Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Side 27
„Kitsune er franskt elektrónískt
plötu- og tískufyrirtæki sem mun sjá
um heljarinnar dansveislu á Gaukn-
um á föstudaginn,“ segir Róbert
Aron Magnússon, oftar en ekki kall-
aður Robbi Chronic. „Kitsune hefur
gert það gott með safndiskunum sín-
um sem heita Kitsune Maison. Þar
koma fram allir þeir heitustu í þess-
ari frönsku elektrósenu sem hefur
tröllriðið öllu undanfarið.“
Heitasta elektróið
„Kitsune Music var stofnað árið
2002 en það er líka tískufatamerki.
Það verður þó engin tískusýning á
Gauknum heldur verður ferskasta
tónlistin í fyrirrúmi,“ segir Róbert, en
það eru félagarnir Gildas og Masaya
sem sjá um tónlist kvöldsins. „Þeir
eru eigendur Kitsunes og verða með
alveg dúndur dj-sett,“ en þeir félag-
ar hafa haldið slíkar samkomur um
allan heim, við góðar undirtektir að
sögn Róberts.
Róbert fór á slíkt Kitsune-kvöld í
London um daginn og var það ein-
staklega vel heppnað að hans sögn.
Það er nú einu sinni þannig að þessir
toppar hjá þessum stóru útgáfufyrir-
tækjum fá alla bestu tónlistina og því
verður allt það besta á boðstólum á
föstudaginn,“ segir Róbert og nefn-
ir listamenn eins og Simian Mobile
Disco, Digitalism, Boys Noize, Klax-
ons og Alex Gopher sem hafa verið á
snærum Kitsunes.
„Þeir hafa líka gefið út efni fyr-
ir vinsælar sveitir eins og Bloc Party
og Hot Chip sem hafa verið gríðar-
lega vinsælar undanfarið ár.“ Róbert
segir að fatamerki Kitsunes sé einnig
mjög stórt og hafi þeir meðal annars
hannað fyrir listamenn eins og Air og
Daft Punk. „Kitsune er einfaldlega
eitt af aðalmerkjunum í þessari senu
og frumkvöðlar á sínu sviði.“
Nýtt frá Steed Lord
Auk þeirra Gildas og Masaya frá
Kitsune munu íslensku plötusnúð-
arnir Dj Casanova og Jack Shidt
einnig koma fram. „Steed Lord verð-
ur svo einnig með mínísett þarna
þar sem hún frumflytur nýtt efni,“
en nýrrar plötu er að vænta frá sveit-
inni. „Sveitin verður í hljóðveri allan
september og sennilega verður nýja
efnið almennilega frumflutt á Airwa-
ves,“ en Róbert, sem er umboðsmað-
ur sveitarinnar, býst einnig við stór-
um útgáfutónleikum í vetur.
„Húsið verður svo opnað á slag-
inu 23.00 á laugardaginn og það
kostar 1.500 krónur inn,“ segir Ró-
bert að lokum, en engin forsala er á
viðburðinn.
asgeir@dv.is
Í samninga-
viðræðum
Ben Affleck er í samningaviðræðum
varðandi það hvort hann muni leika
á móti Jennifer Aniston og Scarlett
Johansson í
kvikmynd-
inni He‘s
Just Not
That Into
You.
Myndin er
byggð á
samnefndri
metsölu-
bók eftir
Greg
Behrendt
og Lis
Tuccillo
sem inniheldur fjöldann allan af
skemmtilegum sögum um
nútímasambönd. Aðrir leikarar sem
fara með hlutverk í myndinni eru
Jennifer Connelly, Kevin Connolly,
Bradley Cooper, Ginnifer Goodwin
og Justin Long.
Bond fær
tvo á trýnið
Elektróníska útgáfan Kitsune Music stendur fyrir gleðskap á Gauki á Stöng á föstu-
daginn þar sem Steed Lord mun meðal annars frumflytja nýtt efni.
fimmtudagur 30. ágúst 2007DV Bíó 27
frUMKvÖðLAr frÖnSKU
ELEKtrÓSEnUnnAr
Steed Lord á Global
Gathering róbert aron
ásamt a.C. Bananas og
svölu Björgvins.
Gildas og Masaya, eigendur
Kitsune Music standa fyrir
dansveislu á gauki á stöng á
föstudag.
Heimsótti
Owen
Samuel L. Jackson var einn af þeim
sem lögðu leið sína á spítalann til að
heilsa upp
á félaga
sinn Owen
Wilson sem
er um þess-
ar mundir
að jafna sig
eftir
sjálfsmorð-
stilraun.
Pulp
Fiction-
stjarnan
var mjög
skiljanlega
í engu
skapi til að spjalla við blaðamenn
sem voru saman komnir fyrir utan
Cedars Sinai-sjúkrahúsið í Los
Angeles og öskraði reiður í átt að
fjölmiðlum: „Ég kom til að
heimsækja Owen. Hvað í andskot-
anum eruð þið að gera hérna?
Snautið í burtu!“
Hættir við
Tropic
Tveimur dögum eftir að hafa verið
lagður inn á spítala fyrir tilraun til
sjálfsvígs tók Owen Wilson ákvörðun
um að
hætta við
að leika í
grín-
myndinni
Tropic
Thunder.
Owen átti
að leika á
móti Ben
Stiller í
myndinni
en Stiller
hefur
undan-
farnar sex
vikur verið við tökur á myndinni á
Hawaii en auk hans mun Jack Black
fara með hlutverk í myndinni. Óvíst
er hvort endurráðið verði í hlutverk
Owens eða hvort karakterinn sem
hann átti að leika verði hreinlega
þurrkaður út úr handritinu.
Kletturinn
í fjallamynd
Dwayne Johnson, betur þekktur sem
The Rock eða Kletturinn, er nú í
samningaviðræðum við Disney um
að leika
aðalhlut-
verkið í
endur-
gerð á
klassísku
kvik-
mynd-
inni
Escape
To Witch
Moun-
tain frá
árinu
1975.
Myndin
fjallar um
systkin með ofurnáttúrulega krafta
sem leggja á flótta undan mönnum
sem vilja eyðileggja krafta þeirra.
Johnson myndi leika leigubílstjóra
sem lendir í ævintýri lífs síns þegar
hann tekur systkinin upp í.
Arthúr
www.fjandinn.com/arthur
Steed Lord frumflytur
nýtt efni á gauki á stöng.