Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Side 26
Jason Bourne reynir áfram að fylla
í minnisgloppurnar og fá svarið við
hver hann er í raun. Í millitíðinni hef-
ur CIA enn eina ferðina sett hann á
lista óæskilegra og gerir sitt besta til að
afmá hann. Þú þarft í raun ekki að hafa
séð hinar myndir trílógíunnar til að
komast fljótt inn í söguþráð Ultimat-
um. Bourne var hluti af óþverraverk-
efni leyniþjónustunnar sem ekki þolir
dagsljósið en lifir áfram undir ýmsum
nöfnum.
Bourne er bara ekki sálarlausi
morðinginn sem þá vantar og nær
umsvifalaust samúð manns í baráttu
við ófreskjuna. Leyniþjónustur nú-
tímans eru svo óhuggulegar að mynd-
ir um menn í þeirra þjónustu þurfa
að vera í partýútgáfu á borð við Bond
og þegar hann nútímavæðist verður
hann bara óhuggulegri. Hér er þessu
öfugt farið. Í Bourne-myndunum fá
ófáir James Bondar að naga blý á frá-
bærlega útfærðan hátt. Skotheld has-
armynd með fylgjandi ýkjum en er að
öðru leyti sannferðug. Til dæmis birt-
ast lönd heimsins ekki í klisjum þess
sem aldrei hefur komið þangað. Sag-
an er góð, hefur raunverulegan blæ og
njósnastarfsemin sjálf er vel ígrund-
uð. Maður sér Echelon-njósnakerf-
ið sem er sagt geta pikkað upp grun-
samleg orð sögð gegnum síma eða
net hvar sem er í heiminum. Hér sést
í stærsta eftirlitsmyndavélakraðak
heims í London sem er notað óspart til
að njósna meðal annars um Bourne. Í
stað „Q“ sem kynnir nýjustu njósna-
græjuna fyrir Bond, einhvern asnaleg-
an hatt með hnífasamstæðu í. Bourne
þekkir þetta betur en allir og beitir
bolabrögðum leyniþjónustunnar gegn
henni sjálfri.
Allur hasar á bílum eða í slags-
málum er vel gerður og hraður eins
og myndin öll. Hasarinn er stund-
um á mörkunum að verða of óskýr en
sumir leikstjórar gera það viljandi til
að spenna mann upp. Verst að þess-
ari frábæru hasarmyndatrílógíu lýkur
hér með. Bourne-myndirnar eru all-
ar mjög góðar og erfitt að gera upp á
milli. En hér er að minnsta kosti um að
ræða bestu hasarmynd í mjög langan
tíma vegna þess að hasarinn er ekta
og myndin sjálf er ekki heiladauð.
Þetta er ekki hasarmyndin sem maður
skammast sín fyrir að vera á og reynir
að komast úr bíósalnum áður en ljós-
in kvikna.
Bond fær
tvo á trýnið
Unga og efnilega hljómsveitin
Soundspell gefur út sína fyrstu breið-
skífu á morgun. Platan heitir því frum-
lega nafni An Ode To The Umbrella.
Sveitina skipa þeir Alexander Briem
söngvari, Áskell Harðarson bassa, Bern-
harð Þórsson trommum, Jón Gunnar
Ólafsson gítar og Sigurður Ásgeir Árna-
son á píanó. Annars leika þeir félagar
einnig á fjölmörg önnur hljóðfæri.
Soundspell vakti fyrst athygli á sér í
vetur þegar sveitin lék í beinni útsend-
ingu í útvarpsþættinum Popplandi á
Rás 2. Strákarnir, sem eru á aldrinum
16 til 18 ára, hafa einnig komið fram í
tónlistarþætti Jóns Ólafssonar sem og í
Kastljósinu.
Í kjölfarið hafa meðlimir sveitarinn-
ar unnið hörðum höndum að því að
koma þessari fyrstu plötu frá sér. Þeir
hafa verið í upptökuverinu meira og
minna í allt sumar en með upptöku-
stjórn á plötunni fara þeir Ronan Chris
Murphy og Albert Ásvaldsson.
Útgáfutónleikar sveitarinnar verða
svo í Austurbæ föstudaginn 7. sept-
ember en hægt er að nálgast frekari
upplýsingar um sveitina á myspace.-
com/spellthesound.
asgeir@dv.is
fimmtudagur 30. ágúst 200726 Bíó DV
Bíódómur
Bourne ultimatum
Vel gerð og sannfærandi
hasarmynd sem hefur
góða sögu og raunveru-
legan blæ.
Leikstjóri: Paul Greengrass
Aðalhlutverk: Matt Damon, Julia Stiles, Joan Allen, David
Strathairn Niðurstaða: HHHHH
Matt Damon í The Bourne Ultimatum
„Bestu hasarmynd í mjög langan tíma vegna þess að
hasarinn er ekta og myndin sjálf er ekki heiladauð.“
Hljómsveitin Soundspell gefur út plötuna
An Ode To The Umbrella á morgun.
Gefur út sína fyrstu plötu
Soundspell
fyrsta plata sveitarinnar
kemur í verslanir á morgun.
með íslensku
m texta
DIE
FALSCHER
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
BOURNE ULTIMATUM kl. 5.30 - 8 - 10.30
BOURNE ULTIMATUM LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6
RUSH HOUR 3 kl. 3.45 - 5.50 -8 -10.10
DIE HARD 4.0 kl. 8 *Síðustu sýningar
DEATH PROOF kl. 10.45 *Síðustu sýn.
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
KL. 5.30 The Bridge / Hallam Foe / Die Falscher
Cocaine Cowboys
KL. 8 Goodbye Bafana / Goodbye Bafana
Deliver Us From Evil
KL. 10.30 Sicko / Shortbus / Zoo / No Body Is Perfect
SÝNINGARTÍMAR GRÆNA LJÓSSINS14
12
14
16
14
12
BOURNE ULTIMATUM kl. 6 - 8 - 10.10
RUSH HOUR 3 kl. 8 -10
THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6
14
12
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10.10
BOURNE ULTIMATUM kl. 5.30 - 8 - 10.30
RUSH HOUR 3 kl. 6 - 8 - 10
BECOMING JANE kl. 5.30 - 8 -10.30
VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA SÝNDAR
ÁFRAM TIL MÁNUDAGS.
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIDI.IS
SICKO
með íslensku
m texta AWAY
FROM HER
FOE
HALLAM
ZOO
SHORTBUS
NO BODY
IS PERFECT
COCAINE
COWBOYS
FROM EVIL
DELIVER US
THE
BRIDGE
GOOBYE
BAFANA
LANDSLIÐ GRÍNISTA
Í STÆRSTU ÍSLENSKU
BÍÓMYND ÁRSINS
- bara lúxus
Sími: 553 2075
Íslenskt tal
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5.40, 8 og 10.20-POWER 14
RUSH HOUR 3 kl. 3.45, 6, 8 og 10.20 12
RATATOUILLE íslenskt tal kl. 3.45 L
TRANSFORMERS kl. 10 10
SIMPSONS íslenskt tal kl. 4 og 6 L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á Íslenskt tal
www.SAMbio.is 575 8900
Þeirra stríð. okkar heimur
FrÁ miChaeL BaY oG steVeN sPieLBerG
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í USA
kringlunni
s. 482 3007selfossi
keflavík
akureyri
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10 L
RATATOUILLE ÍSL TAL kl. 6 L
RATATOUILLE ENSKT TAL kl. 8 L
TRANSFORMERS kl. 10:15 10
álfabakka
ASTRÓPÍÁ kl. 6:15 - 8 - 10:10 L
ASTRÓPÍÁ kl. 8 - 10:10
RATATOUILLE ENSKU TAL kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
RATATOUILLE ÍSL TAL kl. 4 - 5:30 L
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 10:40 10
TRANSFORMERS kl. 5
NANCY DREW kl. 6 7
GEORGIA RULES kl. 8 7
HARRY POTTER 5 kl. 8:15 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 4 L
OCEAN´S 13 kl. 10:10 7
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10:10 L
BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 14
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
RATATOUILLE ENSKU TAL kl. 8 L
TRANSFORMERS kl. 10:20 10
ASTRÓPÍÁ kl. 7 - 9 L
RUSH HOUR 3 kl. 7 - 9 12
ASTRÓPÍA kl. 8 - 10 L
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10:30 14
VIP
VIP
DigiTal
DigiTal
DigiTal
Magnaðasta spennumynd sumarsins
MATT DAMON ER JASON BOURNE
jIS. FILM.IS
AS. MBL
„Að mínu mati ættu allir að drífa sig með fjölskylduna“
MBL
Hvar er Bourne? síðasta myndin um hinn þrautþjálfaða Jason Bourne.