Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Blaðsíða 22
Loksins er sumarið búið. Sigyn finnst það vera erfiðasti tími ársins. Það fer einfaldlega allt
úr skorðum. Börnin ganga laus-
um hala og haga
sér eins og þau
vilja - það er að
segja ef þau
eru of ung til
að geta unnið
og of gömul til
að vera í pöss-
un. Eftirlitsleysi er
engum til góðs. Það er heldur ekki
nokkru barni í hag að fá að hanga
og slæpast í tvo og hálfan mánuð.
Það er bara þannig að þó svo að foreldrar séu allir af vilja gerðir til að halda einhverj-
um (lágmarks)aga á börnunum
sínum á sumrin er bara ógjörning-
ur að sjá til þess að þau fari eftir því
sem þeim er sagt. Foreldrarnir
eru farnir út úr húsi milli klukkan
átta og níu á hverjum morgni og
komin heim á milli fimm og sex í
besta falli. Hver á
að sjá til þess að
börnin fari á fæt-
ur fyrir hádegi,
borði hollan
morgunmat,
stundi passlega
útiveru og hreyf-
ingu, séu ekki of
lengi í tölvunni, hangi ekki of lengi
yfir sjónvarpinu og þar fram eftir
götunum?
Sigyn sér að minnsta kosti enga leið til þess að ala upp börn-in sín á sumrin. Að minnsta
kosti ekki á meðan hún er í vinn-
unni. Hún reynir að sjálfsögðu að
yfirheyra þau þegar hún er komin
heim: Hvernig var dag-
urinn hjá þér? Hvað
gerðirðu skemmti-
legt? Hvenær
vaknaðirðu?
Hvað fékkstu þér
í morgunmat, há-
degismat, kaffinu?
Við hvern lékstu?
Og hún trúir því að
börnin segi ekki blákalt ósatt. Hún
getur ekki gert ráð fyrir öðru en að
þau hagræði kannski sannleikan-
um örlítið - svona til að forðast pex,
eins og börn gera - en við því getur
hún ekkert gert.
Á sumrin mega börn á aldr-inum 12-16 vera úti til mið-nættis! Það þýðir að lög-
um samkvæmt hafa þau rétt á að
vera úti langt umfram þann tíma
sem fullorðnu fólki, sem mæt-
ir snemma í vinnu á morgnana,
er eðlilegt að fara í háttinn. Það
þýðir að það hefur ekkert upp á
sig að skipa þeim að vera komin
heim langt á undan leikfélögunum,
því þau hafa lagabókstafinn sér til
verndar. Og það truflar allan aga á
heimilinu og svefntími barnanna
færist aftur sem þessu nemur - sem
og foreldranna, því ekki fer Sigyn að
sofa áður en börnin
eru komin heim!
Hún er því dauð-fegin
að skólinn er
byrjaður. Nú
er hægt að setja í
gang vetrarreglurnar að
nýju. Háttað á skikkanlegum tíma,
vaknað fyrir allar aldir, hollusta
í morgunverð og nesti í skólann.
Heimalærdómur en ekki tölvuleik-
ir og útivistartíminn styttist um tvo
tíma. Og öllum líður betur. Ekki síst
börnunum! Af hverju sendir enginn
börnin sín í sveit lengur?
fimmtudagur 30. ágúst 200722 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjóri og ábyrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: Valdimar birgisson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins.
Dreifing: árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
áskriftarsími 512 7080, auglýsingar 512 70 40.
AgAleysi sumArsins
sigyn
BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON FRÉTTASTJÓRi SkRiFAR. Þá þótti ekki ástæða til að tryggja að reglunum sem voru settar væri fylgt.
Skúrkar og slugsarar
Leiðari
Það er hreint með ólíkindum hversu mörg-um virðist finnast allt í lagi að brjóta á út-lendingum. Okkur berast reglulega fréttir af fyrirtækjum sem ráða starfsmenn hingað
til lands en hirða svo ekki um að sinna lögbundnum
skyldum sínum, svo sem að skrá starfsfólk og tryggja
réttindi þess. Því getur svo farið að starfsmenn-
irnir standi uppi réttlausir komi eitthvað upp á.
Þannig standa saklausir launþegar uppi með skað-
ann. Skúrkarnir, vinnuveitendurnir sem sinna því
ekki að fara að lögum og reglum, virðast hins vegar
sleppa alltof oft.
Nú berast okkur fréttir af því að Vinnumálastofn-
un ætli í fyrsta sinn að beita þeim viðurlögum sem
hún hefur. Í fyrsta skipti! Rúmu ári eftir að reglurnar
tóku gildi. Nú skulum við ekki velkjast í vafa um að
tilefnin hafa verið til staðar. DV hefur flutt fréttir af fyrirtækjum
þar sem stjórnendur hafa brotið lög með því að skrá ekki starfs-
menn sína, fá fyrir þá kennitölur og tryggja þeim allan þann rétt
sem þeir eiga heimtingu á. Einhverjum málum hefur verið vísað
til lögreglu til rannsóknar. Ekki vanþörf á.
Vandinn er nú samt ekki endilega sá að Vinnumálastofnun hafi
ekki staðið sig. Það liggur ljóst fyrir að stjórnvöld vönduðu eng-
an veginn nógu vel undirbúninginn að því þegar
höftin á atvinnufrelsi fólks frá austur-evrópsku ríkj-
unum voru afnumin 1. maí 2006. Þau slugsuðu. Þá
þótti ekki ástæða til að tryggja að reglunum sem
voru settar væri fylgt. Stofnanir voru ekki undir-
búnar fyrir breytingarnar og aukið hlutverk sitt.
Þannig virtist sem þeir stjórnmálamenn sem réðu
ferðinni á þessum tíma hafi litið svo á að þeir gætu
lagt stóraukin verkefni á stofnanir eins og Vinnu-
málastofnun án þess að gera ráð fyrir að það krefð-
ist meiri mannskaps. Forystumenn verkalýðsfélaga
gagnrýndu slakan undirbúning fyrir breytinguna.
Þeir höfðu fram að þessum tíma gegnt mikilvægu
eftirlitshlutverki sem var að mestu leyti tekið af
þeim, þó svo þeir hefðu enn staðið vaktina og reynt
að tryggja að farið væri að lögum og reglum, tryggja
að fólk fengi það sem það á rétt á. Þrátt fyrir gagnrýnina brugð-
ust stjórnmálamenn ekki við. Enda varð raunin sú að kerfið réði
engan veginn við breytinguna. Síðasta ár mynduðust miklir stafl-
ar af umsóknum um kennitölur sem ekki var hægt að afgreiða.
Eftirlitið veiktist. Ábyrgðin var stjórnmálamannanna sem settu
reglurnar. Kannski er ekki síður þörf á að láta fara fram úttekt á
þeirra störfum en stofnana þeirra.
DómstóLL götunnar
Á að taka upp skólabúninga?
„nei, mér finnst það vera tóm vitleysa.
Ég held að það myndi ekki koma vel út
og þeir yrðu sennilega bara ljótir. Ég
hef litla trú á að það yrði vinsælt hjá
krökkunum. Ég held að þeir yrðu illa
hannaðir og ljótir.“
Guðmundur Hólmar Helgason,
15 ára nemi
„mér finnst það allt í lagi í þessum
yngstu bekkjum eins og 1. til 6. bekk.
ef það yrði gert ætti þeir ekki að vera
of formlegir heldur einfaldir í sniðum
og þægilegir. Þá finnst mér að þeir
ættu að geta valið um búninga þannig
að allir væru ekki alveg eins. Þannig
held ég að þetta myndi ganga vel upp.“
Eydís Þórunn Guðmundssdóttir,
22 ára starfsmaður á Keldum
„mér finnst að það ætti að taka upp
skólabúninga. Það myndi að öllum
líkindum útrýma einelti gegn þeim
sem hafa ekki efni á að kaupa sér dýr
föt. að þessu leyti fyndist mér það allt í
lagi en fötin mættu ekki vera of
formleg. Bara eitthvað einfalt og
þægilegt.“
Erla Guðrún Björnsdóttir,
18 ára nemi
„já, mér finnst það allt í lagi og það
myndi örugglega hjálpa. ef það yrði
gert finnst mér að það ætti bara að
vera til dæmis flíspeysa og jogging-
buxur. Ég held að það yrði auðveldara
fyrir börn og foreldra þeirra.“
Þóra Ívarsdóttir,
18 ára nemi
sanDkorn
n Björn Swift forritari hjá CCP
virðist hafa slegið í gegn með
heimasíðunni þar sem hann
stelur útlitinu og hluta texta
frá heima-
síðu Björns
Bjarnasonar
dómsmála-
ráðherra.
Þetta gerði
hann eftir að
hafa tryggt
sér netfang-
ið björn.is,
Björn hefur bjorn.is. Meira að
segja ávarpið er skuggalega
líkt. „Ég fagna því að þú sért að
skoða síðuna mína. Hér getur
þú kynnst því sem á daga mína
hefur drifið síðan...“ byrjar
ávarpið á báðum síðum.
n Ekki geta þeir félagar Björg-
ólfur Guðmundsson og Egg-
ert Magnússon verið ánægðir
með gang
mála hjá
West Ham
þessa dag-
ana. Hver
leikmaður-
inn á fæt-
ur öðrum
meiðist.
Reyndar
virðist það
svo að velflestir leikmenn sem
hafa verið keyptir til liðsins
síðan þeir tóku við valdataum-
unum hafa meiðst. Síðastur
var Kieron Dyer sem kom frá
West Ham. Spurning hvort
þeim fari ekki að finnast þeir
alltaf kaupa köttinn í sekknum.
n Dómarar landsins virðast
ekki lifa neinu sældarlífi þessa
dagana. Skammirnar höfðu
vart þagnað
eftir síðustu
umferð í Ís-
landsmóti
karla þegar
dómari í
utandeild-
inni mátti
þola líkams-
árás af hálfu
leikmanns sem hann hafði
rekið út af vellinum. Gagnrýni
þjálfara á dómara fyrir slaka
frammistöðu í síðustu umferð
og nú ætlar aganefnd KSÍ að
taka á vandanum, væntan-
lega með því að sekta þjálfara
og þeirra lið eins og venjan
er þegar dómarar eru gagn-
rýndir.
n Björn Ingi Hrafnsson er
fljótur að fagna góðum árangri
af því að nú er ókeypis í strætó
fyrir framhalds- og háskóla-
nema. Talar þar um að hafa
lesið í blaði að vagnarnir séu
margir hverjir fullir í upphafi
skólaveturs.
Sjálfur fer
hann hins
vegar áfram
sinna leiða í
bíl og hugg-
ar sig við að
sennilega
væru löngu
og hægu
bílaraðirnar enn lengri ef ekki
væri fyrir átak borgarinnar. Hjá
Strætó treysta menn sér hins
vegar ekki til að staðfesta ár-
angurinn svo snemma.
miðvikudagur 29. ágúst 20076 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Fegruðu húsið
Vatnsveituhús í eigu Ísafjarð-
arbæjar var málað fagurhvítt af
óþekktum íbúum bæjarins í skjóli
nætur.
Jóhann Birkir Helgason, yfir-
maður tæknideildar Ísafjarðarbæj-
ar, gerir ráð fyrir því að þarna hafi
pirraðir nágrannar hússins verið á
ferð, húsið var farið að láta á sjá og
það hafði staðið til að mála húsið.
Jóhann segist ekki hafa hugmynd
um hver málaði húsið, en hann
er mjög ánægður með framtak-
ið. „Þetta var bara góðverk í þágu
bæjarins, þeir hefðu kannski átt að
hafa samband og þá hefði ég getað
útvegað þeim málninguna.“
Íbúðin lögð í rúst
Óprúttnir aðilar brutust inn
í íbúð í Bæjargili í Garðabæ og
höfðust þar við að því er virðist í
nokkra daga.
Að sögn Gunnars Hilmars-
sonar, varðstjóra hjá lögreglunni
í Reykjavík, hafði fjölskyldan
brugðið sér í frí til útlanda. Þegar
ættingi fjölskyldunnar fór í íbúð-
ina á sunnudagskvöldið til að
athuga hvort allt væri í lagi blasti
við honum ófögur sjón. Mikill
sóðaskapur blasti við og lágu síg-
arettustubbar á víð og dreif um
íbúðina auk þess sem pilluglös
og tól til fíkniefnaneyslu lágu á
hér og þar. Töluverðu magni af
verðmætum var einnig stolið úr
íbúðinni. Húsráðendur komu til
landsins í gærmorgun.
Ung stúlka rændi
gamla fólkið
Þjófótt stúlka, sem lögreglan
á Suðurnesjum varaði fólk við í
síðustu viku, var handtekin fyrir
hádegi í fyrradag. Hún reyndist 18
ára gömul og hefur að sögn varð-
stjóra hjá lögreglunni komið við
sögu lögreglu áður.
Stúlkan bankaði í tvígang upp
á hjá eldra fólki í Reykjanesbæ og
falaðist eftir dóti á tombólu. Hún
bað um að fá að fara á salernið í
húsunum. Á meðan húsráðendur
brugðu sér frá stal hún frá þeim
en ekki liggur fyrir hversu mikið
hún hafði upp úr krafsinu. Í kjöl-
far nokkurra ábendinga handtók
lögreglan stúlkuna og viðurkenndi
hún verknaðinn.
Lokað vegna
sprengihættu
Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu lokaði Reykjanes-
brautinni til móts við IKEA í
fyrrinótt. Eldur hafði kviknað
í hitunartæki sem hitar vega-
málningu sem verið var að
vinna með. Gaskútur er not-
aður til að hita málninguna og
vegna sprengihættu var gripið
til þess ráðs að loka götunni.
Slökkviliðið á höfuðborgar-
svæðinu var kallað á vettvang
og voru gaskútarnir kældir og
eldurinn slökktur. Umferð var
hleypt í gegn á nýjan leik um
hálftíma síðar. Slökkviliðið á
höfuðborgarsvæðinu var einn-
ig kallað á vettvang í Breið-
holti í gær en þar hafði töluvert
magn af bensíni lekið úr bíl.
„Við kusum að láta okkur ekki
gremjast þessar framkvæmdir og
horfum ekki sérstaklega í þann
kostnað sem við bárum af þess-
um framkvæmdum,“ segir Kristinn
Gústaf Bjarnason, markaðsstjóri
hjá Toyota á Nýbýlavegi.
Mikið umferðaröngþveiti hef-
ur verið á Nýbýlavegi og nálægum
götum undanfarna daga. Þar hef-
ur stór rafstrengur verið fluttur um
set vegna fyrirhugaðrar breikkun-
ar vegarins. Toyota á Íslandi brá á
það ráð að bjóða viðskiptavinum
sínum í ratleik um Kópavog ásamt
því sem fyrirtækið ákvað að greiða
rafmagnasreikninga fyrir hluta
viðskiptavina sinna. Kristinn segir
þessar aðgerðir ekki frábrugðnar
hverju öðru markaðsátaki. „Svona
framkvæmdir geta leikandi pirrað
fólk, en með þessu móti voru við-
skiptavinirnir kátir.“
„Þessar breytingar hafa lengi
staðið fyrir dyrum og það var nauð-
synlegt að gera þetta. Þessi breikk-
un er okkur í hag þegar til lengri
tíma er litið og þess vegna var ein-
falt mál fyrir okkur að horfa á þetta
björtum augum,“ segir Kristinn.
Hann segir að fullt hafi verið út
úr dyrum á laugardag og margir
hafi einnig komið á fimmtudag og
föstudag. „Ég hef reyndar enn ekki
lesið af teljaranum, en þetta var
mikið af fólki,“ segir hann.
Nýbýlavegur var opnaður við
Sæbólsbraut í gær. Framkvæmdir
við flutning rafstrengsins höfðu þá
staðið yfir síðan á fimmtudag. Þeim
átti að ljúka á laugardag en verklok
töfðust um þrjá daga, með tilheyr-
andi umferðartöfum. Jóhann Berg-
mann, deildarstjóri hjá vegagerð-
inni, sagði að verkið hefði reynst
umfangsmeira en búist var við.
Ekki mætti fara óvarlga við flutning
á svo stórum rafstreng. Rafstreng-
urinn lá norðan Nýbýlavegar en
hefur nú verið færður suður fyrir
veg.
sigtryggur@dv.is
Ákváðu að horfa ekki í kostnaðinn
Tafir á Nýbýlavegi Framkvæmdir við Nýbýlaveg höfðu áhrif á viðskipti fyrirtækja.
viðskiptavinir fjölmenntu í toyota-umboðið.
Gissur Pétursson
STARFSMANNALEIGUR
UNDIR FÖLSKU FLAGGI
„Við gerum skilyrðislausa kröfu um að
stærri fyrirtæki sem flytja inn verkafólk
haldi utan um það að skrá starfsmenn
sína með löglegum hætti. Ef þau sinna
þessu ekki bíða þeirra dagsektir,“ seg-
ir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar.
Starfsmenn Vinnumálastofnunar
hafa undanfarna daga verið á vinnu-
svæðinu við Kárahnjúka og athugað
skráningu starfskrafta. „Við báðum um
lista yfir alla sem þarna starfa. Á dag-
inn kom að þessir listar voru ekki á
lausu og því höfum við fulla ástæðu til
þess að ætla að ekki sé allt með felldu í
starfsmannahaldinu,“ segir hann.
Starfsmannaleigur í dulargervi
Í fyrradag upplýstist að tuttugu af
þeim 29 pólsku og lettnesku verka-
mönnum sem voru um borð í rútu
sem endaði utan vegar á Fljótsdal á
sunnudag voru ekki skráðir með lög-
legum hætti. Mennirnir hafa verið við
vinnu hjá verktakafyrirtækinu Arnar-
felli í gegnum undirverktaka.
„Við fengum afrit af þjónustusamn-
ingnum og erum að fara yfir hann ein-
mitt núna. Spurningin er hvort þetta
er samningur um yfirtöku á verki eða
leigu á starfsmönnum,“ segir Giss-
ur. Hann segir ekki útilokað að sumir
þeirra svokölluðu undirverktaka sem
starfa við virkjunarframkvæmdirnar
séu starfsmannaleigur í dulargervi.
Starfsmennirnir unnu fyrir fyrir-
tækin GT-verktaka, Spöng ehf. og
þýska fyrirtækið Hunnbeck-Polska.
Kæra verktakana
Gissur bendir á að fyrirtæki séu
misvel í stakk búin til þess að takast
á við regluverk og skráningar. „Í sum-
um tilvikum er um að ræða fyrirtæki
þar sem eigandinn er úti með ham-
arinn að slá upp mótum og menn eru
kannski ekki einu sinni mjög tölvu-
vanir,“ segir hann. Þá hafi Vinnumála-
stofnun reynt að veita aðstoð og sýna
umburðarlyndi.
Hins vegar sé það alveg ljóst að
skylt sé að skrá starfsfólk. Fyrirtækin
muni ella sæta dagsektum. „Nokkur
fyrirtæki munu á næstunni verða beitt
dagsektum ef þau koma sínum málum
ekki á hreint,“ segir Gissur. Hann seg-
ir að næsta skref á eftir dagsektum sé
að kæra viðkomandi fyrirtæki, enda sé
um lögbrot að ræða.
Kerfið í ólestri
Eftirlit með því að erlendir starfs-
kraftar séu rétt skráðir hefur reynst
snúið. Gissur segir að næsta ómögu-
legt sé að henda reiður á því hve marg-
ir erlendir verkamenn séu við störf á
hverjum tíma.
„Þetta er þannig að verktakafyrir-
tæki sem ætlar að ráða tuttugu manns
sækir um kennitölur fyrir alla. Síðan
getur það komið fyrir að aðeins tíu
manns skila sér til landsins. Þá sitjum
við uppi með það að hluti af þessum
kennitölum er kominn af stað í kerfinu
án þess að þeim tilheyri andlit,“ segir
Gissur.
Hann segir Vinnueftirlitið þegar
hafa hafið rannsóknir á skráningum
starfsmanna við Kárahnjúka. „Rútu-
slysið varð til þess að þrýsta þessum
málum upp á yfirborðið.“
SiGTryGGur Ari jóhANNSSoN
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Vinnubúðir við
Kárahnjúka
vinnumálastofnun
bað um lista yfir alla
erlenda starfsmenn á
vegum verktaka við
kárahnjúka. Þessir
pappírar liggja ekki á
lausu.
Forstjóri Vinnumálastofnunar gissur
Pétursson segir fyrirtæki sem ekki skrá
starfsmenn sína með löglegum hætti
verða beitt dagsektum og mögulega
kærð.
„Í sumum tilvikum er
um að ræða fyrirtæki
þar sem eigandinn er
úti með hamarinn að
slá upp mótum.“