Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2007, Qupperneq 30
fimmtudagur 30. ágúst 200730 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Deilurnar á milli Arnþrúðar
Karlsdóttur og Hildar Helgu
Sigurðardóttur fara harðn-
andi dag frá degi. Bloggarinn
Jens Gud bendir á í bloggi sínu
í gær að inn-
hringjend-
ur í síma-
tíma Útvarps
Sögu hafi
rætt málin
við Arnþrúði
sem hafi sagt
að til að fólk
fái greitt fyrir
vinnu þurfi það að mæta í hana
og hafi svo bætt við: „Og þegar
fólk mætir, þá þarf það að vera
í þannig ásigkomulagi að það
geti sinnt vinnunni.“ Það skyldi
þó aldrei fara svo að málaferlin
í héraðsdómi snúist brátt ekki
lengur um vangreidd laun held-
ur meiðyrði?
n Að mörgu er hægt að hlæja á
Youtube-síðunni. Nú hefur hins
vegar bæst við myndband sem
slær flest ef ekki allt annað út.
Hér er átt við óborganlegt við-
tal úr þættinum Dagsljósi, sem
var á dagskrá Ríkissjónvarpsins
um og upp úr miðjum tíunda
áratugnum, þar sem rætt er við
mann sem kallaður er Kiddi
vídeófluga. Kiddi, sem bjó á
Egilsstöðum þegar viðtalið var
tekið og býr hugsanlega enn, fer
á kostum þar sem segir frá vinnu
sinni sem líkkistusmiður og
eigandi vídeóleigu, auk þess að
sauma út í frístundum og dansa
einn heima á kvöldin. Þeir sem
ekki hafa enn séð viðtalið - og
dansana - ættu að kíkja á það
hið snarasta á youtube.com/
watch?v=tlv_kgOgLwo.
n Varla geta málin orðið dramat-
ískari á landinu en þau að blogg-
drottningar þjóðarinnar fari í hár
saman. Ellý Ármanns, ofur-
bloggari og þula, mun hafa stuð-
að vinkonu
sína Jónínu
Benedikts-
dóttur með
pistli þar
sem hún
segir mann
nokkurn
segja alla vini
sína fara til
Póllands til að láta hreinsa á sér
endaþarminn. Jónína bregst
við bloggi Ellýjar og skrifar:
„Ellý mín í Póllandi hreinsa all-
ir sjálfir á sér endaþarminn...
Það er hinsvegar ekki þekkt að
bólginn ristill þrýsti á heilann!
Það má samt vel vera þannig
hjá sumum vinkonum þínum
miðað við kynlífshryllinginn sem
þær stunda.“ En Jónína er ekki
reiðubúin að fórna vináttunni
og skrifar: „Þrátt fyrir þetta vil
ég helst áfram vera vinkona þín,
elskulega fallega þulan mín.“
Hver er maðurinn?
„Það er enginn dómari í eigin sök.“
Hvað ertu menntaður?
„Lögfræðingur og doktor á sviði
stjórnsýsluréttar. Doktorsritgerðin
mín fjallaði um hæfnisreglur stjórn-
sýslulaga.“
Hvað drífur þig áfram?
„Gleðin yfir því að vera á lífi og fá
að takast á við verkefni hvers dags.“
Hver eru áhugamál þín?
„Lögfræði er bæði mín atvinna og
mitt áhugamál. Auk hennar hef ég
gaman af tónlist, matreiðslu og úti-
veru.“
Eftirminnilegasta bókin?
„1984, eftir George Orwell. Ég
varð fyrir svo miklum áhrifum að ég
sérhæfði mig í meðferð persónuupp-
lýsinga og nú er ég stjórnarformaður
Persónuverndar.“
Ferðast þú mikið innanlands?
„Nei, ekki nóg. Ég hef ferðast
meira utanlands.“
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
„Ég fór til Spánar. Annars vegar
til Kanaríeyja og hins vegar til Ali-
cante.“
Hefur þú búið erlendis?
„Já, ég bjó í Kaupmannahöfn í
rúmt ár þegar ég var í framhalds-
námi.“
Hver er þín sérviska?
„Ég verð að svara hér eins og við
fyrstu spurningu. Það verður einhver
annar að svara þessu.“
Áttu eftir að sakna fyrrverandi
vinnustaðar þíns, Háskóla
Íslands?
„Alveg örugglega. Háskóli Íslands
er mjög góður vinnustaður. Það eru
forréttindi að fá að vinna með ungu
fólki og fylgjast með því uppgötva
leyndardóma lögfræðinnar. Það hef-
ur verið virkilega skemmtilegt og gef-
andi.“
Hvað verður það fyrsta sem þú
tekur þér fyrir hendur í nýju
starfi?
„Mitt fyrsta verk var í gær er ég
mætti í réttinn og mátaði dómara-
skikkjuna.“
Hverju viltu breyta?
„Störf dómara fela ekki í sér
byltingar og breytingar. Þeir þurfa
að fylgja lögum landsins sem
þingmenn einir hafa vald til að
setja.“
Ef ekki doktor í lögfræði, hvað
þá?
„Ég hafði gaman af enskum bók-
menntum í menntaskóla. Það hefði
sjálfsagt líka komið til greina.“
Hvað er fram undan?
„Það er vinna, eins og alltaf. Það
er mikil törn hjá mér núna en ég er
að afhenda öðrum þau verkefni sem
ég hef unnið að við Háskóla Íslands
og koma öðrum inn í starfið.“
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
+9
4
+13
1
xx
xx
xx
xxxx
xx
xx
+11
4
xx
xx
+12
4
xx
xx
xx
xx
xx
+114
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
xx
xx+104
xxxx
xx
xx
+13
4
+14
4
+13
1 xx
xx
+11
4
+11
4
xx
xx
+10
4
+10
4
+7
7
xx
+12 7
xx
xx
-xx
-xx
MAÐUR
DAGSINS
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DV Á DV.IS DV er
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði
Fyrsta verk að máta
dómaraskikkjuna
Doktor Páll Hreinsson
lagaprófessor hefur verið
skipaður í embætti hæstaréttar-
dómara frá 1. september. Páll
verður þá yngstur hæstaréttar-
dómara, 44 ára.
1árangur - Stelpurnar hér heima hafa sýnt
að þær snúast
bestu þjóðum
heims fyllilega
snúning. Þær
hafa náð frá-
bærum árangri
í Evrópukeppn-
um og með landslið-
inu. Sýnum þeim stuðning í verki
og mætum á leiki í deildinni, sem
gæti innan nokkurra ára orðið ein
sú sterkasta í Evrópu.
2 Bestu heima - Ólíkt því sem tíðkast í karlaboltan-
um spila bestu ís-
lensku stelpurnar
í deildinni hér
heima. Okkur
gefst því kostur
á að sjá nokkrar
af efnilegustu og
bestu knattspyrnukon-
um í heimi hér á klakanum.
3markasúpa - Landsbankadeild kvenna er ein skemmtilegasta
deildarkeppni landsins. Ekki er
óalgengt að sami leik-
maðurinn skori 4
til 5 mörk í leik
og stundum eru
skoruð á ann-
an tug marka í
einum leik. Það
heyrir til algerrar
undantekningar ef hvor- ugu
liðinu tekst að skora og því eru
leikirnir oft hin besta skemmtun.
4keppnisskap - Alltof sjaldan sér maður fólk sleppa fram af sér
beislinu og tjá tilfinningar sínar.
Á fótboltavellinum
má oft á tíðum
heyra orðbragð
sem heyrist ekki
nema í dýpstu
fylgsnum Litla-
Hrauns. Þar eru
konurnar engir eft-
irbátar karlanna. Ólíkt
því sem gerist hjá föngunum eru
allir vinir að leikslokum og takast
í hendur.
5Fegurð - Íslendingar eru með fallegustu þjóðum heims. Við
erum hvert öðru fallegra og kyn-
þokkinn hreinlega lek-
ur af okkur öllum.
Rétt eins og í
karladeildinni
má í kvenna-
deildinni sjá
fallegt fólk á
knattspyrnuvell-
inum. Stelpurnar
fara reyndar ekki úr að ofan þegar
þær skora, enda væri það of gott til
að vera satt.
ástæður til að
fara á kvenna-
knattspyrnu-
leik