 2
20. metz 6 0 1 5 1:8 1
úrslit í gær
íÞrÓttamOlar
FriðriK léK leiK númer 100
miðherjinn friðrik stefánsson lék sinn
100. landsleik fyrir
Íslands hönd í
gærkvöld þegar
Ísland tók á móti
georgíu í
Evrópukeppni
B-þjóða í
Laugardalshöll.
friðrik fékk afhent
gullúr frá KKÍ fyrir
áfangann.
guðmundur
Bragason hefur leikið flesta leiki fyrir
Ísland eða 169.
í Dag
19:00 ensKu mörKin
20:00 Premier league WorlD
Heimur úrvalsdeildarinnar
Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin
er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum.
20:30 Premier league ClassiC
BEstu LEiKir úrVaLsdEiLdariNNar
21:00 Premier league ClassiC
BEstu LEiKir úrVaLsdEiLdariNNar
21:30 season HigligHt
22:30 4-4-2
23:50 CoCa Cola mörKin 2007-2008
farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í
leikjum síðustu umferðar í Coca Cola
deildinni.
enn og aftur meiddur Kieron
dyer hefur verið mjög óheppinn
með meiðsli á ferlinum og varð
fyrir því að fótbrotna á
þriðjudaginn.
Dagur sveinn Dagbjartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
Newcastle komst auðveldlega í þriðju umferð deildarbikarsins:
Owen á skotskónum
Michael Owen skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Newcastle á tímabil-
inu þegar liðið lagði Barnsley 2–0.
Owen skoraði eftir 12 mínútna leik
og endaði þar með 20 mánaða bið
Newcastle eftir marki frá þessum
mikla markvarðarhrelli. Markið
kom eftir 57 mínútna leik og kom
eftir sendingu frá Shola Ameobi.
Fram að markinu var Newcastle
búið að vera mun sterkara í leikn-
um en tókst ekki að nýta færin.
Hins vegar fengu gestirnir í Barns-
ley tvö ágæt færi en Dwayne Matt-
is og Martin Devaney skutu báð-
ir framhjá. Fjórum mínútum fyrir
leikslok skoraði Obafemi Martins
síðara mark Newcastle í leiknum
eftir að hafa komið inn á sem vara-
maður með föstu skoti.
Rolando Bianchi, sem kost-
aði rúman milljarð króna, tryggði
Manchester City sigur þegar lið-
ið hans Svens-Görans Ericksson
vann Bristol 2–1. City hafði verið
mun sterkara í leiknum og komst
verðskuldað yfir með marki Em-
ilies Mpenza en tókst ekki frekar
að nýta sér yfirburðina á vellinum.
Þeir fengu átta frábær færi til að
auka forustuna og fóru þar fremstir
í flokki framherjarnir tveir Mpenza
og Bianchi. Shalem Logan, enn eitt
ungstirnið sem kemur úr unglinga-
akademíu City-manna, fékk frá-
bært færi en hinn 19 ára gamli Log-
an klúðraði illilega.
Þvert gegn gangi leiksins jafn-
aði Bradley Orr svo leikinn og héldu
margir að ævintýrið frá því í fyrra
myndi endurtaka sig hjá City. Þá
féll City úr keppni fyrir Chesterfield
á sama stigi og núna. Bianchi kom
hins vegar Sven-Göran til bjarg-
ar með stórbrotnu marki af um 30
metra færi.
Middlesbrough vann auðveld-
an sigur á Northampton 2–0. Fabio
Rochemback skoraði fyrsta mark-
ið og Dong Gook Lee bætti síðari
markinu við þegar hálftími var eftir
af leiknum. benni@dv.is
loksins mark michael Owen
skoraði eftir 20 mánaða bið.