Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Blaðsíða 20
fimmtudagur 30. ágúst 200720 Hjólið mitt DV
Ragnar Þór Ingólfsson, verslun-
arstjóri í Erninum, segir hvert met-
ið á eftir öðru vera slegið í hjólasölu.
„Ég man þegar ég byrjaði að vinna
í hjólabransanum í kringum 1990,
þá stóð ég vaktina í nánast mann-
lausri búð, þrjá til fjóra mánuði á
ári. Núna er óslitin sala allan árs-
ins hring.“ Það eru ýmsir þættir sem
spila inn í þessa aukningu á hjól-
reiðanotkun landsmanna að mati
Ragnars. „Mildara veðurfar hefur
vissulega sitt að segja. Hjólin eru
líka orðin svo góð og úrvalið af þeim
hefur aukist svo um munar. Hvatn-
ingarátakið sem Íþrótta- og ólymp-
íusamband Íslands hrinti af stað
fyrir fimm árum, Hjólað í vinnuna,
hefur líka komið mjög vel út.“
Hjól við allra hæfi
„Fyrir fimm til tíu árum seldust
aðallega fjallahjól með flötu stýri
en núna erum við með fimmtán
mismunandi tegundir. Það er mis-
jafnt eftir aldri og kyni hvað er vin-
sælast. Unglingarnir velja marg-
ir freestyle-hjól eða BMX, en það
eru svona stökkhjól,“ segir Ragn-
ar. „Eldra fólk velur mikið svo-
kölluð Comfort-hjól sem eru með
breitt sæti og hátt stýri. Þessi hjól
eru ætluð til frístundahjólreiða.
Svo eru Cruserar líka vinsæl hjól.
Það eru svona töffarahjól sem
þjóna litlum öðrum tilgangi en að
sýna sig og sjá aðra.“ Ragnar seg-
ir að það færist mikið í aukana að
fólk keppi í hjólreiðum en slík hjól
þurfi að vera ansi vel búin. „Þetta
eru svona Tour de France-hjól og
þau kosta á bilinu sex hundruð til
sjö hundruð þúsund krónur.“
Hjólaferðir á erlendri grundu
Sjálfur fer Ragnar mikið í hjól-
reiðaferðir og finnur fyrir aukn-
um áhuga hjá fólki fyrir slíkum
ferðum. „Ég hef hjólað um Kúbu
auk þess sem ég hef hjólað frá Taí-
landi til Kambódíu. Svona ferðir
eru að verða mjög vinsælar. Sum-
ir kjósa erfiðari ferðir upp um fjöll
og firnindi en aðrir kjósa rauðvíns-
ferðir í kringum Gardavatn. Þetta
er virkilega góður ferðamáti. Þú
upplifir landið og stemninguna
mun betur heldur en í gegnum
bílrúðu.“ Ragnar segir svona ferðir
vera mun einfaldari en fólk heldur.
Aðspurður segir Ragnar Reykjavík
ekki vera hjólavæna borg. „Það er
nú samt búið að gera mjög mikið til
þess að bæta samgöngur gangandi
fólks og hjólreiðamanna. En það er
ekki nóg. Það virðist ríkja ákveðin
meinloka í að koma hjólreiðastíg-
um inn í skipulagða gatnagerð.“
RJÚKANDI SALA
Á REIÐHJÓLUM Ragnar Þór Ingólfs-son, verslunarstjóri í Erninum.
KORTERSKORT
Ráðlagður dagskammtur hreyfingar er
30 mínútur samkvæmt erlendum rann-
sóknum. Með því að hjóla tvisvar á dag í
korter má uppfylla daglega hreyfiþörf.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar lét
útbúa þetta kort sem sýnir þá vegalengd
sem meðalhjólreiðamaður ferðast á aðal-
stígum borgarinnar á 15 mínútum út frá
þungamiðju.
TILRAUNAÁSKRIFT
2 FYRIR 1
::: Þú færð Helgarblað DV og Mánudagsblaðið sent heim að dyrum
::: Þú færð fyrstu tvo mánuðina á sérstöku tilboði
::: Þú færð annan mánuðinn frítt, hinn á aðeins 1.990 kr.
Hringdu í síma 512 7000, farðu inn á dv.is, sendu póst á askrift@dv.is eða sendu
okkur sms skilaboðin „dv ja“ í síma 821 5521 og við hringjum í þig til að ganga frá
tilraunaáskriftinni. Eftir þessa tvo mánuði berst þér blaðið áfram en hafir þú ekki áhuga á
að fá blaðið lengur, hringir þú í síma 512 7000.
HELGARÁSKRIFT
2fyrir1
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK